Tíðindi Prestafélags hins forna Hólastiftis - 01.01.1984, Side 70
74
TlÐINDI
fluttu erindi þau frú Gerður Pálsdóttir, Hrafnagili, Sigurður
Pétur Björnsson, Húsavík, séra Guðni Þór Ólafsson, Melstað,
og séra Vigfús Þor Árnason, Siglufirði. Öll voru erindin fróð-
leg mjög og leiddu til fjörugra umræðna, þar sem margt kom
fram. Hver dagur hófst og endaði með helgistund í Hóla-
dómkirkju, en á laugardagskvöldi var fjölbreytt kvöldvaka í
skólahúsinu.
Á þessu námskeiði var leikmönnum skipt í 5-6 manna hópa,
sem mynduðu „sóknarnefndir“. Skiptu nefndarmenn með sér
verkum og kusu a.m.k, formann og ritara. „Sóknarnefndirn-
ar“ héldu síðan fundi þar sem ráðið skyldi fram úr þeim
málum, sem hver um sig fékk til úrlausnar. Prestarnir á
námskeiðinu gengu á milli sóknarnefndafunda, fylgdust með
og veittu upplýsingar og ráð. Á sameiginlegum fundi greindi
síðan formælandi hverrar „sóknarnefndar“ frá gangi mála í
sinni nefnd og afgreiðslu þeirra. Leiddi það til enn frekari
umræðna um málin og úrlausnirnar.
Þetta fyrirkomulag, að skipta þátttakendum í hópa „sókn-
arnefndir“, fannst okkur stórgott og lærdómsríkt. Kom þá
m.a. mjög vel í ljós með hve ólíkum hætti sóknarnefndar-
fundir eru víða haldnir. Ég tel að nýta skuli slíkt hópstarf á
komandi námskeiðum Leikmannaskólans þegar því verður
frekast við komið. Það er hvetjandi til enn virkari þátttöku
hvers og eins.
Námskeiðinu lauk með hátíðaguðsþjónustu í Hóladóm-
kirkju þar sem séra Bolli Gústafsson predikaði, en organisti
var frú Anna Einarsdóttir, prestsfrú á Hólum.
Ég flyt Prestafélagi Hólastiftis bestu þakkir fyrir að standa
að hinu ágæta starfi Leikmannaskólans að Hólum og hvet
starfsmenn kirkjunnar, leika og lærða, til þátttöku.
Gunnlaugur P. Kristinsson.