Helgarpósturinn - 13.03.1981, Blaðsíða 9

Helgarpósturinn - 13.03.1981, Blaðsíða 9
9 -halijarpncrh irinn Fostuda9ur 13. mars 1981 KVIKMYNDAGERÐ: ENSK SVARTSÝNI — íslensk bjartsýni „Þaö uröu mikil og merk tima- mót i islensku menningarlifi er Kvikmyndasjóður frjóvgaði það egg sem lengi hafði setið i sinnu- leysi i móðurlifi listagyðjunnar hér á landi, enda höfðum við Blablaflokksmenn lengi beitt okkur fyrir þessu máli og barist fyrir þvi innan þings sem utan”. A þessa leið eiga pólitiskar mont- rasður eftir að hljóma i náinni framtið. Reyndar er gild ástæða til að býsnast yfir þessu. Kvikmynda- sjóður var ekki náttúrumikill pabbi að sjá. Framlag hans til getnaðarins var nánast nærvera hans ein. Það var áræði eða fifl- dirfska kvikmy ndagerðar- mannanna sjálfra sem sumarið '79 kveikti lif i þessari listgrein á Islandi. Þvi má likja við mey- fæðingu með mórölskum stuðn- ingi frá heilögum anda. Fyrsta umferð islenskrar kvik- myndaframleiðslu gat af sér þrjár bfómyndiri fullri lengd sem frumsýndar voru með nokkurra mánaða millibili. Núna er önnur umferð að sjá dagsins ljós með frumsýningu myndar eftir skáld- sögunni Púnktur punktur komma slrik.Og þriðija umferð er i upp- siglingu með undirbUningi á töku a.m.k. þriggja biómynda. Enn rikir bjartsýni landnámstima i islenskri kvikmyndagerð. Frumbýlingsárin i breskri kvikmyndagerð eru aftur á móti löngu fyrir bi'. Hér rikir álika mikil svartsýni og á tslandi rikir bjartsýni. Ef islenskt bió er á uppleið. þá er breskt bió á niður- leið og hefur reyndar verið það siðastliðinn áratug. 1 siðustu viku voru frumsýndar tvær breskar biómyndir hér i London. Báðar eru dæmigerðar fyrir ástandið. önnur er The Mirror Crack’d eftir skáldsögu Agötu Christie um glæparannsóknir þeirrar ágætu kellingar, frU Marple. Þetta er alveg hefðbundin framleiðsla, sem ekki hefur meira sjálfstraust en það, að smala til Englands slatta af afdönkuðum st jörnum Ur ameriskri leikarastétt (Rock Hudson, Tony Curtis, Kim Novak, Elizabetu Taylor), stilla þeim upp i nokkrum notalegum dag- stofum ásamt traustum enskum karakterleikurum, láta eitthvert þeirra bUa til snyrtilega morðgátu og annað leysa hana Gulltryggð mynd. Hin myndin er The Long Good Friday, metn- aðarmikil mynd Ur undirheima- .lifi Lundúna, gerð af ungum sjón- varpsleikstjóra John Mackenzie. Þessi mynd fékk að rykfalla mán- uðum saman vegna þess að stóru dreifingarfyrirtækin, sem hér geta ráðið Urslitum um örlög kvikmyndar, vildu ekki taka hana til sýninga. Það voru George Harrison, fyrrum Bitill, og vinsælir grinistar kenndir við Monty Python-stjónvarpsþættina, sem tóku þessa nýju ensku kvik- mynd upp á sina arma, og komu henni á tjald. Og hUn fær afbragðs viðtökur. Hvort hUn mun standa undir kostnaði verður hins vegar að koma i ljós. Nýjar breskar biómyndir eru ekki fumsýndar i viku hverri. Og þegar nýjar myndir birtast virðast þær annað hvort vera á þessari tilþrifalitlu en skaðlausu fjölskylduskemmtunarlinu (ný- lega var frumsýnd önnur slik, Little Lord Fauntleroy, barna- mynd með Alec Guinness), eða þá gervi-klámmyndir sem heita nöfnum eins og I Was a Sexy Housewife. Undantekningar frá þessari reglu eru myndir eins og Babylon eftir Franco Rosso og Prostitute eftir Tony Garnett, sem báðar fjalla um hlutskipti minnihlutahópa i Bretlandi, ann- ars vegar blakkra, hins vegar vændiskvenna. Hvorug virðist likleg til að skila miklum afgangi til frékari verkefna. Hvort sem um er að kenna vondum myndum, góðu sjónvarpi, óheppni eða klaufa- skap stóru dreifingarhringjanna er staðreyndin sU. að aðsókn að bfóum i Bretlandi hefur aldrei verið minni. Gamli risinn i kvik- myndaheiminum i Bretlandi, Rank er gott dæmi um stöðuna. Einkennismerki Ranks, vöðva- fjallið sem lemur gylltan skjöld valdsmannslega, er ekki lengur tákn hins stolta og stæðilega kvik- myndafyrirtækis. Rank fær nUna mestar tekjur Ur hveitibransan- um til að borga tapið af bióunum.. Rank lætur ekki sitja við að hætta allri kvikmyndafram- leiðslu s.l. sumar, heldur lokar nU hverju bióinu af öðru um allt land. Fyrirtækið hefur verið ann- ar stærsti dreifingaraðili kvik- mynda í Bretlandi og ráðið yfir þriðjungi allra bióa. Er talið i fullri alvöru, að aðeins sé tima- spursmál hvenær það dregur sig alveg Ut Ur þessari grein og hellir sér af alefli i hveitið. Ég hef hvergi séð fullnægjandi skýringu á þessari þróun. Margt virðist mæla gegn henni. Enskir kvikmyndagerðarmenn eru ann- álaðir fyrir kunnáttu og fag- mennsku. NUna eru þeir flestir annað hvort fokkandi i garðinum sinum, starfandi við kennslu, auglýsingar eða sjónvarp (sem reyndar veitir góð tadtifæri hér), eða þá i Ameriku, þar sem þeir eru eftirsóttir verkamenn. Þetta á bæði viðum gamalreynda jaxla eins og Karel Reisz og Tony Richardson, millikynslóðina eins og Peter Yates og John Boorman, og ungu mennina eins og Alan Parker og Michael Apted. Heima i Bretlandi eru gamalgrónu kvik- myndaverin svo notuð sem töku- staðir fyrir myndir ameriskra leikstjóra leikstjóra eins og Stanley Kubrick, sem hér gerði t.d. The Shining, eða David Lynch, sem tók afburðamynd sina The Elephant Man i Englandi með enskum leikurum. Fjármagnið i enskumælandi kvikmyndagerð virðist sem sagt nær eingöngu koma frá Ameriku, þótt á þvi séu skrýtnar undan- tekningar, eins og þegar ameriska myndin The Deer Hunter var að verulegu leyti gerð fyrir aiskt fé. Það er eitthvað öfugsnUið við þetta. Þjóðleg kvikmyndagerð er á undanhaldi. Landfræðileg skil- rUm eru að falla niður fyrir þrýstingi alþjóðlegs fjármagns. Indverskir kvikmyndagerðar- menn eru til dæmis einkar fýldir yfir þvi' nUna að indverska rikis- stjórnin hefur veitt fé i mynd Englendingsins Richard Atten- borough um þjóðardýrlinginn Gandhi, — fé sem er meira en Satyajit Ray, þeirra frægasti leikstjóri, hefur haft til ráðstöfun- ar allan sinn starfsaldur sem þjóðlegur, indverskur kvik- myndagerðarmaður. Gagnrökin i þessu máli eru þau, að stórmynd um Gandhi, — þvi stórmynd á hún að verða —, hefði yfirhöfuð ekki verið gerð ef ekki hefði kom- iðtil framtak Attenboroughs sem er með 75% fjármagnsins i farangri sinum frá Englandi. ,,Ef menn ætla að ná til stórs, alþjóð- legs áhorfendahóps”, segir Attenborough, ,, verða menn að verja tilþess stórum fjárupphæð- um”. Og telst þetta vafasöm viðskiptafræði þótt hUn sé ofaná i fjárfestingarpólitik kvikmynda- iðnaðarins nUna. Við á Islandi megum gjarnan velta vöngum yfir þessari stöðu. HUn er ekki eins fjarlæg okkur og halda mætti. I fyrstu umferð tslandsmótsins i kvikmyndagerð var haldið skynsamlega á mál- um. Viðfangsefni myndanna þriggja sem við erum bUin að sjá voru viðráðanleg og nærtæk, fjölluðu um islenska samtið og/eða nýliðna fortið. Tilkostnaði var haldið niðri og hann miðaður viö að innanlandsmarkaður dygði tilað endurgreiða hann og jafnvel gott betur. Ég man að Indriði G. Þorsteinsson, einn tsfilm-manna, sagði í viðtali við Helgarpóstinn sumarið góða ’79, að það væri hrein della að ráðast i kvik- myndagerð á tslandi sem kostaði meira en hundrað milljónir (g.króna og á verðlagi þess tima). Þetta voru myndir gerðar af tslendingum, um íslendinga, fyrir tslendinga. Þeim var sniðinn stakkur eftir vexti, Þær voru fjármagnaða’ af islenskum krónum, a.m.k. að langstærstu leyti (sænskar krónur rUlluðu vist að einhverju leyti til Oðals feðranna). Þetta gekk vel. Kostn- aðurinn skilaði sér og allir höfðu afgangs til að hefjast handa að nýju. Ennfremur efldist Kvik- myndasjóður jafnt og þétt. Það er leitt að þurfa að segja það, en mér sýnist þessi varfærnisstefna vera að fara Ur böndunum. Strax i þriðju, ef ekki annarri umferð er engu likara en ekki sé um annað að velja en hella sér Ut istórmyndir. t staðinn fyrir að feta sig áfram á sömu braut byggja á þvf sem reyndist vel i fyrstu umferð, er lagt i áhættu- söm heljarstökk. Bretland er milljónamarkaður, hvað sem annars má um stöðu kvikmyndamála þar segja. Hér The Mirror Crack’d: Þessi spegilmynd The Long Good Friday:.... en þessi lenti i mesta basli á brunaði greiðiega upp á hvita tjaldið....... leiðinni. Englendingur leikur indverska þjóðhetju: Ben Kingsley sem Gandhi. er i smiðum nUna mynd The Trespasser gerð af ungum kvik- myndagerðarma nni, Colin Gregg, byggð á sögu heimsfrægs rithöfundar, D.H. Lawrence, með heimsfrægri stjörnu i aðalhlut- verkinu, Alan Bates. HUn var tek- in á 19dögum. Kostnaðaráætlun: 120,000 sterlingspund eða riflega 180 milljónir g.kr. Þetta þykir svona meðaldýr mynd hérlendis. Og þrátt fyrir fræg nöfn til að slá upp i auglýsingum eru áhöld um að kostnaðurinn skili sér. lslenskir kvikmynda- gerðarmenn eru hins vegar i þann mund að hefja framkvæmdir við stórmyndir upp á fleiri hundruð milljónir g.króna, stórmyndir sem báðar sækja efni i timabil Islendingasagna. Stórmyndir sem ekki er stjarnfræðilegur möguleiki á að geti borgað sig upp á innanlandsmarkaði. Þær viðtökur sem fyrstu islensku myndirnar hafa hlotið á erlendri grund eru vissulega uppörvandi. En er ekki full- snemmt að veðja á Utlendinga sem burðarás i fjármögnun is- lenskra mynda? Kvikmyndun Gerpu verður greidd að lang- mestu leyti með erlendu fé. Kvik- myndun Gisla sögu SUrssonar verður greidd með islenskum krónum, en þarf Utlent fé til að fá þær endurgreiddar. Hefði ekki verið nær að biða aðeins nokkrar umferðir áður en lagt er i svona kostnaðarsamar miðaldafilmur? Erekki af nógu að taka i nánasta umhverfi okkar og samtima? Ég er ekki að spyrja þessara spurninga til að draga kjark Ur islenskum kvikmyndagerðar- mönnum. Það vil ég sist af öllu. Og það sem ég kallaði varfærnis- stefnu i verkefnavali var vel að nierkja bjartsýnisstefna, ef ekki hreinlega fifldirfskustefna, fyrir aðeins tveimur árum. Vonandi verður sU raunin á, að bjartsýnin fái að bli'f a i islenskri kvikmynda- gerð. En það sakar ekki að ihuga spurningar eins og þessar hér að framan. Það sakar ekki að læra af mistökum milljónaþjóða eins og Breta. Það sakar ekki að slaka á og hugsa málið. Kvikmynda- gerð er enn hvitvoðungur á ts- landi. Krakkinn hefur til þessa notið sérstaks áhuga sinna nánustuog velvilja umhverfisins. Til þess að tryggja það að hann plumi sig i framtiðinni þarf ekki bara áræði, heldur lika aðgát. Og látum okkur ekki detta i hug að framtiðinsé i Utlöndum. VETTVANGUR „Skallapopp gott orð hjá Bubba”, segir Kristiun „saxi” Svavarsson i fyrirsögn á forsiftu III* (>. mars sl. Jæja, svo orðift skallapopp er komift á forsiftur blaftanna. Það var tími til kominn. Verst hvaft margir eigna — ranglega — popp- stjörnu níunda áratugsins þetta ágæta orft. Ennþá verra er hvaft margir misskilja orftift. Kristinn „saxi” scgir t.d. i áfturnefndum HP: „Ja, það er vist komin hefð á Skallapopp og listamannalaun aft einn skallapoppari fái lista- mannalaunin þegar þeim er útdeilt. Bjöggi á þaft skilift eins og liver annar.” Aður en lengra er haldið ætla ég að ljóstra upp um tilurð orðsins skallapopp. Þannig var að við Smári Vatgeirsson ritstýrðum fyrir nokkrum árum hressilegu poppmUsikblaði, Halló að nafni. öfugt við poppmUsikskribenta dagblaðanna sniðgengum við að mestu þá steingeldu iðnaðar- framleiðslu á afþreyingarmUsik sem erlendis er kölluð „muzak” eða „mor” (middleof the road). Þessi músiktegund á ekkert skylt við tónlist eða aðrar listgreinar þvi hUn er gersneydd allri sköpunargleðiog öllu lifi. Þetta er svona nokkurskonar kópiu- framleiðsla. En hvað um það, Halló fór voðaiega i taugarnar á einum poppmUsikskribent dag- blaðanna. Sá rak geysilegan áróður fyrir ,,mor”-mUsik, gerði itrekaðar tilraunir að telja land- anum trU um að hommavælið i Bee Gees, Cliff Richard og Villige People væri toppurinn i mUsik- bransanum o.s.frv. Halló gekk auðvitað þvert á þennan áróður. Þvi réðist poppmUsikskribentinn harkalega á Halló og óskaði þvi ágæta blaði skjóts dauðdaga. Við svöruðum árásinni á þann snjalla hátt að semja islenskt orð yfir þessa gróskulausu og steingeldu ,,mor-mUsik og skýrðum hana bókstaflega i höf- uðið á poppmUsikskribentinum áðurnefnda. Hann er nefnilega ótrUlega þunnhærður eftir aldri (liklega vegna ofhlustunar á diskómUsik). Þannig varð nU orð- ið skallapopp til. Og þannig er sá sem framleiðir rammsköllótta afþreyingarmUsik skallapoppari. Þess vegna er rangt hjá Kristni „saxa” þegar hann segir að það sé „komin hefö á að einn skallapoppari fái listamanna- launin þegar þeim er Utdeilt.” Maggi Kjartans (i Brimkló, eins og Bjöggi) var reyndar kominn á kaf i skallapoppið þegar hann fékk listamannalaun i fyrra. En Maggi hefur fengist viðtónlist svo segja má að hann hafi bara fengið launin of seint. Aðrir popparar, sem fengið hafa listamannalaun, voru að framleiða tónlist um svipað leyti og þeir fengu launin. Bjöggi er hinsvegar fyrsti popp- arinn sem fær listamannalaun án þess að hafa nokkurn tima fengist við tónlist eða eitthvert annaö listform! Lfklega er það heims- met að maður sem kóperar aðeins erlendar skallapopp- lummur skuli fá listamannalaun frá rikinu. Gæti svona gerst ann- ars staðar en á tslandi?

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.