Tíðindi Prestafélags hins forna Hólastiftis - 01.01.1984, Síða 42
GUÐMUNDUR KR. GUÐNASON:
Islands þúsund ár
Sunnudaginn 28. júní 1981 var haldin sönghátíð á Akur-
eyri í tilefni þess að þúsund ár voru liðin frá því að boðuð var
kristin trú af þeim Þorvaldi víðförla og Friðriki biskup.
Sönghátíð þessi hófst með guðsþjónustu í Akureyrarkirkju
kl. 10:30 f.h. Prestar í Hólastifti hinu forna mættu hempu-
klæddir til guðsþjónustunnar, sr. Pétur Sigurgeirsson vígslu-
biskup Hólabiskupsdæmis prédikaði og kirkjukór Akureyrar-
kirkju söng undir stjórn Jakobs Tryggvasonar organleikara
sem lék á orgelið af sinni alkunnu snilld. Það skal tekið fram,
að við guðsþjónustuna var í fyrsta sinn sunginn sálmur eftir sr.
Pétur Sigurgeirsson vígslubiskup, ortur í tilefni þessarar
hátíðar. Fjölrituð hafði verið skrá yfir sálmana sem sungnir
voru við guðsþjónustuna og var henni útbýtt meðal kirkju-
gesta. Upphaf sálmsins var „Nú ári fagnar öll vor byggð“.
Aðrir sálmar voru sem hér segir: „Nú gjaldi Guði þökk“,
„Fyrst boðar Guð sitt blessað náðarorðið“, „Beyg kné þín, fólk
vors föðurlands“, „Ó, þú Guðslamb Kristur“, ,Jesús, sem að
dauðann deyddir“ og „Son Guðs ertu með sanni“.
I guðsþjónustunni var altarisganga og voru margir sem
gengu til Guðs borðs. Það skal tekið fram að kirkjugestir tóku
undir sönginn enda sóngfólk úr kirkjukórasamböndum
Hólastiftis.
Er guðsþjónustunni var lokið fóru kirkjugestir niður á
veitingahús til að fá sér hressingu enda veitti ekki af, því að
flestir voru komnir langt að og höfðu farið að heiman snemma
morguns. Afgreiðslan gekk fremur seint, enda ekkert undar-
legt þar sem afgreiða þurfti svo margt fólk og var tvöföld
biðröð alveg út úr dyrum og ef vel hefði verið, þá hefði þurft
að vera búið að panta með nokkrum fyrirvara. Allt söngfólkið