Tíðindi Prestafélags hins forna Hólastiftis - 01.01.1984, Page 34
„Þeir prédika enn
með hljóðri bæn“
Ræða séra Péturs Sigurgeirssonar
við afhjúpun minmsvarða fyrstu kristniboðanna
hjá Gullsteim i Húnaþingi
Þegar þessi hátíðarstund er upp runnin, og minnisvarðinn
um fyrstu kristniboða á íslandi verður afhjúpaður af biskup-
inum, herra Sigurbirni Einarssyni, er rétt að fara nokkrum
orðum um tildrög verksins, og gerð minnisvarðans.
Þá er þar fyrst til að taka, að í byrjun árs 1978 gaf Jón H.
Þorbergsson að Laxamýri 100 þúsund gamlar krónur, er varið
skyldi til sjóðstofnunar í því skyni að reisa Þorvaldi viðförla og
friðriki biskupi minnismerki hér á söguslóðum þeirra í
Húnavatnsþingi í tilefni af þúsund ára afmæli kristniboðsins.
Hinn kunni bændahöfðingi og lýðháskólamaður, Jón H.
Þorbergsson, hafði margsinnis áður sýnt hug sinn til eflingar
kirkju og kristni í landinu með gjöfum sínum, og hann fylgdi
þeim eftir með bænarkrafti og trúarhita. Jón H. Þorbergsson
lagði fyrstur manna fram skerf sinn til þessa minnisvarða. Jón
andaðist í hárri elli 5. janúar 1979, níutíu og sex ára gamall.
Vil ég nú biðja viðstadda að votta minningu hans virðingu
og þökk með því að rísa úr sætum.
Stjórn Prestafélags hins forna Hólastiftis, sem fékk gjöfina
til varðveizlu og ávöxtunar kaus þriggja manna nefnd til þess
að fylgja málinu eftir. í nefndinni eru auk mín, séra Pétur
Ingjaldsson prófastur og bóndinn á Stóru-Giljá, Erlendur
Eysteinsson. Og hefur nefndin unnið að tilhögun og gerð