Tíðindi Prestafélags hins forna Hólastiftis - 01.01.1984, Side 48
MARGRÉT HRÓBJARTSDÓTTIR:
Upphaf, stofnun og starf
Sambands ísl. kristniboðsfélaga
í kristilega málgagninu Bjarmi, skrifar Bjarni Eyjólfsson,
ritstjóri, um upphaf og stofnun Sambands ísl. kristniboðsfé-
laga, í tilefni af 40 ára afmæli þess 1969. Þar segir: „Á fundi í
Kristniboðsfélagi karla í Reykjavík, þann 13. maí 1929, bar sr.
Sigurbjörn Á. Gíslason upp svohljóðandi tillögu: „Fundurinn
samþykkir að kosin verði nefnd manna til að semja lög og
verkefnaskrá fyrir væntanlegt Samband ísl. kristniboðsfélaga
og að þess sé farið á leit við önnur kristniboðsfélög hér á landi
að gjöra slíkt hið sama.“ Þessi tillaga var samþykkt og ritara
falið að tilkynna hana hinum kristniboðsfélögunum.
Kristniboðsfélag kvenna, sem er elsta kristniboðsfélag á
íslandi, stofnað 1904, kaus einnig undirbúningsnefnd, fáein-
um dögum síðar, — og svör komu frá kristniboðsfélögum í
Hafnarfirði, á Vatnsleysuströnd og á Akureyri.“
Bjarni heldur áfram og segir: „Segja má, að raunveruleg
tildrög að hreyfingunni um að stofna Samband ísl. kristni-
boðsfélaga hafi verið sá áhugi sem vaknaði við komu Ólafs
Ólafssonar, kristniboða, er hann kom heim i hvíldarleyfi frá
Kína og ferðaðist hér um land 1928. Upp frá því ferðalagi
voru stofnuð kristniboðsfélög á nokkrum stöðum, þar sem
ekki höfðu verið félög áður. Voru þar á meðal félög utan
Reykjavíkur, svo sem Kristniboðsfélag karla á Akureyri.
Kristniboðsfélag kvenna á Akureyri var stofnað fyrr, eða 1.
nóv. 1926. Gerðist það félag aðili að kristniboðssambandinu
18. ág. 1929. Kristniboðsflokkurinn „Frækornið“, var stofn-