Alþýðublaðið - 15.02.1927, Qupperneq 1
©efiH út af Alpý^EBflelckMiim
1927.
Þriðjudaginn 15. febrúar.
38. tölublað.
Kaupdeilan.
Aðdragandi hennar er sá, að
undan farna mánuði hafa staðið
yfir samningatilraunir um kaup-
taxta milli verkamannafélagsins
„Dagsbrúnar“ og „Félags íslenzkra
botnvörpuskipaeigenda“. Síðasta
'samningstilboð af hendi þess fé-
lags var, eins og þegar hefir ver-
ið getið hér í blaðinu, kr. 1,18 í
dagvinnu, kr. 2,00 í eftir- og helgi-
dagavinnu og kr. 2,25 í nætur-
vinnu. Feldi verkamannafélagið
„Dagsbrún" það tilboð. Togara-
vinna er miklu erfiðari og níðir
föt miklu meira en vinna við
verzlunarskipin, en við eimskipa-
félögin hafa þegar verið gerðir
samningar, og greiða þau kr. 1,20
stundakaup fyrir dagvinnu, fyrir
eftirvinnu kr. 2,00 og fyrir nætur-
og helgidaga-vinnu kr. 2,50. Á-
kvað verkamannafélagið „Dags-
bxún“ nú einnig að halda ó-
breyttum taxta sínum vúð togara-
vinnu, þann, sem það áður hefir
auglýst, sem er kr. 1,25
stundakaup við dagvinnu, kr. 2,00
fyrir eftirvinnu fram til kl. 9 að
kvöidi og kr. 2,50 fyrir helgidaga-
og nætur-vinhu.
Dtgerðarmenn hafa nú tekið á
þann veg í þessa samþykt verka-
manna, að þeir hafa sjálfir aug-
lýst kauptaxta, er þeir muni
greiða, og er hann kr. 1,20 fyrir
hverja dagvinnustund, en á eftir-
vinnu eða nætur- og helgidaga-
virinu hafa þeir alls ekki minst.
Þessi kauptaxti gildir af útgerð-
Jarmanna hendi um ótiltekinn tíma,
bg getur félag þeirra lækkað hann
eða breytt honum eftir geðþófta
án nokkurrar íhlutunar af hendi
verkamannafélagsins. Það getur
ekki hjá því farið, að útgerðar-
menn hafi hlotið að vita, að þeir
voru að stofna til kaupdeilu með
því að samþýkkja þennan taxta,
því að það var auðvitað, að
verkamenn gátu ekki gengið að
slíkum taxta, sfem útgerðarmenn
settu einhliða eftir eigin vild.
Með því væri ákvörðun verka-
mannakaups runnin aiveg úr
höndum verkamanna sjálfra og
komin algerlega yfir í hendur út-
gerðarmanna. En svo mýndi auk
þess, þar sem útgerðarmenn eng-
an kauptaxta hafa ákveðið fyrir
eftir- og nætur-vinnu, verh hverj-
um þeirra í lófa lagið að greiða
hana með því kaupi, sem hann
gæti knúið fram lægst við hvern
einstakling.
Frekari samninga en hér greiriir
hefir félag útgerðarmanna ekki
boðið, og stöðvaði því stjórn
verkamannafélagsins vinnu við
HBKiiBaaaifli Bsn&ææaiaiH
iNýkomiðj
mikið úrval af sfúfa«zÍFS«
um mjög góðum. Gard~
ínutau afar-ódýr. Til búin
sængumr. Koddaver.
Hvitar og mislitar svumtur.
Verðið sangjarnt eins og
vant er.
f
tm
wm
J
|
Verzl. (íunnlJÓFumar&Co.
iii
Sími 491.
œaBi ne^
ill
j
i
IJ
Glímuféi. Ármann.
Fundur verður haldinn í Iðnó í
kvöld kl. 9 e. h.
Félagar fjölmennið!
Stjórnin.
Kjorskrá
til alþingiskosninga
í Reykjavik,'
er gildir fyrir tímabilið 1.
júlí 1927 til 30. júní 1928,
liggur frammi almenningi
til sýnis í skrifstofu Bæj-
argjaldkera, Tjarnargötu 12,
frá 1. til 14. marz næst
komandi að báðum dögum
meðtöldum.
Kærur yfir kjörskránni, séu
komnar til borgarstjóra eigi
síðar en 21. marzn. k.
Borgarstjórinn í Reykjavik,
15. febrúar 1927.
K. Zimsen.
togarann „Geir“ hér í gærmorg-
un, en hann var síðan látinn fara
til Hafnarfjarðar. Hann verður
væntanleiga í samúðarskyni stöðv-
aður jDar af hafnfirzkum verka-
mönnum. Togarinn „Gylfi“ kom
og hér í morgun til þess að taka
js og láta í land grút. Var leyft
að afgreiða hann, því að skipstjóri
ábyrgðist að þeim fáu verka-
mönnum, sem við þá vinnu voru,
yrði greitt kaup eftir taxta verka-
manna með kr. 1,25 um klukku-
stund.
Þannig stendur máliö nú, en
allir verkamenn eru samtaka um,
Leikffélag Keykjaviknr.
Mnnkarnir ð Möðrnvðllum.
Sjónleikur í 3 þáttum,
eftir ííavíð Sfcíánsson frá Fagraskógi.
Lotj eftir Emll Thoroddsen.
Leikið verður í Iðnó miðvikudaginn 16. þ. m. kl. 8 síðd.
Aðgöngnmiðar seldir í Iðnó í dag frá kl. 4 til 7 og á morgun frá
kl. 10 tíl 12 og eftír kl. 2.
Leikhúsgestir eru beðnir að mæta stundvíslega.
Sími 12. V Sími 12.
Postulfnsbollapðr frá 0.45,
Matardlskar misl. frá 0.50.
Leir- og postulíns-vörur ódýrastar hjá
K. Einarsson 1 Björnsson,
Baakastræti 11.
KaQpfélag Reykvíkinga.
Adalfiindur
félagsins verður haldinn í kaupþingssalnum * í Eim-
skipafélagshúsinu sunnudaginn 20. p. m.
og hefst kl. 5 síðdegis.
Dagskrá samkvæmt lögum félagsins.
Reykjavík, 14. febrúar 1927.
Stjórnin.
ÚTSALAN Mnr áfram!
Óheyrilega lágt verð á alls konar áteiknuðum vörum t. d: Púðar
stórir og fallegir á 3,00. Dúkar á 2,50.
Nýkomið Flosgarn í 60 litum, og Rúskinn í 10 litum og margt fleira.
Unnur Ólafsdóttir,
Bankastræti 14. Sími 590.
að láta ekki útgerðármenn ein-
ráða urn það, hvaða kaupgjald sé
greitt hér við höfnina. AlmenUí
ingur hér í bæ sér það vel, að
það er dnkar-ósanngjarnt, að
vilja draga af kaupi verkamanna,
sem fást við jafn-erfiða og óþrifa-
lega, vinnu og togaravinnan er.
Þrið sjá og allir, að það getur ekki
verið kaupgjaldshæðin, sem út-
gerðarmönnunum brennur í aug-
um, jrnr sem þeir senda togar-
ana á aðrar hafnir, sem þó verð-
ur jreim margfalt dýrara, og að
það eitt hlýtur að vera tilgangur-
inn, að lirifsa úr höndum verka-
manna eðlilegan og sjálfsagðan
íhlutunarrétt þeirra um það, hvaða
kaup sé greitt fyrir verk þeirra,
sem þeir fleyta fram lífinu með.
Georg Brandes veikur.
(Tilkynning frá sendiherra Dana.)
Hinn frægi danski bókmenta-
fræðingur, sem varð 85 ára um
daginn, hefir undan farið þjáðst
af æðabölgu, og var svo á föstu-
daginn skorinn upp við garna-
fiækju. Honum líður eftir atvik-
um vel.