Tíðindi Prestafélags hins forna Hólastiftis - 01.01.1984, Page 86
90
TlÐINDI
Þingeyrakirkja.
sóknarnefndar til kirkjunnar. Biskup Islands, herra Sigur-
björn Einarsson, predikaði en sóknarpresturinn, sr. Árni Sig-
urðsson, þjónaði fyrir altari, ásamt sr. Pétri Þ. Ingjaldssyni,
prófasti á Skagaströnd og sr. Hjálmari Jónssyni á Bólstað.
Kirkjukór Þingeyrakirkju söng undir stjórn Sigrúnar Gríms-
dóttur, organista.
Að guðsþjónustunni lokinni, flutti Guðrún Jónsdóttir,
arkitekt erindi um Þingeyrakirkju. Gat hún að nokkru bygg-
ingarsögu kirkjunnar og þeirrar lagfæringar, er fram hefir
farið undanfarið.
Síðan fór fram hátíðarsamkoma í Flóðvangi, þar sem
sóknarnefnd Þingeyrasóknar bauð öllum kirkjugestum til
kaffisamsætis.
Sóknarpresturinn, sr. Árni Sigurðsson, flutti ávarp og
minntist m.a. Ásgeirs Einarssonar, bónda og alþm. á Þing-
eyrum, er var frumkvöðull og aðalhvatamaður að kirkju-
byggingunni, svo og þeirra, er komið hafa mest við sögu