Tíðindi Prestafélags hins forna Hólastiftis - 01.01.1984, Síða 33

Tíðindi Prestafélags hins forna Hólastiftis - 01.01.1984, Síða 33
PRESTAFÉLAGS HINS KORNA HÓLASTIFTIS 37 Herra Olafur Hjaltason fyrsti lúterski biskupinn á Hólum Hljótt hefur löngum verið um minningu Ólafs biskups Hjaltasonar. Hann galt þess að vera eftirmaður Jóns Arasonar og forveri Guðbrands Þorláks- sonar. Ólafur var biskup á Hólum á árunum 1552 til 1569, fyrstur biskupa í lúterskum sið. Hann var fæddur um aldamótin 1500 og vígðist prestur aðeins 17 vetra gamall. Varð hann handgenginn biskupunum, Gottskálk Nikulássyni og Jóni Arasyni, einkum þeim síðarnefnda. Þegar Jón fór utan til biskupsvígslu, var síra Ólafur Hjaltason með honum, enda vel kunnugur i Noregi þar sem hann hafði numið að tilhlutan Gottskálks. Er það til marks um dálæti Jóns Arasonar á Ólafi, því biskupsefni höfðu jafnan þá presta með sér, er þeir héldu utan til vígslu, sem þeim voru nákomnir eða þeir töldu besta vini sína. Síra Ólafur var þriðjung ævi sinnar trúnaðarmaður eins atkvæðamesta biskups á landi hér. Það ætti að sýna og sanna, að hann hafi verið vitur maður og traustur. Árið 1539 veitti Jón biskup honum Laufás við Eyjafjörð. Svo fór, að síra Ólafur hreifst af kenningum Marteins Lúters og gerðist gagnrýninn á ýmsa siði kaþólskra manna og bannaði þá jafnvel, m.a. ákall á heilaga menn, krossburð og krossgöngur. Leiddi það til þess, að fornvinur hans, Jón biskup Arason, bannfærði hann í Laufáskirkju i viðurvist 12 klerka á öndverðu ári 1550. Þar var sira Ólafur dæmdur af embætti og andlegri stétt, en hann færði fram skriflega vörn samkvæmt kenningu Lúters. Að gengnum dóminum á sira Ólafur að hafa verið færður úr prestsskrúða sínum til tákns um, að hann væri afhelgaður vígslu sinni og hrundið út úr kirkjunni. Festist fótur hans þá í dyragættinni og laskaðist svo, að hann bar þess menjar til dauðadags. Varð síra Ólafur að flýja hið bráðasta frá Laufási og hélt á laun suður um hálendið og komst siðan utan með hjálp góðra vina. Þegar biskupssaga Ólafs er könnuð, þá kemur i ljós, að við siðaskiptin lagði hann grundvöllinn að starfi lúterskrar kirkju í Hólastifti. Mun þáttur hans að undirbúningi menningarumsvifa Guðbrands Þorlákssonar hafa verið veigameiri en menn hafa löngum ætlað. Hann var trúrembætti sínu á erfiðu mótunarskeiði nýs siðar, en hirti aldrei um eigin hag og lést því snauður og slitinn i janúar árið 1569. Eftirmenn hans á biskupsstóli sinntu lítt um að halda á loft og heiðra minningu þessa hógværa, ættsmáa en gáfaða biskups, sem var vígður prestur af Gottskálk hinum grimma, en siðar bannsunginn af Jóni Arasyni og átti þá eftir sem biskup að veita Guðbrandi Þorlákssyni prestsvígslu. Hann var maður tveggja tima og ólikra siða, en stóðst þá þolraun með hljóðlátri reisn. B.G.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144

x

Tíðindi Prestafélags hins forna Hólastiftis

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíðindi Prestafélags hins forna Hólastiftis
https://timarit.is/publication/39

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.