Tíðindi Prestafélags hins forna Hólastiftis - 01.01.1984, Page 84
SR. ÁRNI SIGURÐSSON:
Aldarafmælis Þingeyrakirkju
í Húnaþingi minnst
Sunnudagur 10. júní 1979. Gagnger viðgerð hefir nú farið
fram á Þingeyrakirkju í Húnaþingi. Kirkjan, sem er aldar-
gömul, reist á árunum 1864-1877, er ein af elstu steinbygg-
ingum landsins. Hún er hlaðin úr íslensku grjóti, er ekið var á
ís yfir Hópið, er skaflajárnaðir uxar drógu, vestan úr svo
kölluðum Ásbjarnarnesbjörgum.
Aðalhvatamaðurinn að kirkjubyggingunni var Ásgeir Ein-
arsson, bóndi og alþm. á Þingeyrum. Kirkjunni var valinn
staður á hæð norðvestur við Þingeyrabæinn, þannig að hún
sést úr 7 hreppum sýslunnar.
Yfirsmiður við kirkjusmíðina var Sverrir Runólfsson,
steinhöggvari úr Reykjavík, og telja má nokkuð öruggt, að
hann hafi gert uppdrætti að kirkjunni. Innréttingar í kirkjuna
mun hafa smíðað Þorgrímur Austmann, kunnur kirkjusmiður
úr Breiðdal eystra, sem hafði numið erlendis. Við tréverk
vann m.a. Friðrik Pétursson, trésmiður en hann málaði kirkj-
una að innan. Hann var faðir sr. Friðriks Friðrikssonar,
æskulýðsleiðtogans mikla.
Kostnaður við kirkjusmíðina var um 16 þús. kr. þar af
greiddi Ásgeir Einarsson úr eigin vasa 10 þús. kr. í kirkjusjóði
voru 6 þús. kr. Til hliðsjónar má benda á, að í fyrstu fjárlögum
íslendinga, sem Alþingi samþykkti og tóku yfir árin 1876 og
1877 voru útgjöld áætluð 450 þús. kr.
Kirkjan sem er í rómönskum stíl, er með þriggja feta þykk-
um veggjum, 5 bogagluggum á hvorri hlið og hundrað rúðum
í hverjum glugga. Hvelfingin er með 1000 gylltum stjörnum.
Margt dýrmætra gripa prýða kirkjuna, svo sem altarisbrík