Tíðindi Prestafélags hins forna Hólastiftis - 01.01.1984, Page 114
118
TlÐINDI
kirkja 110 ára. — Af góðum gripum sem kirkjunni bættust á
seinni árum má einnig nefna: Sálmabókahillur, kross á altari,
blómavasa, altarisdúk, hökul, heklaða dúka o.fl., sem allt
voru minningargjafir, en með sölu jólakorts með mynd af
Möðruvöllum frá síðustu aldamótum var tekna aflað til
kaupa á sálmabókum og annars efnis fyrir kirkjukórinn og
barnastarfið. — Enn er ástæða til að geta um sérstaka fjár-
söfnun vegna viðgerða á bekkjum kirkjunnar en nýjar bakslár
og áklæddar setur voru settar á alla bekki, til mikilla þæginda
fyrir kirkjugesti og prýði. Síðast en ekki síst er svo ástæða til að
geta um og þakka þá miklu vinnu sem margt sóknarfólk lagði
fram við þessar viðgerðir og endurbætur og aðrar sem
ónefndar eru, svo sem málningu á kirkjunni að utan, sem
lokið var 1980 eða við kirkjugarðana og umhverfi kirkjunnar.
Auk þess hafa sjálfboðaliðar safnast saman eina eða tvær
kvöldstundir á sumri til að slá og hirða garðana og voru þær
samverustundir oft fjölmennar og hinar ánægjulegustu.
Af framansögðu má ljóst að Möðruvallakirkja á marga vel-
unnara, marga sem láta sér annt um ástand hennar og útlit.
Er það vel, ekki síst þegar haft er í huga að æ fleiri ferðalangar
hafa sótt hana heim á seinni árum. Kirkjan er í sjálfu sér hið
ágætasta guðshús og ber vitni stórhug og myndarskap á þeim
tíma þegar hún var reist. En hún stendur líka i órofa tengslum
við sögu Möðruvalla í Hörgárdal. Sem elsta bygging á staðn-
um tengir hún nútíð við fortíð. Hún rifjar upp sögu klausturs
og munklífs á fyrri tíð. Hún minnir á þjóðkunn skáld og
stjórnmálamenn, sem gerðu garðinn frægan. Hún á upphaf
sitt á þeirri tíð þegar Möðruvellir voru landsþekkt amt-
mannssetur og síðar skólasetur. Segja má því að tvíþættur
vandi sé lagður á herðar þeim sem eiga að annast varðveislu
og viðhald slíkra húsa og sannarlega þakkarefni þegar vel er
að verki staðið. — Fyrrnefndar hátíðarstundir munu líka
geymast í minningunni og verða þáttur í merkri sögu
Möðruvallakirkju þegar frá líður.
Sr. Þórhallur Höskuldsson.