Alþýðublaðið - 19.02.1927, Qupperneq 1

Alþýðublaðið - 19.02.1927, Qupperneq 1
Alþýðublaðið Gefið út af Alþýðuflokknunt 1927. Laugardaginn 19. febrúar. 42. tölublað. Frá Vestmannaeyjum. Bátar, sem vantaði paðan, komnir fram. (Eftir símtali í morgun.) Fulltrúaráðsfundur verður haldinn mánudaginn 21. þ. m. kl. 8 e. m. réttstundis í Iðnó uppi. Framkvæmdarstjórnin. Seint i gær vantaði fjóra báta úr Vestmannaeyjum. Var þá kom- ið rok, og voru menn orðnir hræddir um þá. Peir eru, sem betur fer, allir komnir heim. Tveir þeirra komust í gærkveldi upþ undir eiðið og lágu þar í vari. Sá þriðji, „Undína“, kom að um kl. 9 í gærkveldi. Síðast korii „Soffía" eftir miðnættið. Hafði „Þór“, sem var að gæta að skip- únum, fundið hana og hafði hana ;fyrst í eftirdragi, en sjálf komst hún síðasta spölinn inn að eyj- unmn. — í dag er rok í Vest- mannaeyjum og enginn bátur á sjó. Bátar þar fiskuðu allvel í :gær, en þó betur í fyrra dag. Til Hafnarfjarðar og Vífilsstaða er bezt að aka með frá Stemdori. Sæti til Hafnarfjarðar kostar að eins eina krónu. Síml 581. St. Framtfðin nr. 173 heldur kvöldskemtun sunnudagskvöld kl. 9 síðd. Stór og góð skemtiskrá fyrir kvöldið. — Aðgöngumiðar afgreiddir fyrir alla templara í Templarahúsinu á laugardag og sunnudag eftir kl. 2 síðd. báða daganna. Skemtinefndin. Leikfélag Meykjavikur. Munkarnir ð Mððruvðllum. Sjónleikur í 3 þáttum eftir Davíð Stefánsson frá Fagraskógi. Lög eStir Emil Thoroddsen. Leikið verður í Iðnó sunnudaginn 20. þ. m. kl. 8 síðd. Aðgöngumiðar seldir í Iðnó í dag frá kl. 10 tíl 12 og eftír kl. 2. Leikhúsgestir eru beðnir að mæta stundvíslega. Sími 12. Simi 12. Sænskt flatbrauð (KNÍCKEBRðD). Nauðsynlegt á hvers mannslborði. 2180?“ Afar-hragðgott. Bezta brauðið fyrir togara og mótorskip. Bætir meltinguna, styrkir tennurnar og gerir þær hvítar og fallegar. Hefir þess vegna fengið meðmæli fjölda lækna og visindamanna. Sænska flatbrauðið fæst alls staðar. ®dýrí. Odýrt. Ferkamannastlgvél, ínniskór, Sköhlífar eru í beztu og ódýrustu úrvali í ^kóverzhm Jóns Stefánssonar, Laugavegi 17. FrleBid símskeytf. Khöfn, FB„ 17. febrúar. Rússar preyttir á undirróðri Breta. Frá Moskwa er símað: Blaðið ,,Pravda“ fullyrðir, að stjórnin á Bretlandi vinni með .rússneskum keisarasinnum móti Soviet-Rúss- landi. Krefst blaðið þess, að stjórnin slíti stjórnmálasamband- 5nu við Bretland. Japanar látast vilja draga ur herbúnaði. Frá Lundúnum er símað: Stjórnin í Japan er fús til þess að taka þátt í hinum áformaða flotamálafundi Coolidge Banda- ríkjaforseta. Stórhríðar og skriður i Kali-' forníu. Frá borginni New York er sím- að: Stórhriðar og skriðuföll hafa orðið í Kaliforniu og hafa 3 menn farist. Bretar velta vöngum. Frá Lundúnum er símað: Stjórnin^ér að íhuga, hvort Bret- land skuli styðja að þvi, að af flotamálafundinum, sem Coolidge boðar til, verði. Khöfn, FB„ 18. febrúar. Samningar milli Breta og Kin- verja mistakast. Frá Lundúnum er símað: Sanm- íngatilraunir þeirra O’Malley, full- trúa brezku stjórnarinnar, og Chens,, utanríkisráðherra Kanton- TH Vífilsstaða. 1 kr. sætið alla sunnudaga með hinum þjóðfræga kassabíl. Frá Reykjavík kl. 117* og 27*. — Vífilsstöðum kl. 17* og 4. Ferðir milli Hf. og Rvk. á hverj- um klukkutíma með hinum þægi- legu Buick bifreiðum frá SÆBERG. Sími 784. Sími 784. stjórnarinnar, hafi orðið árangurs- iausar. Mun þar hafa ráðið mestu um, að tilraunirnar báru engan árangur, að Chen krafðist þess fyrir hönd Kantonstjórnarinnar, að stjórnin brezka viðurkendi, að Kantonstjórnin sé eina lögmæta stjórnin í Kína. Stórsigur Kantonhersins. Kanton-herinn hefir unnið mik- inn sigur nálægt Hankau og hefir hrakið her Sun Chuan-fangs á flótta. Búast menn nú við því, að Kanton-berinn taki Hankau og er honum þá opin leiðin til Shang- hai. (Samkvæmt enskum blöðum var búist við því, að ensku her- deildirnar, sem nú eru á leiðinni til Shánghai, yrðu komnar þangað 26.-28. þ. m.) Gáfaður pósímaður (!) F. H. G. Wells undir lögreglu- eftirliti. Hinn frægi brezki rithöfundur H. G. Wells, sem býr í Grasse á Frakklandi, verður eins og flestir aðrir nabitogaðir menn fyr- ir alls konar átroðningi; meðal annars er alls konar fólk að ónáða þá með hégómlegnm bréfaskrift- um, og veröur Wells manna mest fyrix slíku. Póstmeistaranum í Grasse fanst Wells fá fullmörg bréf og hélt þvi, að hann myndi vera samsærismaður, og benti lög- reglunni á þetia. Þegar lögreglan spurði Wells að því, hvernig á því stæði, að hann fengi 'svona mörg i>xéf, svaraði hann: „Svei mér, ef ég veit.“ En Wells stendur eftir sem áður undir eftirliti lögregl- unnar. „Munkarnir á Möðruvöllmn" verða leiknir annað kvöld, en ekki í kvöld, eins og af vangá stóð i blaðinu í gær.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.