Tíðindi Prestafélags hins forna Hólastiftis - 01.01.1984, Page 100
104
TlÐINDI
Frá Reynistaðarkirkju
Á s.l. áratug var ýmislegt gert til viðhalds og umbóta á
kirkjunni. Hún er úr timbri og rúmlega 100 ára gömul. Byrjað
var á að endurnýja þakið. Skipt var um járn og timbur-
klæðningu undir því. Flestir gluggarnir voru endurnýjaðir og
allt tréverk, sem fúi fannst í. Festingar í grunni voru einnig
endurnýjaðar þar sem þörf var á. Þá var kirkjan máluð utan
og innan. Kvenfélag Staðarhrepps gaf teppi á gólf og tvær
ljósakrónur og veggljós. Síðar voru bekkir stoppaðir með
svampi og ullarklæði. Rafstrengur til kirkjunnar var lagður í
jörð, en hafði áður verið festur í turninn. Þess er gætt við allar
viðgerðir, að upphafleg gerð kirkjunnar haldist óbreytt. Ekki
hafa sóknargjöld nægt til að standa undir kostnaði við þessar
framkvæmdir, en kirkjunni hafa borizt peningagjafir og
minningarkort Reynistaðarkirkju, sem prentuð voru árið
1979, hafa verið kirkjunni mikill fjárhagslegur styrkur.
Árið 1974 var kirkjunni gefinn skírnarfontur útskorinn í tré.
Jón Sigurjónsson, bóndi í Ási í Hegranesi, gaf hann til minn-
ingar um foreldra sína Björgu Runólfsdóttur og Sigurjón
Jónsson og föðursystur sína Guðrúnu Jónsdóttur.
Fyrir tveimur árum var hafizt handa við að lagfæra
kirkjugarðinn. Hefur hann verið sléttaður að mestu leyti og
birkiplöntur hafa verið gróðursettar meðfram girðingunni
umhverfis garðinn til skrauts og skjóls. Ekki er þessum fram-
kvæmdum að fullu lokið. Áður en hafizt var handa um slétt-
un garðsins, var hann kostlagður. Síðan hefur merktum leið-
um fjölgað og áhugi fólks fyrir að fegra og prýða garðinn
stóraukizt.
Sóknarnefnd.