Tíðindi Prestafélags hins forna Hólastiftis - 01.01.1984, Síða 123
PRESTAFÉLAGS HINS FORNA HÖLASTIFTIS
127
Safnaðarheimili
á Svalbarðsströnd
Þann 30. nóvember 1983 vígði sr. Sigurður Guðmundsson
vígslubiskup nýtt safnaðarheimili við Svalbarðskirkju í
Laufássprestakalli.
Þegar hin veglega kirkja á Svalbarði var byggð á árunum
1952-’57, þá var reist útbygging til norðurs frá kórnum.
Grunnflötur hennar er 44 m2. Bygging þessi var hólfuð með
steinveggjum í margar litlar vistarverur, sem nýttust lítt eða
ekkert. Ákveðið var á 25 ára afmæli kirkjunnar að breyta
þessu húsnæði í safnaðarheimili. Vorið 1983 hófust sóknar-
menn handa og fjarlægðu öll skilrúm úr útbyggingunni. Var
síðan innréttaður vistlegur salur, sem rúmar vel 40 manns,
eldhús og snyrtiherbergi. Salurinn hefur nú verið búinn
vönduðum og smekklegum húsgögnum og eru aðstæður allar
til fyrirmyndar. Margir hafa verið örlátir á fjármuni og góðar
gjafir til þessa fyrirtækis, og sóknarmenn ýmsir lagt hönd að
framkvæmdum. Sóknarnefndarformaður, Kjartan Magnús-
son á Mógili, hafði umsjón með verkinu.
Við vígslu safnaðarheimilisins prédikaði sr. Sigurður Guð-
mundsson vígslubiskup, en sr. Kristján Róbertsson á Hálsi og
sr. Bolli Gústavsson í Laufási þjónuðu fyrir altari. Vígslu-
vottar voru, auk sóknarprests, sóknarnefndarmennirnir,
Kjartan Magnússon á Mógili og Þóranna Björgvinsdóttir í
Leifshúsum, og Sigmar Benediktsson safnaðarfulltrúi. Eftir
vígsluathöfnina var samkoma í kirkjunni. Þar rakti Kjartan
Magnússon 25 ára sögu kirkjunnar, Hjörtur Pálsson dags-
skrárstjóri flutti bernskuminningar tengdar Svalbarðsströnd
og kirkjukórinn söng undir stjórn Gígju Kjartansdóttur, sem
jafnframt lék einleik á hið vandaða pípuorgel kirkjunnar.