Tíðindi Prestafélags hins forna Hólastiftis - 01.01.1984, Page 39
PRESTAFÉLAGS HINS FORNA HÓLASTIFTIS
43
Frá hátíðarsamkomunni við Gullstein.
í sögu hans segir, að hann hafi komið til Miklagarðs. Tók
sjálfur stólkonungurinn við honum með mikilli virðing og
veitti honum margar vinagjafir ágætar, ,,því að svo var Guðs
miskunn honum nákvæm, að hann var virðr ok vegsamaður
svá af minni mönnum, sem meirum.“
Þorvaldur víðförli lauk ævi sinni í klaustri austur þar, því er
við hann er kennt.
Nokkrir staðir og minjar minna oss á sögu þessa merka
manns og upphaf kristins dóms hér í sveit. Einn þeirra sögu-
minja er Gullsteinn, er hér blasir við augum. Hann hefir í
1000 ár verið sýnilegt tákn þeirra atburða, er vér minnumst í
dag.
Hér á þessum stað skyldi reyna með hinum nýja sið og
hinum forna átrúnaði. Sagan segir, að ármaður Koðráns
bónda, föður Þorvaldar, hafi átt sér bústað í steininum.
Stökkti biskup honum á brott með yfirsöng og steinninn gekk
í sundur. Varð það til þess, að Koðrán bóndi lét sannfærast
um mátt kristinnar trúar. Síðan tók hann og fólk hans allt trú