Tíðindi Prestafélags hins forna Hólastiftis - 01.01.1984, Side 108
112
TlÐINDI
í fyrstu var ætlunin að gefa út lítið afmælisrit vegna tíma-
mótanna.
Vegna áhuga ágætra fræðimanna og sögumanna hér á
staðnum, fór svo að til varð myndarleg bók. A bókarkápu
segir: „I bók þessari er rakin kirkjusaga Siglufjarðar og sagt
frá kirkjubyggingunni, árið 1932. Þá er getið hinna ýmsu
þátta kirkjulega starfsins, birtar endurminningar sex Siglu-
fjarðarpresta og skrá um eignir kirkjunnar. Bókin er á fjórða
hundrað síður, prýdd mörgum tugum mynda. Greinahöf-
undar eru tuttugu,“ en ritstjóri var Páll Helgason.
Komu ,,heim“ um langan veg.
Það sem m.a. setti sterkan svip á fimmtíu ára vígsluafmælið
á sl. ári, var koma jafnaldra kirkjunnar til staðarins vegna
hátíðarinnar. „Árgangur 32“ eins og hópurinn nefndi sig er
fæddur og skírður á vígsluári kirkjunnar. Hópurinn var um
sjötíu í upphafi, en fimmtíu af þeim lögðu leið sína til Siglu-
fjarðar til að fagna jafnaldra sínum, Siglufjarðarkirkju. Sum
þeirra töldu það ekki eftir sér að leggja leið sína heim, alla leið
frá Svíþjóð, Kanada og Bandaríkjunum. Áttu þau öll hér
„heima“ í firðinum einstaka stund, sem þeim mun seint líða
úr minni, svo að notuð séu þeirra eigin orð. Koma þeirra og
fimm fyrrverandi sóknarpresta staðarins setti sinn svip á um-
rædda hátíð. Hópurinn færði kirkjunni gjöf, sem er málverk
af sr. Óskari J. Þorlákssyni, en hann fermdi hópinn á sínum
tíma. Málverkið er eftir Siglfirðinginn Ragnar Pál.
Kirkjunni bárust margar höfðinglegar gjafir á hátíðinni,
m.a. altari, kross á altarið, veggteppi handofið af Sólveigu
Steinþórsdóttur Eggen og forkunnarfögur mosaikmynd eftir
Höllu Haraldsdóttur listakonu, en hún er ættuð frá Siglufirði.
Listaverkið nefnir hún „Bæn“. Frá félögum ber þar fyrst að
nefna framlag Systrafélagsins, Kvenfélagsins Von og Lions-
klúbbs Siglufjarðar. Sinawiksystur snyrtu og fegruðu allt
umhverfi kirkjunnar fyrir hátíðina.