Tíðindi Prestafélags hins forna Hólastiftis - 01.01.1984, Side 111
PRESTAFÉLAGS HINS FORNA HÓLASTIFTIS
115
Merkisatburðir í sögu
Möðru vallakirkj u
Hinn 15. júní árið 1980 var fjölmenni saman komið á
Möðruvöllum i Hörgárdal. Tilefnið var að minnast þess að
eitt hundrað ár voru liðin frá því Möðruvallaskólinn tók til
starfa en hann var fyrsti gagnfræðaskólinn í landinu og for-
veri Menntaskólans á Akureyri, eins og kunnugt er. Á vegum
skólans voru mikil hátiðahöld vegna afmælisins og tengdust
þau skólaslitum. Hófust þau með hátíðarathöfn í Möðru-
vallakirkju fyrrnefndan dag, þar sem forseti íslands, dr.
Kristján Eldjárn flutti ræðu, sem var eitt hans síðasta verk í
embætti, en dr. Kristján hafði einnig um tíma verið kennari
við Menntaskólann á Akureyri. Steindór Steindórsson, fyrr-
verandi skólameistari, rakti sögu Möðruvallaskólans en und-
irritaður leiddi þessa hátíðarstund með hugleiðingu og bæn.
Þessi athöfn á Möðruvöllum var viðstöddum minnisstæð.
Hún treysti böndin við söguna og minnti á þá þakkarskuld
sem samtíðin er í við brautryðjendur skóla- og menntamála
hérlendis. En einstök veðurblíða þennan dag átti sinn þátt í
því hve vel tókst til. Kirkjan var fullsetin en hún rúmar á
þriðja hundrað manns og álíka fjöldi kom sér fyrir utandyra
eða í kirkjugarðinum og fylgdist með athöfninni gegnum há-
talara. — Fór vel á að minnast þessara tímamóta í kirkjunni,
því að hún stóð öll þau ár sem skólinn starfaði á Möðruvöllum
og tengdist mjög sögu hans. Aðeins ein bygging önnur stendur
enn frá tið skólans, en það er hluti „Leikhússins“ gamla, sem
stendur vestur af kirkjunni handan götunnar.
Liðlega einu ári eftir skólahátíðina, eða að morgni 14. júlí
1981, var önnur nokkuð sérstæð athöfn í Möðruvallakirkju.
Hún var í tengslum við opinbera heimsókn forseta Islands, frú