Tíðindi Prestafélags hins forna Hólastiftis - 01.01.1984, Síða 44
48
TlÐINDI
af Jóni Þórarinssyni, en textann þýddi dr. Sigurbjörn Einars-
son biskup, söngstjóri var Sigrún Grímsdóttir.
Næst sungu kirkjukórar Þingeyjarprófastdæmis „Eg kveiki
á kertum mínum“ eftir Pál Isólfsson og Davíð Stefánsson,
söngstjóri var Friðrik Jónsson, og „Andi Guðs mér virstu vísa“
í raddsetningu J. S. Bach, söngstjóri var frú Sigríður Schiöth.
Þá söng kirkjukór Skagafjarðarprófastdæmis, en það var
kirkjukór Sauðárkrókskirkju. Kórinn söng þessi lög: „Heyr
himnasmiður“ eftir Jón Björnsson og Kolbein Tumason, og
„Ave verum corpus“ eftir W. A. Mosart, söngstjóri var Jón
Björnsson frá Hafsteinsstöðum, en undirleikari var Guð-
mundur Jóhannsson.
Því næst sungu kirkjukórar Eyjafjarðarprófastdæmis. Lög-
in voru: „Lofsyngið Drottni“ e. G. F. Hándel og V. V.
Snævarr, söngstjóri var Guðjón Pálsson Siglufirði. „Syng
Guði dýrð“ e. Björgvin Guðmundsson og Tómas Guðmunds-
son, söngstjóri var Áskell Jónsson, en undirleikarar Jakob
Tryggvason á píano og Haukur Guðlaugsson á harmoníum.
Þá flutti Haukur Guðlaugsson söngmálastjóri ávarp. Síðan
sungu allir kirkjukórarnir sameinaðir (um 500 manns) eftir-
talin lög: „Slá þú hjartans hörpustrengi“ radds. J. S. Bach, en
texti e. Valdimar Briem. Söngstjóri var Jakob Tryggvason, en
undirleik annaðist Strengjasveit Tónlistarskólans á Akureyri
og Gyða Halldórsdóttir á harmoníum. „Dýrð í hæstum hæð-
um“ e. Björgvin Guðmundsson, en texti e. sr. Friðrik Frið-
riksson, söngstjóri var Helgi S. Ólafsson Hvammstanga.
„Hvað er það ljós, sem lýsir fyrir mér“ e. Bjarna Böðvarsson,
en texti e. Matthías Jochumsson, radds. Þorkell Sigurbjörns-
son, söngstjóri var Þráinn Þórisson. Þá flutti Guðmundur Ó.
Guðmundsson bæn. Sr. Pétur Þórarinsson flutti hugleiðingu
og blessunarorð. Að síðustu sungu allir kórarnir þjóðsönginn
„Ó, Guð vors lands“ e. Sveinbjörn Sveinbjörnsson og M.
Jochumsson, söngstjóri var Jón Björnsson.
Var þá lokið þessu ánægjulega söngmóti í tilefni kristni-
boðsársins.