Helgarpósturinn - 31.08.1979, Side 17
17
--he/garposturínru Föstudagur 31. ágúst 1979
Vaka hálfsmánaðar-
lega á vetrardagskrá
Vaka, sá gamalreyndi þáttur sjónvarpsins um bókmenntir og list-
ir á liðandi stund, fer væntanlega af stað nii i septembermánuði á
nýjan leik. Að sögn Þráins Bertelssonar sem stjórna mun upptökum
á þættinum er ekki ráðgert að einn fastur umsjónarmaður veröi I
Vöku i vetur heldur verði leitað til manna eftir þvi sem efni standa
til. Vaka verður hálfsmánaðarlega og hálf klukkustund i hvert
skipti, að þvi er gert er ráö fyrir. ,,Að öðru leyti er fátt fastákveðið
með þáttinn og efni hans, en mér skilst að i ráði sé að leggja frekar
áherslu á umfjöllun um efni en byggja hann minna upp á sýnishorn-
um af þvi sem er að gerast”. — AÞ.
SJÓNVARPSKVIK-
MYND GERÐ UM
RAGNAR í SMÁRA
í bigerð er að sjónvarpið geri
kvikmynd um lif og starf Ragnars
Jónssonar i Smára, Gerð handrits
er nú á lokastigi og annast Gylfi
Gislason samningu þess, en Þrá-
inn Bertelsson mun stjórna gerð
myndarinnar. „Þegar handritið
er fullbúið vonumst við til að get-
a byrjað á kvikmynd um þennan
makaiausa mann I islensku
menningarlifi,” sagði Þráinn i
samtali við Helgarpóstinn. „Það
er eiginlega sama hvert litið er i
menningarmálum okkar, — alls
staðar eru hlutir sem rekja má til
Ragnars. Ef spurt er. um hvaö
myndin á að vera yrði þvi auð-
veidara að svara um hvað hún
ætti ekki að vera”.
— AÞ.
Zukofsky í Hamra
í kvöld 1*
,,... fallegt land og ég á hér marga góða vini,” segir fiðlusnillingurinn
Poul Zukofsky. — HP-mynd Friðþjófur.
Alisérstæðir hijómleikar verða
i kvöld kl. 20.30 i hátiöarsal
Menntaskólans við Hamrahliö.
Þar kemur fram 63 manna
hljómsveit ungs fólks frá Islandi,
Finnlandi Danmörku, Sviþjóð og
Englandi, undir stjórn hins
heimsfræga fiðluleikara Paul
Zukofkys, en hljómleikarnir eru
lokahluti námskeiðs i
hljómsveitarleik og 20. aldar-
tónlist, sem Tónlistarskólinn I
Reykjavik stóð fyrir og Zukofsky
kenndi á. Flutt verða tvö verk
eftir Stravinski, Pulcinella svitan
og oktett fyrir blásara Arstiðirn-
ar eftir John Cage og Matthias
málari eftir Hindemith og er það
stærsta verk hljóm leikanna,
sinfónia i þremur þáttum.
Helgarpósturinn leit inná
æfingu hópsins fyrir nokkrum
dögum og spjallaöi stuttlega við
Zukofsky.
— Hvernig líkar þér á Islandi?
„Vel við það sem ég þekki til.
Þegar ég er hér þá fer mesti hluti
dvalarinnar i æfingar. En þetta er
fallegt land og ég á hér marga
góða vini.”
„Tónlistarstarfsemi er hér
ótrúlega mikil, og þá er ég að tala
um alþjóðlegan mælikvarða, og
hér eru margir góðir hljóðfæra-
leikarar. Það mætti þó gera enn
betur, ef lögð væri meiri áhersla á
aö þjálfa fólk i hljómsveitarleik
með samskonar námskeiðum og
ég er með hér, — og þaö myndi
gera Sinfóniuna ykkra sjálf-
stæðari.”
Með þessum oröum sneri
Zukofsky sér aftur að æfingunum.
En það má geta þess, fyrir þá
sem þekkja ekki til Zukofskys, að
hann er nú talinn i hópi fremstu
fiðlara nútimatónlistar, en er i
siauknum mæli að hasla sér völl
sem hljómsveitarstjórnandi. Og
það hefur þegar veriö gengið frá
þvi að hann taki að sér stjórn
Sinfóníuhljómsveitar Islands I
mars á næsta ári. Paul Zukofsky
mun einnig koma hér fram sem
einleikari á Listahátiðinni næsta
sumar.
Hljómleikarnir i kvöld verða
þeir einu sem hópurinn heldur, en
að ári stendur til að hafa annað
námskeið — það fjórða sem
Zukofsky kennir hér — og þá er
von á þvi að hornleikarinn Ib
Lamsky-Otto verði meökennari
Zukofskys.
— PP
Háskólabió og Laugarásbió
hrfa nýiega fest kaup á fjölda
nýrra mynda, sem Reykvikingar
berijaaugumeitthvað fram eftir
vetri.
Hjá Háskólabiói skal fyrsta
telja verðlaunamyndina frá sið-
ustu kvikmyndahátiðinni i Cann-
es, Days of Heaven.sem leikstýrð
er af Terrence Malick. I aðalhlut-
verkum i þeirri mynd eru Rich-
ard Gere og Brooke Adams. Ný
mynd sem hinn góðkunni Jack
Nicholson leikstýrir og fer með
aðalhlutverkið i verður einnig
tekin til sýningar. Heitir sú Going
Southog er vestri. Hún hefur hlot-
ið lof hjá erlendum gagnrýnend-
um. Allir muna eftir Love Story
og þeim fögru tárum sem þar var
úthellt. 1 vetur verður tækifærið
til þess að taka vasaklútana
upp að nýju, þvi von er á fram-
haldinu, Oliver’s Story.sem leik-
stýrð er af John Korty. The
Warriors heitir mynd eftir leik-
stjórann Walter Hill. Mynd þessi
hefur verið töluvert umdeild, og
m.a. verið bönnúð i Sviþjóð. Þar
segir frá hóp af götustrákum sem
Væntanlegar myndir í Laugarásbíó og Háskólabíó:
Mislitt fé
lenda i slagsmálum við aöra
götustráka. Cheech og Chong
heita tveir hippagárungar I Ame-
riku, sem leika aðalhlutverkin I
nýrri mynd, sem heitir Up in
smoke. Þar segir frá ævintýrum
þeirra þegar þeir reyna að kom-
ast undan löggunni, sem hundelt-
ir fyrir að reykja „gras”. Hvað
svo sem má segja um mynd
þessa, þá þykir hún vist býsna
fyndin. The Lady Vanishes heitir
mynd, sem gerð er af leikstjóran-
um Anthony Page, með Elliot
Gould og Cybil Shepherd i helstu
hlutverkunum. Þetta er endur-
gerð af mynd, sem meistari
Hitchcock gerði fyrir einum 40
árum. Dean-Paul Martin og Ali
McGraw leika i mynd, sem
nefnist Players. Leikstjóri
myndar þeirrar, sem fjallar um
tennis, er Anthony Harvey.
Ofurhuginn Clint Eastwood
verður lika með eina mynd,
The Escape from Alcatraz,
sem væntanlega fjallar um
strokufanga frá þessari frægu
fangaeyju. Allar ofantaldar kvik-
myndir eru bandariskar, en það
eru þó ekki alveg allar væntan-
legar myndir i Háskólabiói það-
an. Væntanlegar eru lika tvær
ástralskar myndir. önnur þeirra
heitir Newsfront.og er leikstýrð
af Philip Noyce. Þar segir frá siö-
asta skeiöi fréttakvikmyndanna,
áður en sjónvarpið gekk af þeim
dauðum. Þetta þykir einhver
pólitiskasta kvikmynd sem hefur
komið frá Ástraliu og jafnframt
með þeim bestu. Hin ástralska
myndin heitir Don’s Party og er
um menntamenn, sem drekka sig
fulla á kosninganótt, eftir aö
Verkamannaflokkurinn hefur
tapað kosningum. Leikstjóri er
Bruce Beresford.
Af væntanlegum mánudags-
myndum Háskólabiós má nefna
tvær sænskar myndir, Mönnum
er ekki hægt að nauðga.og Vand-
ering i solen. Þá er væntanleg
verðlaunamyndin frá Cannes
1978, „Klossatréð” eftir Ermanno
Olmi. Ein spænsk mynd er vænt-
anleg, Las Truchas (silungarnir),
en sú mynd hefur vakið mjög
mikla athygli. Að lokum má telja
eina vitleysumynd með franska
„gamanleikaranum” Louis De
Funes. Myndin heitir La Zizanie.
Leíkstjóri er Claude Zidi.
Peter Sellers hefur nú komið
sér á bak við myndavélina eins og
svo margir aðrir leikarar. Mynd
hansheitir Theprisoner of Zenda.
og að sjálfsögðu leikur hann lika
helsta hlutverkið. Þessi mynd er
ein af þeim sem Laugarásbió hef-
ur fest kaup á. Eins og Háskóla-
bió, verður Laugarásbió með
SKEMMTIFERÐ A VIGVÖLLINN
Svartir og hvitir (Noirs et blancs
en couleurs). Frönsk. Árgerö
1977. Handrit: Jean-Jacques
Annaud og Georgs Conchon.
Leikendur: Jean Carmet, Jacq-
ues Dufilho, Jacques Spiesser,
Dora Doll, Catherine Rouvel,
Maurice Barrier. Leikstjóri:
Jean-Jacques Annaud.
Vestur-Afrika árið 1915. Frakk-
ar og Þjóðverjar lifa saman i sátt
og samlyndi eigi all fjarri hvor
öðrum. Það sem skilur á milli
þeirra er litil lækjarspræna. A
sama tima eiga löndin i striði
heima i Evrópu og það sem skilur
þar á milli þeirra, er Rinarfljótiö.
Fréttir eru lengi að berast á milli
heimsálfanna, en allt I einu
standa menn frammi fyrir þvi, að
Kvikmyndir
eftir Guðlaug Bergmundsson
Cr frönsku myndinni Svartir og hvltir.
næstu nágrannar þeirra, og að
einhverju leyti vinir, eru orðnir ó-
vinir.
Frakkarnir æsa hvern annan
upp i þjóðarrembingnum svo þeir
geti horft framhjá fáránleika
striösins, sem þeir ætla aö heyja
við nágranna sina. Þetta strið er
kannski lika ágæt afþreying fyrir
þá. Það sést best á þvi, aö þegar
haldið er til fyrstu árásarinnar
eftir að hafa þjálfaö til mála-
mynda nokkra innfædda, þá fer
öll nýlendan með. Þetta veröur
skemmtiferð á vigvöllinn,
boröum slegið upp og kjöt steikt
yfir eldi. Þetta er eitt af mörgum
dæmum um það hve þetta strið er
fáránlegt.
Eins og aörir nýlenduherrar,
eru Frakkar með sina presta,
sem reyna með misjöfnum ár-
angri að troða trú sinni i inn-
fædda. Viö sjáum einn helsta að-
stoðarmann þeirra og túlk tilbiðja
sinn guð, þar til hann heyrir þá
koma. Er hann þá fljótur að
pakka saman og taka upp kross-
inn. Eins og aðrir góðir fyrir-
menn, láta prestarnir bera sig á
stólum og dásama söng svert-
ingjanna sem bera þá. Þeir bara
skilja það ekki, að með söng sin-
um eru hinir innfæddu að gera
stólpagrín að þeim.
Persónusköpun i myndinni er
mjög góð og oft dregið fram hið
skoplega i fari manna, sem þó
hefur alvarlegan undirtón. Leik-
arar standa sig mjög vel, og þá
einkum Jean Carmet I hlutverki
liðþjálfans og Jacques Spiesser i
hlutverki unga menntamanns-
ins, sem tekur að sér að stjórna
aögeröum gegn Þjóðverjum.
Þegar striöinu er lokið fellur
allt i ljúfa löð milli vinanna og
þeir halda veislu saman.
framhaldsmynd. Það er More
American Graffiti, sem að þessu
sinni er leikstýrð af B.W.L. Nor-
ton. Meö helstu hlutverk fara
Candy Clark, Bo Hopkins, og að
ógleymdri islensku stúlkunni
önnu Björnsdóttur. Fast Charlie
heitir mótorhjólamynd með
David Carradine og Brendu
Vaccaro. Leikstjóri er Steve
Carver. Enn önnur framhalds-
mynd er Mission Gaiactica: The
Cylon Attucken hún er framhald
af Vigstirninu, sem sýnd var hér I
vetur. Leikstjórar að þessari
mynd eru þeir Vince Edwards og
Christian I. Nyby. Leikritið A
sama tima að ári, sem Þjóöleik-
húsið hefur sýnt við mikla að-
sókn, hefur verið kvikmyndað af
leikstjóranum Robert Milligan.
Laugarásbió mun sýna þessa
mynd I vetur og i aðalhlutverkun-
um eru Ellen Burstyn og Alan
Alda. John Badham, sá sem leik-
stýrði Laugardagskvöldsfárinu,
hefur lokið við nýja mynd. Við
fyrstu sýn viröist sú mynd eiga
fremur fátt sameiginlegt við
diskómyndina. Þetta er mynd
um frægasta greifa allra tima
sjálfan Dracula. Með aðal-
hlutverk i yndinni fara
Frank Langella, Laurence Olivi-
er og Donald Pleasence. Syl-
vester Stallone er enn á ferðinni i
nýrri mynd sem hann leik-
stýrirsjálfur, Paradisc Alley.þar
sem hann leikur glimukappa.
The Wiz heitir ný mynd leik-
stjórans Sidney Lumet. Diana
Ross, Michael Jackson og Rich-
ars Pryor leika aðalhlutverkin.
Aðdáendur John Travolta geta
nú loksins andaö léttar, þvi vænt-
anleg er myndin Moment by
Moment, þar sem hann leikur á
móti Lily Tomlin undir stjórn
Jane Wagner. Hamfaramyndirn-
ar um flugvélar og flugvelli eru
enn ekki dauöar úr öllum æöum.
Nú er það hin hljóðfráa Concorde,
sem lendir i ævintýrum i The
Concore-Airport 79. Sá sem
stjórnar þeim hildarleik heitir
David Lowell Rich. Helstu hlut-
verk eru i höndum Alain Delon,
Susan Blakely og Silviu „Emma-
nuelle” Kristel.
Að lokum skal geta myndarinn-
ar National Lampoons Animal
Housemeð John Belushi og Tim
Matheson. Leikstjóri er John
Landis.
—GB.