Tíðindi Prestafélags hins forna Hólastiftis - 01.01.1984, Blaðsíða 36
40
TlÐINDI
Minnisvarðinn er steyptur úr blágrýtismöl í Steinsmiðju
Sigurðar Helgasonar í Reykjavík. Varðinn er 2lÆ meter á hæð
og vegur 5 tonn. — Ragnar vann við að steypa minnisvarð-
ann og fylgdist með verkinu þar til það var fullunnið. —
Ragnar getur því miður ekki verið hér með okkur í dag, þar
sem hann veiktist af lungnabólgu í fyrri viku og liggur í
sjúkrahúsi en hér er á meðal okkar í dag er eiginkona hans
Katrín Guðmundsdóttir, tveir synir og tengdadóttir. Fyrir
hönd okkar þakka ég Ragnari og Sigurði Helgasyni forstjóra
mikið og vel unnið verk. Sigurður Helgason fylgdi minnis-
varðanum norður og sá um uppsetningu hans ásamt Erlendi
bónda á Stóru-Giljá.
Menn urðu sammála um að ætla steininum stað, þar sem
hann er nú niður kominn. Tvennt réði þar um, að hann væri
við alfaraleið og ekki langt frá Gullsteini, sem er tengdur sögu
kristniboðanna. Hér eru því í vissum skilningi komnir tveir
bautasteinar, og spölurinn milli þeirra eru spor þúsund ár-
anna.
Með þessum orðum er ekki öll forsagan sögð, um aðdrag-
anda þessarar hátíðar, því að á tímabili starfaði nefnd hér-
aðsfundar Húnavatnsprófastsdæmis að því að undirbúa þetta
stóra afmæli. Var það aðallega fyrir forgöngu séra Gísla Kol-
beins, er þá var prestur í Melstaðarprestakalli, en er nú
prestur í Stykkishólmi. Með honum í nefndinni voru Konráð
Eggertsson Haukagili og Guðrún Jónsdóttir Hnjúki. Meðan
þessi nefnd starfaði var uppi hin sama hugmynd um að reisa
kristniboðunum minnisvarða.
Stóra-Giljá kemur að vonum oftast við sögu, þar sem Þor-
valdur var borinn og barnfæddur, —en Gullsteinn og svæðið
hér umhverfis er í landi Kringlu sem er næsti bær. Bœndurnir
þar, Hallgrímur Kristjánsson og Reynir Hallgrímsson, veittu
góðfúslega leyfi sitt til þess að reisa minnismerkið í þeirra
landareign, — og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir það.
Minnismerkið er u.þ.b. 25metra frá miðju akvegar, og er í beinni
línu milli Gullsteins og Þingeyrakirkju.