Alþýðublaðið - 03.01.1927, Page 1
Gefiið sít safi Alþýðufilokknum
1927.
Þriðjudaginn 3. janúar.
1. tölublað.
ÚttmFffiiii fyrlr Alþýðublaðlð
verðup eftipleiðis á fostudogum M.
6-8 sidd. í Ælfsýttul&usmu.
Frestlð ekkl þvf
til morguns, sem þér getið gert í dag. Brunatryggið
eigur yðar hjá
Sj óvátryggingarfél. íslands hf.
Brunadeild.
Síml 2S4. Sími 254.
firá feéraðslækaii.
Börn pau, sem sækja skóla, skulu skiia kennara vottorði frá heimilis-
föður um, að barnið hafi haft kikhósta.
Börn, sem ekki hafa siík vottorð, mega ekki ganga í skóla.
Kennarar eru svo beðnir að senda héraðslækni vottorðin.
Húsbruni á gamlárskvöld
Mörgum mun hafa brugðið illa
á gamlárskvöld, er þeir sáu reykj-
armökk mikinn leggja yfir byggð-
ína í Skólavörðuholtinu og elds-
bjarma slá á loft upp. Streymdi
fjöldi fólks upp að Skólavörðu,
þangað, sem eldurinn var, og sást
þá brátt, að efsta húsið við aust-
anverðan Skólavörðustíg, næst
neðan við Skólavörðuna, var alt
í eldhafi.
Húsið var allstórt timburhús,
einlyft, með kvistum og háurn
kjallara, eign Geirs Thorsteinssons
togaraútgerðarstjóra, og bjó hann
í því. Tvær fjölskyldur leigðu í
kjallaranum, Guðrún Jónsdóttir,
ekkja Magnúsar Jónssonar, er
lengi var fiskverkunarstjóri í Við-
ey, og börn þeirra upp komin,
og í öðru lagi Jón Bjarnason sjó-
maður Og fjölskylda hans.
Húsið var nr. 45.
Eldurinn kviknaði uppi út frá
jólatré, og'læstist óðlluga um hús-
'ið, svo að þaö" var brátt alelda.
Yngsta barn Geirs Thorsteinssans
var i herbergi uppi yfir stofu
þeirri, er eldurinn kom upp i.
-Brann Geir nokkuð í andliti við
að bjarga því, en þó ekki meira
en svo, að búist er við, að hann
verði jaíngóöur ef-tir nokkra daga.
Dálítið særðist einnig stúlka aí
brunanum, Krfstjaria Blöndal,
dóttir Bjarnar fyrr verandi læknis
á HvammStanga, en þó er talið
vist, að hún muni bráðlega fá
fulian bata.
Laust fyrir kl. 10 var slökkvi-
liðið kallað til hjálpar. Logaði
])á þegar upp úr húsinu. Tals-
verður vindur var á af norðaustri.
Féll neistaflóðið yfir húsin vest-
an við Skólavörðustiginn, og
sprungu rúður úr því, sem næst
var þeim megin götúnnar, — nr.
46 —, og einnig úr skúr við það,
en senr betur fór er það að mestu
og næsta hús þar við úr steini,
og dró það mjög úr eldhættunni.
Hins vegar eru húsin neðan við
það, sem brann, —nr. 43 og 41 —,
úr.timbri, og voru þau því mjög
í hætlu, einkum efra húsið. -
Slökkviliðinu tókst þó áö verja
það„en járnið skemdist r.okkuð og
rúður sprungu, húsmunir voru
riornir út í hTisagarð, og sjálfsagt
hefir talsvert skemst þar af vatni.
Úr húsinu, sem bann, bjargaðist
dálítið af munum úr kjallaranum,
en ekkert úr efri hluta þess. Hús-
munir G. Th. voru vátryggðir.
Vatnsæðarnar þar uppi í holt-
inu eru grannar, svo að vandræSi
eru að, þegar eldsvoða ber að
höndum. Tii þess aö ná nógu
vatni í slöngurnar, verður að
setja þær víða í sambönd við
vatnsæðar í öðrum götum. í
þetta skifti varð að leiða vatn
eftir slöngum alla leið frá Njáls-
götu. Þá fyrst var hægt að nota
slökkvidælurnar til fulinustu.
Þetta er bæjarstjórninni skylt að
láta sér að kenningu verða og
vinda bráðan bug að því, að víð-
ari vatnsséðar verði lagðar um
þetta svæði.
Húsið féll, áður en klukkustund
var liðin frá því, að eldurinn varð
laus. Barst þá neistaflóð svo mik-
ið með vindinum, að nærri tók að
endilöngu yfir nýbyggðina í
Skólavörðuholtinu. Komu neist-
arnir alla leið niður á Nönnu-
götu.
Einu sinni kviknaðl í símastaur
vestan við Skólavörðustiginn, en
slökkviliðiriu tóks't brátt að
slökkva í honum. Upjo úr miðnæiti
var orðið alveg víst, að því myndi
takast að hefta frekari útbreiðslu
eldsins. Var þó enn drjúga stund
eftir það dælt í rústirnar.
Khöfn, FB., 31, dez.
Þjóðverjar vilja halda sátta-
rnálin við Frakka.
Frá Lundúnum er símað, að
eiisk blöð biríi fregnir um það,
að Mussolini bafi boðið Þjóðverj-
um bandalagssamning gegn
Frökkum, en Stresemann hafi
hafnað tilboði hans .vegna hinna
fransk-þýzku sáttamála.
Frönsku blöðin láta sefast i
sanmingsmáii ítala ogÞjóðverja
Frá Paris er símað, að frakk-
nesku blöðin séu nú farin aö líta
með meiri stiliingu á gerðafdóms-
samning þann, sem Italir og Þjóð-
verjar hafa gert sín á milli, og
viðurkenna þau nú, að gerðar-
dómssamningurinn sé Frakklandi
í alla staði óskaðlegur.
Störvandræði af snjópyngslum
á Spáni.
Frá Berlín er símað, að fregnir
frá Spáni, er þangað hafa borist,
segi járnbraularlestir hafa fent
víðs vegar um Spán. Hafa flug-
vélar veriö' sendar með matvæli
og aðrar nauðsynjár þangað, sem
aðflutningar hafa tepst vegna
snjóþyngslanna.
Khöfn, FB., 1. jan.
Þráðlaust samtal heimsálfna
milli.
Frá Lundúnum er simaö, að
búist sé við því, aö þráðiaus við-
töl á milli Englands annars veg-
ar og Ganada, Ástralíu og Suður-
Afríku hins vegar verði bráðlega
tekin upp.
Olíuhringarnir vilja ekki hlíta
lögum i Mexikó.
Frá Washington er simað, að
oliulögin svo nefndu, er samþykt
voru í Mexikó fyrir nokkru,
gangi í k-iM-i í deg. Eins og kunn-
ugt er-» eiga útlendingar margar
.olíulindir í Mexikó, en samkvæmt
lögum þessum getur Mexíkó-
sijórn látið fara fram endur-
gjaldslaust. eignarám á o’íulirMum
útlendinga þar í landi. Er erfitt
að vita, hverjar afleiðingar lögin
kunna að hafa, því að telja má
víst, að stjórnin í Mexíkó muni
láta framfylgja þeim stránglega
og nota sér heimild laganna, en
hins vegar er mjög ósennilegt,
að t. d. Bandaríkin muni láta
sér lögin lynda.
Khöfh, FB., - 2. ján.
Eystrasaltslöndin og Rú%sar.
Frá Berlín er símað, að utan-
ríkisráðherrar Finnlands og Eist-
lands muni koma saman á fund
í Reval í dag til þess að ræða um
afstöðu þessara ríkja til Rúss-
lands, einkum að því, er komi til
öryggissamninga, sem í ráði er að
. þau geri við Russland.
Landskjálftar i Kaliforníu.
Frá San Francisco er símað,
að miklir landskjálftar hafi orðið
í Kaliforníu sunnanverðri og vald-
ið svo gífurlegu tjóni að ætlað sé,
að það nemi að minsta kosti einni
milljón dollara.
Á að fara að drepa sameignar-
sinna í Lithauen?
Frá Berlín er simað, að í Lit-
hauen hafi tvö hundruð sameign-
arsinnar verið handteknir, og bú-
ast menn við, að nú taki við ný
líflátsdómaöld.
Kaupbreyíins h|á preníurum.
Samkomulag milli prentara og
prentsmiðjueigendá um launakjör
næsta ár var undirskrifað á
gamlaársdag. Varð niðurstaðan
sú, að kaupgrundvöllurinn,- sem
dýrtíðaruppbót er reiknuð á, var.
hækkaður úr 1550 kr. upp í 1650
kr„ og á grundvöllinn framvegis
að hækka, þar til hann er orðinn
1800 kr„ þegar dýrtíð lækkar um
meira en 5<>/o. Kaup prentara lækk-
ar því ekki nema um 7,2<>/o, en
hefði lækkað um 12,6°/o, ef grund-
völlurinn hefði ekki verið hækk-
aður. — Það er hinum öflugu
atvinnufélagssamtökum p.entara
að þakka, að þeim hefir tekist
þetta vel að sporna við kaup-
lækkun.
Búist ér við, að prentun lækki
um 5<>/o frá áramótum.