Tíðindi Prestafélags hins forna Hólastiftis - 01.01.1984, Qupperneq 50
54
TlÐINDI
Var þar með formlega gengið frá stofnun Sambands ísl.
kristniboðsfélaga og myndun fyrstu stjórnar þess.
Fyrsti kristniboðinn.
Olafur Ólafsson hefur algera sérstöðu í sögu íslenzks
kristniboðs. Hann er fyrstur íslendinga, sem fer til kristni-
boðsnáms og síðan til starfs úti á heiðingjaakrinum og
studdur er af íslenzku kristniboði. Segja má, að raunverulegt
ísl. kristniboð hefjist með Ólafi Ólafssyni. Stofnun SÍK er
beinlínis sprottin upp vegna starfs hans.
Ólafur hefur sjálfur sagt svo frá, að hann hafi verið staddur
í kirkju í heimabyggð sinni í Borgarfirði á hvítasunnudag, er
sú vissa fyrst kom til hans, að hann ætti að fara til heiðingj-
anna og gjörast kristniboði. Hann vissi ekkert hvert hann ætti
að snúa sér, því hann þekkti ekkert til þessara mála frekar en
aðrir hér á landi þá. Þó hafði hann heyrt um útgefanda
Bjarma, sr. Sigurbjörn Á. Gíslason, sem myndi þekkja betur
til kristilegrar starfssemi allrar, en flestir aðrir hér á landi. Fór
Ólafur til hans og leitaði ráða hjá honum.
Seinna fór Ólafur til Siglufjarðar og komst þar í kynni við
norska sjómannatrúboðið og starf þess. Þar kynntist hann og
norskum skipstjóra, sem heyrði um kristniboðsköllun Ólafs.
Fór svo, að maður þessi, er var skipstjóri á síldveiðiskipi, tók
Ólaf með sér til Noregs og kom honum á kristilegan æsku-
lýðsskóla 1915. Varð hann mesti velgjörðarmaður Ólafs og
hjálpaði honum til frekara náms. Fór Ólafur síðan á Kristni-
boðsskólann á Fjellhaug í Osló, og má segja, að þá hafi örlög
hans verið ráðin.
Meðan Ólafur var við nám á kristniboðsskólanum, skrifaði
Ólafía Jóhannsdóttir, sem þá var við sitt alkunna starf i Osló,
heim til íslands og sagði frá þessum unga manni. Hvatti hún
til þess, að ísl. kristniboðsvinir styddu hann eftir fremsta
megni. Varð það til þess, að konurnar í Kristniboðsfélagi
kvenna í Reykjavík tóku að fylgjast með þessum unga Is-
lendingi.