Tíðindi Prestafélags hins forna Hólastiftis - 01.01.1984, Page 92
96
TlÐINDI
Svínavatnskirkja 100 ára
Á árinu 1981 var Svínavatnskirkja 100 ára. Hún var ann-
exía frá Auðkúlustað en þar var prestssetur fram til ársins
1951. Svínavatnskirkja er helguð Pétri postula. Kirkjubóndi á
Svínavatni, Helgi Benediktsson, lét byggja kirkjuna og fékk
hann til verksins Friðrik Pétursson, föður séra Friðriks hins
alkunna æskulýðsleiðtoga og stofnanda KFUM.
Vel var til kirkjunnar vandað í upphafi og þótti hún með
reisulegri kirkjum í sveitum landsins. Kirkjan er timburkirkja
á hlöðnum grunni, fögur og stílhrein bygging. Kirkjan er
annars einkar látlaus ekki margt um gamla muni, en predik-
unarstóllinn er talinn vera úr gömlu kirkjunni á Svínavatni.
Árið 1948 afhenti eigandi kirkjunnar, Ingibjörg Ólafsdóttir
á Svínavatni, hana söfnuðinum til eignar og varðveislu.
Árið 1966 var haldinn aðalsafnaðarfundur hinn 10. nóv-
ember. Var fundarefni ákvörðun um framtíð kirkjunnar á
Svínavatni. Hún hafði þá mjög látið á sjá og þurfti gagngerrar
viðgerðar við. Sömu sögu var að segja um Auðkúlukirkju, hún
var orðin næsta hrörleg. Höfðu komið upp raddir um það að
skynsamlegast væri að sameina sóknirnar og reisa síðan eina
kirkju nýja. Urðu á fundinum fjörugar umræður og var
næstum einhugur um að láta gera við kirkjuna hið fyrsta og
gerðist það á skömmum tíma. Menn máttu ekki til þess hugsa
að hún hyrfi af yfirborði jarðar. Var viðgerðlokið á árinu
1970.
Safnaðarlíf og kirkjusókn á Svínavatni er hvort tveggja í
ágætu lagi. Fyrir nokkrum árum ákvað söfnuðurinn að skipta
með sér hirðingu kirkjugarðsins. Hefur verið svo síðan, að
tveir bæir sjá um það á ári hverju að slá garðinn og halda við
girðingu og öðru sem unnt er að varðveita þó hinu verði ekki
forðað að „legsteinninn springur og letur hans máist í vind-
um.“
Hjálmar Jónsson.