Alþýðublaðið - 03.04.1936, Síða 4
FÖSTUDAGINN S. apr0 1930,
,.-.Miaiwg.-Æ3aB..
jH GAMLA BlO m
Úifa-
maðurinri.
Síðari kaflinn
sýndur í kvöld vegna f jölda
áskorana.
SÍÐASTA SINN.
Böm innan 12 ára fá ekki
aðgang.
I Karlakór Reykjavíkur.
Mt Heidelberg
ALÞÝÐUSÝNING
í Iðnó í kvöld. kl. 8.
Allra síðasta sinn.
Aðgöngumiðar seldir í dag
eftir kl. 1.
Aðgöngumiðasími: 8191.
1916—1936
I l
Karlakór K. F. D. M
ISöngstjóri
Jón Halldórsson.
Samsongur
í Gamla Bíó sunnudaginn
5. apríl kl. 3 e. h.
Við hljóðfærið:
Anna Péturss.
Einsöngvarar: Einar Sig-
urðsson, Garðar Þorsteins-
son og Óskar Norðmann.
Aðgöngumiðar seldir í
Bókaverzlun Sigfúsar Ey-
mundssonar og K. Viðar
og kosta kr. 2,50, 2,00 og
1,50.
Bretar hættir
við flugleiðina
yfir Island.
KÁUPMANNAHÖFN 1. apr. FO
Samkvæmt einkaskeyti frá
París til danska blaðsins
„Social-Demokraten“, hafa bæði
enskii og frönsku flugfélögin
hætt við þá fyrirætiun að koma
upp flugleið yfir Norður-
Atlantshaf með viðkomti á ís-
landi.
Bretar byrja nú í sumar til-
íraunaflug í stórum stil yfir suð-
urleiðina, með viðkomu á Ber-
mudaseyjum. Er talið, að skoðun
Lindberghs, sú, að heppilegast sé
að hafa viðkomu á Islandi, sé
að tapa fylgi meðal sérfræðinga.
F Östuguðsþ jónusta
verður í fríkirkjunni í Hafnar-
!Rrði í kvöld kl. 8V2- Jón Auðuns.
SAMSALAN.
Fh. af 1. síðu.
svikaxans til þess að nú aftur
undir sig mjólkursölunni í bæn-
um, svo að hann <og Mjólkurfélag
Reykjavíkur gætu haldið áfram
að svíkja og pretta mjólkumeyt-
(endur í bænum með því að selja
þeim mjólk, hreinsaða gegn okux-
gjaldi í mjólkurhreinsunarstöð
fé!,agsins, sem þá vax upplýst að
var óhæf til þess.
Mjólkursölunefnd svaraði þó
tilboðum þessum á þann veg, að
hún myndi láta gexa nákvæman
samanburð á þeim og núverandi
fyrirkomulagi samsölunnar strax
þiegar ársreikningar Samsöluninar
lægju fyilr og hægt væri að bera
saman raunverulegan reksturs-
kostnað hennar iog þann kostnað,
sem yrði, ef tilboðunum væri
tiekið.
Petta hefir nú veiið gert, og
lagði framkvæmdastjóri Samsöl-
unnar fram slíkan inákvæman
samanburð á fundi Mjólkursölu-
neíndar í gær.
Samkvæmt reikningsyfirliti
hans hefði útkoman af mjólk-
ursamsölunni orðið framleiðend-
um kr. 3181,35 óhagstæðari í
nóvember og dezember, ef til-
boðum bakarameistaraklíkunn-
ar og ávísanasvikarans hefði
verið tekið og þeim trúað fyrir
framkvæmd mjólkursölunnar.
HLATIJK.
Fh. af 1. síðu.
Meðan þingmaðurinn talaði af
mik'um eldmóði um pípuna, gekk
Emil Jónsson þingmaður Hafn-
flrðinga til hans, tók á pípunni og
kengbeygði hana án þess að
nokkur brestur sæist á henni.
Pingmenn og pallgestir hlóu
dátt að þessu, en er Gísli sá hve
þessi sönnun hans var kengbeygð,
varð hann svo reiður að hann
slepti sér alveg, og froðufellandi
af bræði helti hann sér yfir Emil
Jónsson, ien til hans heyrðist varla
fyrir hlátri þingheims.
50 manns far-
ast í feliibyl
400 særast.
LONDON 2. apríl F.Ú.
Ógurlegur fellibylur geisaði
í dag um þr jú ríki Bandaríkj-
anna: Alabama, South Carolina
og Georgie.
Verst var veðrið í Georgia, og
létu 39 manns lífið í einni borg
þar, en alls er manntjón talið
milli 40 og 50 manns.
Ætlað er, að tala þeirra, sem
meiddust, sé um 400. Eigna-
tjón er metið á aðra miljón doll-
ara.
r< eftir MIKLU MEEBA af vörum þessum, en þér áður hafið v
| gert, það er bæði yðar eigin hagur og þjóðarinnar í heild, því jj!
ekki þarf erlendan gjaldeyri til kaupa á þessum hollu og |
| ljúffengu matvælum. |
| ALLIIÍ EITT: Meiri MJÓLK, — meira SKYIt, — meiri OSTA. B
é
AlÞtBUBUBm
•m*
Höfnin:
Tveir franskir togarar komu í
gæikveldi. Togarinn Þorfinnur
fcom í morgun með 40 tunnur.
Enskur togari kom í gærkveldi
að sækja veikan mann, Snæfell
Tór í gærkveldi út á hafnir með
trönuefni. Kolaskip kom í gær-
fcveldi með kol til Þórðar Ólafs-
sonar.
<;>»»»Z«Zt»»»Z*Z«*»Z*»Z<+»»>»»»Zf»IOZ*»»»Z<*Z«5
I s
fMjólk, skyr og ostarfi
Ö __ . , ....... . - ~ g
SPUKNINGAR EDENS.
Fh. af 1. síðu.
þess að skrifa undir friðar-
öryggissáttmála við nágranna-
ríki sín bæði að austan og vest-
anverðu í samræmi við sáttmála
Þ jóðabandalagsins ?
3) VOI þýzka stjórnin láta
uppi hvenær hún muni bera
fram kröfur um jafnrétti í ný-
lendumálom, en brezka stjórn-
in gerir ráð fyrir, að Þjóðverj-
ar mimi bera slikar kröfur fram
fyr eða síðar. Mun Eden leit-
ast við að fá svör við þeirri
spurningu, hvort þýzka stjórn-
in hafi í huga, að fara fram á,
að fá nýlendumar, sem teknar
voru af Þjóðverjum upp úr
heimsstyrjöldinni, aftur skilyrð-
islaust, eða hvort þeir ætla að
bera fram kröfur um, að fá um-
ráðarétt yfir þeim.
Öll þau atxlði, sem hér er um
að ræða, eru afar-mikilvæg.
Bretar vilja sýnilega fá áreiðan-
legar og vafalausar upplýsingar
um, hvort loforðið um að auka
leltki heraflann í Rínarbygðum sé
miðað við hierinn einan, eða hvort
Hitler telur sig hafa óbundnar
hendur með Nazistasveitirnar.
Þá er það mikilvægt að fá
fulla vissu um það, hvort Þjóð-
verjar vilja tryggja friðinn við
austurlandamæri sín með samn-
ingagerðum, og þar með undir-
gangast að ásælast ekki þau lönd,
sem af þeim voru tekin þar
eystra upp úr heimsstyrjöldinni
og fengin öðrum i hendur.
I þriðja lagi eru nýlenduikröf-
urnar, og svo er að sjá sem Bret-
ar vilji taka þau mál með í
reikninginn nú þegar, en ekki
eiga yfir höfði sér og samherj-
ianna í styrjöldinni, að nýjar kröf-
ur þar að lútandi verði síðar
bomar fram. (United Press.)
ABESSINlUSTRÍÐIÐ.
Frh. af 1. síðu.
A Italíu er það álit manna, að
ósigrar þeir, sem Abessiníu-
menn hafa beðið upp á síðkast-
ið, muni hafa gert keisarann
fúsari til samninga.
I opinberri tilkynniingu, sem
'birt er í Róm; í dag, er því lýst,
hvernig ítalski herinn hafi tekið
Gondar. Segir svo frá, að her-
sveit ein hafi ferðast á bifhjólum
135 mílur og tekið borgina við
litla mótstöðui enda hafi önnur
ítölsfc hersveit verið að nálgast
borgina samtímis.
Fangelsisdómur fyrir skjalafals.
í gær kl. 2 kvað lögreglustjóri
upp dóm yfir manni, sem hafði
verið ákærður fyrir skjalafals.
Vax hann dæmdur í 6 mánaða
fangelsi við venjulegt fangavið-
urværi.
Aiþýðuflokksfélagið á fsafirði
hélt nýlega aðalfund sinin, og
var stjórn kosin. Skipa hna:
Guðmundur G. Kristjánsson for-
maður, Grímur Kristgeirsson vara-
formaður. Sigurjón Sigurbjöms-
son ritari og Páll Guðmundsson
gjaldkeri. — Félag ungra jafn-
aðarmanna á ísafirði hélt aðal-
fund sinn einnig fyrlr no'kkru og
vom kosnir í stjórn: Sverrir
Guðmundsson formaður, Guð-
mundur Bjamason varaformaður,
Gunnar Bjamason féhirðir og
Öskar Líndal varaformaður.
Báðleggingastöð „Líknari*
fyrir bamshafandi konur,
Templarasundi 3, er opin fyrsta
þriðjudag í hverjum mánuði frá
kl. 3—4.
Ungbarnavemd „Líknar“
opin hvem fimtudag og
föstudag frá kl. 3—4.
I D1 ©
Næturlæknir er í Nótt Hall-
dór Stefánsson, Lækjargötu 4.
Sími 2234.
Næturvörður er í 'nótt í Lauga-
vegs- pg Ingólfs-apóteki.
Veðrið. Hiti í Reykjavík 2 stig,
Yfirlit: Háþrýstisvæði um Norð-
ursjóinn, Island og Norðaustur-
Grænland, en lægð við vestur-
strönd Grænlands á hreyfingu
norðux ©ftir. Utlit: Hæg suðaust-
anátt. Skýjað, en víðast úrkomu-
laust.
OTVARPIÐ:
19,10 Veðurfnegnir.
19,20 Þingfréttir.
19,45 Fréttir.
20,15 Bækur og menn (Vilhj. Þ.
Gíslason).
20,30 Kvöldvaka: a) Guðmundur
Finnbogason landsbókav.: Áslaug
í hörpunni; b) Jón Siguxðssoin
skrifstofustj.: Frá Magnúsi Ket-
ilssyni sýslum.; c) Þórbergur
Þórðarson rithöf.: Þjóðsögur; d)
Hiestagöngur á Austurfjöllum
(Jón Jónsson Gautí); e) Jón Láiv
usson kvæðamaður: Rímnalög. —
Sönglög.
Skemtifundur.
Ferðafélags Islands með eiindi
Steinþórs Sigurðssonar um öræf-
in norðan Hofsjökuls, er í kvöld
kl. 8V2 á Hótel Horg.
I Viðey
fer Ferðafélag íslands fyrstu'
skemtiferð sína á þessu áii. Far-
miðar á 1,25 fást í bó'kaverzlun
Sigf. Eymundssonar til kl. 7 annr
að kvöld. Lagt upp frá Stein-
bryggjunni kl. 1 stundvíslega.
Jón Sigurðsson
erindreki fer í kvöld með
Dettifossi til Siglufjarðar.
Skipafréttir.
Gullfoss er í Kaupmannahöfn,
Goðafoss er í Hamborg, Detti-
foss fer vestur og norður, í Ipvöld
kl. 8, Brúarfoss fer til Breiða-
fjarðar og Vestf jarða í kvöld kl.
10, Lagarföss er í Kaupmanna
höfn, Selfoss fór frá Gautaborg
í gær. Esja fier í kvöld kl. 9 vest-
ux i0g norður, Island kom til
Kaupmannahiafnar í morgun kl. 7.
Drottningin fer annað kvöld
kl. 8.
Drukkinn mað-
ur hendir sér
i sjóinn.
Um hádegisbilið í dag henti
drukkinn maður sér út af Stein-
bryggjunni og í sjóinn. Hafði
hann áður farið úr jakkanum og
tekið af sér höfuðfatið, til þess
að vera betur til sundsins búinn.
Lögregluþjónar voru þar nær-
staddir; fóru þeir á báti út og
dorguðu manninn upp, er hann
synti sem Miafast.
Hafði ekki nærri því runnið af
manninum, þegar lögreglan náði
honum upp, og var hann færð-
ur í Steininn til frekari varð-
veizlu.
Bllndratrvgplig og fatl-
aðra 1 Horegl.
OSLO, 1. apríl. (FB.)
Ríkisstjómin hefir lagt fram til-
lögur um tryggingar fyrir blinda
og fatlaða. Útgjöld rikisins vpgna
þessaxa trygginga eru áætluð 550-
000 fcr.
Eitt þúsund blindir menn og
350 fatlaðir munu fá 360 tU 480
fcróna árlegan styrk.
Guðspekif élagar!
Fundur í Septímu í kvöld kl.
8V2.
Ármenningar
efna til skíðaferðar nú um helg-
ina, ef veður verður sæmilegt.
Páskafierðalag hefir verið ákveð-
ið, og geta menn fiengið upp-
lýsingar um það hjá feTðanefnd-
inni.
Spegillinn.
Tíu ára afmælisblað spegilsins
feemur út á morgun, 24 bls. að
stærð og fcostar 1 krónu.
Samsöng
beldur Kariafeór K. F. U. M. í
Gamla Bíó næst fcomandi sunnu-
dag kl. 3 e. h. Einsöngvarar eru
Einar Sigurðsson, Garðar Þor-
steinsson og Óskar Norðmann.
Söngstjóri er Jón Halldórsson, við
hljóðfæiið Anna Péturss.
Sænski fyrirlesturinn
í hásikólanum fellur niður í dag,
Togarinn Þorfiimur
feom inn í morgun af upsa-
veiðum. Hafði hann 50 tunnur
lifrár. Helmingurinn af afla tog-
arans var þorskur. Þorfinnur
hafði verið 5 daga úti.
p’> '■
'ciziunzttismtizizva
Nt’JA BlO
Skntnll
Blað AlDfðnflokfcsIns á
Isafirðl
er ntuðsynlerrt öllum, sem
vilja fylgjar' með
á Vestíiörðam.
Gerist áskrifendur í afgrezðslu
Alþýðublaðslns.
æzinistsníasaiátáaæ
Eitthvað
fyrir alla.
(Walt Disneys Cartoon-
Show).
Litskreyttar MICKEY
MOUSE og SILLY SYM-
FONI teiknimyndir:
„Álfabömin", „Hlur draum-
ur“, „Hver skaut Bing?“,
„Nemendahljómleikar Mic-
keys“.
FBÉTTA
OG I KÆÐIMYNDIK:
Frá undirbúningi Olymp-
isku leikanna í Garmiseh-
Partenkirchen. Á flugi frá
Helsingfors til London. Frá
styrjöldinni í Abessiníu.
Vígbúnaður Breta í Mið-
jarðarhafinu. Heimkoma
Georgs Grikkjakonungs o.
fl.
I. O. G. T.
Stúkan Víkingur nr. 104 held-
ur danzskemtun í Góðtempl-
arahúsinu annað kvöld. Ágæt
hljómsveit. — Aðgöngumiðar
frá kl. 4 á morgun.
Fermingarföt til sölu. Sími
4326.
Ödýra fiskbúðin, Klapparstíg
8, sími 2307, hefir glænýja ýsu
og heilagfiski m. fl.
Pantið í tíma, í síma 3416.
Kjötverzlun Kjartans Milner.
KR. KBAGH
KGL. HIRf). H. G.
Tiikynnlng
■ií’SÍSS
Hef fengið, mér til aðstoðar, sérfræðing í alls konar andlitsmeð-
höndlxm og fóta-aðgerðum. Utskrifaður af bezta andlits- og fóta-
aðgerðarskóla í Danmörku. Get þarafleiðandi nú fullnægt öllum
kröfum á því sviði.
Skólavörðustíg 19.
Sími 3330.
SPEGILLINN
Tíu ára afmælisblað SPEGILSINS kemur út á morgun, laug-
ardag, 24 bls. á 1 krónu. Hvert eintak af blaðinu er um leið happ-
drættisnúmer, og er aðalvinningurinn til sýnis í glugga Bókaverzl-
unar Sigfúsar Eymundssonar. Söluböm afgreidd allan laugar-
daginn í Bankastræti 11 (bókabúðinni); verða að hafa sölumerki.
Hafnarfjarðarböm afgreidd í Verzlun Þorvalds Bjamasonar.
F. U. J.
F. U. J.
Danzleik
heldur Félag ungra jafnaðarmanna í Alþýðuhúsinu
Iðnó, laugardaginn 4. apríl n. k., kl. 9y2 e. h.
Hljómsveit Aage Lorange leikur undir danzimim.
swr Húsið skreytt.
Aðgðngumiðar f Iðnó eftir kl. 4 á laugardag.
Skemtinefndin.
Agætar kartöflur í sekkjum og lausri vikt. Drifandi Laugavegi 63, sími 2393.