Tíðindi Prestafélags hins forna Hólastiftis - 01.01.1984, Page 37
PRESTAFÉLAGS HINS FORNA HOLASTIFTIS
41
Um fjárhagshliðina er það að segja, að sjóðurinn, sem
upphaflega var 100 þúsund gamlar krónur hefir nú hundr-
aðfaldast, — og nemur nú 100 þúsund nýkrónum. Sjóðnum
hafa borist margar gjafir, sem of langt mál yrði upp að telja.
En sjóðurinn þarf ennþá að vaxa svo að hægt sé að greiða
allan kostnað við minnisvarðann.
Barmmerkið, sem er nákvæm mynd af minnismerkinu,
gerði Isspor í Reykjavík, — og ágóðinn af sölu þess rennur í
minnisvarðasjóðinn, og er nú á boðstólum í dag.
Minnisvarðinn rís hér á melnum til að segja á sínu máli,
það sem skrifað stendur:,, Verið minnugir leiðtogayðar, þeirra, sem
Guðs orð hafa tilyðar talað. . Steinninn á um aldur og ævi að
minna á frumvotta hins kristna siðar á Islandi, og tala þeirra
máli:
„Komið til hans, hins lifanda steins, sem að sönnu var útskúfað af
mönnum, er hjá Guði útvalinn og dýrmœtur. “
Að lokum þakka ég meðnefndarmönnum mínum í minn-
isvarðanefnd ágætt samstarf og hátíðarnefndinni allan und-
irbúning að þessum hátíðisdegi. Okkur er það mikil gleði að
biskup gat orðið við þeirri beiðni okkar að afhjúpa minnis-
varðann. Bóndanum á Stóru-Giljá, Erlendi Eysteinssyni,
þökkum við sérstaklega en á honum hefur mikið mætt und-
anfarna daga.
Um aldur og æfi munu Þorvaldur víðförli og Friðrik biskup
af Saxlandi vera hér á varðbergi í nýjum búningi. Þeir
prédika enn á sínu þögla máli í hljóðri bœn — fyrir þeim sem
um veginn fara.
„Nemið staðar við veginn og litist um og spyrjið um gömlu
göturnar, hver sé hamingjuleiðin, —og farið hana.“