Helgarpósturinn - 20.02.1981, Blaðsíða 24
'ÆMD ER HVERRI ÞJi
W Þ
mwinkmmuiLijiA
h *H Z fi
n,
UtSi
!«í#,
“Hvet,
así^»m„
^mk,
*«2.0o
'íSfc.
^>VV. ' i
Í i
li
J
- wU - ' . r< . r - > ’.. -V
I
n
s. *• „ *•,
""' • ,
\ * - i
,«Ví
Meðal
efnis:
Fyrsta tölublað 1981 er komið út
Gönguleiðir í nágrenni Reykjavikur.
Að verða að gjalti fyrir landslagi. Grein um öskju.
Landshornagöngur. Grein um nokkrar gönguleiðir á landinu.
Kvæðið Áfangar eftir Jón Helgason, myndskreytt og skýrt.
Landmannalaugar. Litmyndir eftir Emil Þór Sigurðsson.
islenskir steinar.
Allt um svigskiði og gönguskiði.
Grein um snjóflöð.
Helstur skiðastaðir a isfandi.
Skiöareglur fyrir svigsKiðarnenn
Grein um tognun a ok*< a
Ofl. ofl. ofl.
9 Togarakaupin til Þórshafnar
er áreiðanlega einhver mesta
hringavitleysa sem upp hefur
komið hér á landi. Hverjir bera
ábyrgðina, spyrja nú allir. Hlutur
heimamanna sjálfra er þó varla
bestur, eins og allt þetta mál
hefur þróast. Þingmenn kjör-
dæmisins mæltu með togara-
kaupunum og ætluðu þá að kaup-
verð skipsins yrði um einn millj-
aröur gamalla króna og rikis-
stjórnin samþykkti kaup af þeirri
stærðargráðu eftir að byggða-
deild framkvæmdastofnunar
hafði verið látin mæla með þeim.
Umboðsmaður einn i Reykjavik
taldi sig lika vera búinn að ganga
frá kaupum á frönskum togara,
Marie Catharine, systurskipi
Hólmatinds á Eskifirði, i nafni
heimamanna en heyrði hins
vegar aldrei frekar frá helsta
tengilið sinum meðal heima-
manna, Ólafi Kjartanssyni, for-
svarsmanni hins væntanlega út-
gerðarfélags skipsins. Kaupverð
þess skips var einmitt 1.1 millj-
arður auk 3—400 milljóna vegna
breytinga á skipinu og það voru
þær tölur sem flestir þingmenn
kjördæmisins og sjávarútvegs-
ráðherra sjálfur gengu út frá.
Ölafur fór hins vegar til Noregs
með Benedikt nokkrum Sveins
syni.lögmanni og umboðsmanni i
ýmsum fyrri togarakaupum
hingað til lands og festi kaup á
norska togaranum af Iversen-
bræðrum, einhverjum hörðustu
skipabröskurum Noregs, fyrir
litla 3,6 milljarða króna — með
breytingum og gengissigi á tima-
bilinu og mætti ekki á boðað
stefnumót við annan norskan
skipamiðlara, Halfdan Backer,
sem vildi sýna honum mun ódýr-
ara skip. Sumir gruna Stefán Val-
geirsson að hafa verið með i
ráðum eða að hann hafi amk. ekki
latt heimamenn i þessum
kaupum úr þvi að leyfi rikis-
stjórnar til togarakaupa var
fengið. Það er kannski ekki að
undra þótt gróusagnir séu farnar
að blómstra i kringum allan
þennan málatilbúnað — meira að
segja innan veggja hins háa
Alþingis og i hinni rætnustu
þeirra er þvi haldiðfram að bráð-
lega muni þrir ónefndir menn
skiptá með sér 150 milljónum
króna...
® Eftirfarandi dagskipun var
gefin út innan Framkvæmda-
stofnunar á miðvikudagsmorgun ;
Héöan i frá má aðeins stjórnar-
formaðurinn einn, Eggert Hauk-
dal.svara fjölmiðíum um togara-
kaupin til Þórshafnar....
® Mikill hvellur varð i rikis-
stjdrninni á dögunum þegar út
spuröist að ölafur Jóhannesson,
utanrikisráðherra hefði gefið
Bandarikjamönnum grænt ljós á
að byggja flugskýli á Keflavikur-
flugvelli yfir Phantomþotur
sinar, og svona i framhjáhlaupi
þá segja fróðir menn, að flugskýli
þessi séu svo mikil og traust að
aðeins veggimir séu um þrir
metrar á þykkt og þaö muni þurfa
allan vörubilaflota suðvestur-
kjálkans tilað aka möl og grjóti i
steypu þeirra. En Ólafur samdi
um fleira i Norfolk. Hann samdi
lika um það, að bandariska
hernum skyldi eftirleiðis vera
heimilt að láta lenda hér i
Reykjavik hinar risavöxnu elds-
neytisflutningavélar, sem sjá
orrustuflugvélunum, AVAC- og
Orion-vélinum á N-Atlantshafi
fyrir eldsneyti, svo að þær geta
nánast verið stöðugt á flugi og
með ályktunargáfu ólafs Ragn-
ars Grimssonar má leiða getum
að þvi að eitthvað geti þetta
tengst fyrirhuguöum stórfram-
kvæmdum i Helguvik. Og þar
með viljum vér meina aö Ólafur
Jóhannesson hafi ekki aðeins séð
Allaböllum fyrir hádegisverði
heldur lika fyrir kvöldmáltiðinni
— hugsanlega þeirri siðustu...
® Og til þess að hnykkja aðeins
frekar á hinum fleygu orðum
Ólafs Jóhannessonar; „Þið étið
þetta ofani ykkur eins og allt
annað,” þá megum við til með að
láta þessa fljóta með; Það var á
siðasta rfkisst jórnarfundi og búið
var að tala um óveðrið, og Þórs-
hafnartogarann og verðbólguna
og verðlagsmálin og allt það, að
ráðherrar Allaballa fóru svona að
ýja að þvi hvort ekki væri tima-
bært að vikja aðeins að flugskýla-
málunum á Keflavikurflugvelli.
En þá heyrðist hljóð úr horni?
„EigUm viö EKKl að talA um
það efTIR maTINN”....
® Við höfum lika fyrir satt, að
Ólafur Gunnarsson, hinn dug-
mikli framkvæmdastjóri Norð-
fjarðarútgerðarinnar, hafi kært
útibússtjóra Útvegsbankans i
Vestmannaeyjum fyrir banka-
ráði Útvegsbankans vegna þess
að útibússtjórinn hafi beint öllum
þeim skipstjórnarmönnum loðnu-
skipa, sem hann hafði einhver
itök hjá, til bræðslu Alla rika á
Eskifirði og einhverra fleiri
einkaframtaksstöðva þar austur
á fjörðum. Astæðan? Jú, það er
svo hart barist um loðnufarmana
þar eystra að nokkrir framtaks-
samir eigendur loðnubræðsl-
unnar eiga að hafa brugðið á þaö
ráð að borga fáeinar nýkrónur
aukalega fyrir hvert kiló undir
borðið og þetta hefur leitt til þess
að aðrar bræðslur hafa litið sem
ekkert hráefni fengið...
® Og úr þvi talað er um bank-
ana. Það hefur komið fram að
afkoma bankastofnana og spari-
sjóða hafi verið góð á siðasta ári.
Þó heyrum við að þrir bankar
skeri sig nokkuð úr hvað varðar
innlánsaukningu á árinu, sem
alltaf þykir helsti mælikvarðinn á
viðgang bankanna. Þetta eru
Búnaðarbankinn, Iðnaðarbank-
inn og Alþýðubankinn auk þess
sem bæði Sparisjóður Reykja-
vikur og Sparisjóður Hafnar-
fjarðarþykja hafa staðið sig vel i
stykkinu á síðasta ári eftir þvi
sem heimildir okkar herma....
£ Komið hefur fram að athugun
Ter nú fram á þvi hvort Alþingi
eigi að festa kaup á Hótel Borg
undir starfsemi sina. Málið er
meira að segja komið svo langt,
að á vegum Húsameistara rikis-
ins hefur verið rissað upp hvernig
laga mætti húsnæði gömlu góðu
Borgarinnar að starfsemi þings-
ins og i þeim tillögum mun m.a.
vera gert ráð fyrir að Gylti salur-
inn verði lagður undir Sameinað
þing. Þykir ýmsum i þvi felast
spásögn um að ekki muni fást
önnur lausn á kjördæmismálinu
en sú að fjölga þingmönnum.
KaupverðHótel Borgar mun vera
um 2 milljarðar króna en hins
vegar mun fyrirtækið skulda tölu-
vert f opinber gjöld, svo að talið
er að taki Alþingi að sér að ganga
frá þeim málum innan kerfisins
muni það ekki þurfa að greiða svo
ýkja mikið út i fyrstu lotu. En
fyrir okkur. hina fjölmörgu sem
sjáum eftir Hótel Borg undir
starfsemi Alþingi og viljum halda
i hana i núverandi mynd, þá eru
ekki öll sund lokuð enn. I fyrsta
lagi mun það stranglega verið
tekið fram i upprunalegum skil-
málum fyrir byggingaleyfi Hótel
Borgar að þar skuli vera rekið
hótel um ókomna framtið og mun
Alþingi ekki eiga gott með að
ganga framhjá þessum skil-
yrðum. 1 öðru lagi heyrum við að
kominn sé fram á sjónarsviðið
annar aðili, sem vilji kaupa Hótel
Borg meö það fyrir augum að
reka þar hótel áfram. Þetta fyrir-
tæki er sagt vera skipafélagið
Hafskip og með þvi að Albert
Guðmundssoner þar stjórnarfor-
maður, þá þykir mönnum það
teikn þess að Albert ætli ekki að
láta Alþingi svipta sig morgun-
kaffinu mótþróalaust...
® Steinar Berg hljómplötuútgef-
andinn umsvifamikli, er nú þegar
farinn af stað með undirbúning að
plötuútgáfu með lögunum sem
hæst ber i Söngvakeppni sjón-
varpsins, sem lýkur 7. mars n.k.
Enginn veit i raun ennþá hverjir
höfundar laganna eru en Steinar
er með allar klær úti i þeirri upp-
lýsingasöfnun og hyggst láta ekki
liða allt of langan tima frá
söngvakeppninni þar til platan
kemur á markaðinn....
® Framkvæmdanefnd Lista-
hátiðar hefur skipt með sér verk-
um eftir þvi sem við heyrum.
Guðrún Helgadóttir fulltrúi
borgarinnar, hefur afsalaö sér
formennskunni, sem henni bar
samkvæmt hefð og verður
Njörður P. Njarðvik þar af leið-
andi áfram formaður stjórnar-
innar en varaformaður verður
Rögnvaldur Sigurjónsson pianó-
leikari en ekki Gunnar Bjarna-
son, leikmyndateiknari, sem
kemur nú inn i stjórnina til-
nefndur af menntamálaráðherra
en venjan hefur verið að fulltrúi
menntamálaráðherra hafi gegnt
varaformennskunni i þau skipti
sem borgin hefur átt formanninn.
En nú eru það semsagt fulltrúar
listamanna sem verða i forsæti
stjórnarinnar en ekki stjórn-
kerfisins eins og verið hefur um
árabil samkvæmt hefð...
® Það orðspor fer nú einnig um
borgina vegna fyrirhugaðs far-
þ^gaflugs Iscargó milli tslands og
Amsterdam, að i ráði sé að
Martin Petersen eigi að verða
yfirmaður starfsemi félagsins
hér á landi en Kristinn Finnboga-
son.sem hefur verið potturinn og
pannan i tscargó um skeið, ætli
sér að flytja til Hollands og veita
forstöðu starfseminni þar. Það
sem mælir á móti þessari sögu-
sögn er hins vegar það, að Krist-
inn gegnir ýmsum trúnaðar- og
ábyrgðarstöðum fyrir flokk sinn
hér heima, er m.a. formaður
bankaráðs Landsbankans og
þykir okkur óliklegt að hann muni
vilja sleppa þvi með þessum
hætti...
® Þessa heyrðum við hjá ná-
granna okkar — ritstjóra Alþýöu-
blaðsins Jóni Baldvin.Honum var
um siðustu helgi boðið i herlegt
þorrablót hjá álversmönnum,
liklega vegna þess að litla blaðið
hans gerist sverð og skjöldur
þeirra á dögunum þegar gaura-
gangurinn i Hjörleifi Guttorms-
syni var sem mestur. Hann komst
við illan leik i þæfingsfærð að
stóra skálanum i Straumsvik en
þegar þangað kom blasti við
honum óvenjuleg sjón. Þeir
álversmenn höfðu hlaðið upp
fyrir framan innganginn i skál-
ann meistaralega hannaða klaka-
höll, sem allir samkomugestir
urðu að ganga i gegnum. Þegar
inn i höllina kom sáu þeir blakta
kerti i ýmsum þar til gerðum
skúmaskotum og vörpuðu þau
dauflegri birtu á þessa yfirlætis-
lausu áletrun: „Draumsýn orku-
málaráðherra”....
® Starfsmaöur auglýsingastofu
einnar hringdi i auglýsingadeild
útvarpsins nú eftir óveðrið og
vildi koma á framfæri auglýsingu
frá glerverksmiðju einni ásamt
kjörorðinu: „Þrautgóðir á rauna-
stund.” Sú sem varð fyrir svörum
hjá Utvarpinu spurði þá stuttara-
legaámóti: „Þvi ekki alveg eins:
Eins dauði er annars brauð”...
® Og meira úr fjölmiðla-
heiminum. Það er greinilegt að
Elias Snæland Jónsson, fréttarit-
stjóri Timans væntanlegur, ætlar
sér að stokka upp Timann veru-
lega þegar hann sest þar að
völdum. Við heyrum að minnsta
kosti að hann muni taka með sér
af Visi tvo góða krafta af rit-
stjórninni— Illuga Jökulssonsem
annast hefur Helgarblað Visis
með sóma og sann og annan út-
litsteiknarann Gunnar Trausta
Guðbjörnsson...
® Gamli góði dinósárusinn i
íslenskum blaðaheimi, eins og
Jónas Dagblaðsritstjóri kallaði
Moggann eitt sinn svo notalega
skók sig aðeins á dögunum og
dubbaði fréttastjórann og rit-
stjórnarfulltrúann, þá Björn
Jóhannsson og Þorbjörn
Guðmundsson upp i fulltrúa rit-
stjóra og þrjá gamalreynda frétt-
hauka, þá Magnús Finnsson,
Feystein Jóliannsson og Sigtrygg
Sigtryggsson upp i fréttastjóra-
djobbið. Hins vegar er staðhæft i
okkar eyru að fleiri breytinga sé
að vænta hjá blaðinu, þvi að þessa
dagana sé i óða önn verið að und-
irbúa jarðveginn fyrir Björn
Bjarnason i ritstjórastól á blaðinu
en hann er nú sagður vera tekinn
meira og minna við öllum leiðara-
og stjórnmálaskrifum blaðsins....