Helgarpósturinn - 13.03.1981, Page 20

Helgarpósturinn - 13.03.1981, Page 20
Föstudcjgur i3. mars' i98i Halrjarpncrh irinn Um Ijóðasmámuni Þjóðleikhúsið var auðvitað yfirfullt á laugardaginn var, þegar hinir heimsfrægu Gérard Souzavog Dalton Baldwinhéldu ljóðatónleika. Um þá skal ekki fjölyrt. Souzay er nú 63 ára og kominn ögn ofan fyrir toppinn, en ekkert sem orð er á gerandi. Hann er enn sem fyrr mikill meistari á þessu vandasama sviði og þeir öfundsverðir, sem fá notið listar hans. Hins vegar er ástæða til að hugleiða ljóðasöng yfirleitt og hinn sérstaka vanda flytjenda hans og njötenda. I upphafi er orðið, hjá hverjum sem það nú er. Og stundum tekst skáldum að koma svo saman orðum, að úr verði ljóðperla. Næst kemur tónskáldið til sögunnar'og vill gera lag við ljóðperluna. Nú má halda þvi fram, að þar sé verið að kássast upp á annarra manna jússur. Ljóðiðstandi fyrir sinu og þurfi ekkert lag sér til bragðbætis. Enda gera lög ljóðum oft litinn greiða. Þótt t.d. lag Inga T. við Ég bið að heilsa sé ljómandi fallegt, bætir það engu við ljóð- perlu Jónasar, sem einna helst þarf að fara með i hljóði. Maður er þvi' stundum þakklátur tón- skáldum fyrir þá ómeðvituöu hugulsemi að velja lögum sinum lélega texta sem fjögra- makasöngvarar mega þjösnast á að vild. Stöku sinnum heppnast tón- skáldum þó að fella svo lag að ljóði að ekki einasta biður hvorugt tjón, heldur vex jafnvel hvort af öðru. Þá er hver tónn ætlaður hverju orði, en iagið er ekki ætið mikið af sjálfu sér. Fegursta fyrirmynd þessa ofur- viðkvæma forms er auðvitað Franz Sehubert. Enda samdi skáldið Grillparzer fyrir leg- stein hans þessi orð eftir fjórar atrennur: Hann lét ljóðlistina óma og tónlistina tala.Reyndar var þó önnur tillaga hans fest á steininn. En þó allt þetta hafi heppnast, er enn eftir hlutur söngvarans. Þar þarf ekki endilega á ein- hverjum hljóðabelg að halda einsog t.d. Pavarotti, heldur einlæga innlifun i ljóð og lag og nærfærna taskni i meðferð orða. Ljóðasöngvarinn hefur nær ekk- ert tjáningartæki nema munn- inn á sér og honum eru þvi þrengri skorður settar en leik- ara á sviði. Hann getur að visu svolitið beitt hreyfingum og svipbrigðum, en þau koma þó fyrir litið og verða jafnvel af- káraleg, nema orðin skiljist. Hann er þvi ekki látbragðs- leikari. Af þeim sökum geta menn gengið svo langt að staðhæfa, að ekki sé unnt að syngja ljóð vel nema á sinu móðurmáli eða þvi sem næst. Jafnvel snillingur einsog Souzay fer ekki alveg nógu vel með þýsk ljóð. Það er ekki endilega um að kenna hin- um óútmáanlega franska hreim, heldur ofurlitlum skorti á hárfinum blæbrigðum i með- ferð orðanna. Þetta heyrist ef borið er saman við annan meistara Dietrich Fischer-Die- skau.þegar hann syngur á sinu móðurmáli, t.d. i Meeres Stillc Þögn hafsins eftir Schubert og Goethe. Jafnvel þóttallt sé i sómanum hjá ljóðskáldi, tónskáldi, söngv- ara og undirleikara, þá er enn eftir okkar hlutur, hlýðendanna. Hvernig eru móttökuskilyrðin hjá okkur? Þar sem þetta list- form grundvallast svo mjög'á orðinu, þurfa menn helst að kunna ljóðið utanað til að njóta söngsins. Að visu nægir að skilja textann til hlitar, ef flutningur hans er nær fullkomnun. Gérard Souzay — ,,enn sem fyrr mikill meistari á þessu vanda- sama sviði”. En er þá til nokkurs að syngja slik ljóð fyrir fólk, sem ekki skilur þau? (Þetta er allt annað en t.d. óperuariur, þar sem litlu skiptir, þótt ekkert orð skiljist). Ekki er það útilokað, en það ætti að nálgast skyldu að birta text- ana i söngskrá. Þessu hafa t.a.m. aðstandendur Háskóla- tónleika skilning á. Þótt ekki sé verið að syngja annað en fremur vel þekktar barnagælur, eru þær yfirleitt prentaðar með, af þvi' það er betra. Og getur varla verið mjög fjárfrekt. Sama var að segja um Pierrot Lunaire hjá Kammersveitinni um daginn, en þar var raunar um þýðingu að ræða. Og reyndar ætti þýðing að fylgja erlendum textum i óbundnu máli jafnvel fremur en bundnu. Og svo þyrfti söngskráin endi- lega að vera fullbúin i tæka tið, svo hún gæti fylgt aðgöngu- miðum. Þessar ráðstafanir eru hugs- aðar fyrir þá (kannski fáu), sem i einlægni vilja reyna að njóta góðra ljóðatónleika eftir tak- markaðri getu sinni, en ekki hina, sem einvörðungu vilja koma á konsert hjá heims- frægum manni. En ég hefði gaman af að vita, hversu margir fóru úr Þjóðleikhúsinu og lofuðu fjálglega snilld Sou- zaysán þess að skilja eða með- taka orð í hinum frönsku og þýsku ljóðum, nema e.t.v. eitt- hvað úr Álfakónginum. Nýlist í Rauða húsinu Nýtt gailéri, Rauða húsið, tók tii starfa á Akureyri i siðasta mánuði. Að galleriinu stendur hópur áhugafólks um myndlist, sem mun algjörlega sjá um fjár- mögnun rekstursins, án þess að hafa nokkur fyrirheit um opin- bera aðstoð. Akureyrarbær, sem er eigandi hússins, hefur þó veitt fyrirgreiðslu í formi lágrar húsa- leigu. • f Rauða húsinu verður lögð megin áhersla á að kynna nýlist fyrst i stað og var það hinn kunni listamaður Magnús Pálsson, sem hélt fyrstu sýninguna þar. Nú stendur hins vegar yfir sýning á verkum annars þekkts nýlista- manns, ólafs Lárussonar. En það verða ekki eingöngu myndlista- sýningar sem eiga að fara fram i húsinu, þvi meiningin er að þar fái önnur menningarstarfsemi einnig inni, svo sem kvikmynda- sýningar, upplestur, fyrirlestrar og sala á bókum. Það sem vekur athygli i sam- bandi við stofnun gallerisins Rauða hússins, er að það opnar á sama tima og tvö galleri, sem áður höfðu verið starfrækt á Akureyri leggja niður starfsemi sina. Er vonandi að starfsemi þessara áhugamanna gangi, svo Akureyringar megi hafa sinn sýningarsal. —GB ,,Þörf fyrir svona skóla" segir Siguröur I. Snorrason, skólastjóri tónlistarskóla FÍH, þar sem m.a. er kenndur djass ..Hugsunin i upphafi var sú, að taka aðeins inn fólk, sem hefði einhverjar undirstöðu á hljóðfæri. en ég er orðinn fráhverfur þvi núna. Áhugasamur nemandi þótt hann hafi ekki haldiö á hljóðfær- inu áður, getur náð mjög skjótum árangri og má ekki útiioka að þannig fólk komist inn i skólann. Svo eru kannski nemendur, sem hafa lært i mörg ár á hljóðfæri, en hafa lært vitlaust á það, þannig að árafjöldinn segir ekki til um getu þeirra”, sagði Sigurður I. Snorra- son skólastjóri tóniistarskóla Félags íslenskra Hljóöfæraleik- araleikara i samtali við Helgar- póstin n. Skólinn tók til starfa á siðast- liðnu hausti og starfar i þrem deildum, unglingadeild, félaga- deild FIH og fullorðnisfræðslu- deild. 1 unglingadeild og félaga- deild FIH geta nemendur valið um tvær brautir. Annars vegar almenna braut, eins og gerist i öðrum tónlistarskólum, og hins vegar djassbraut, sem er nýlunda i tóniistarkennslu hér, en Sig- urður sagði, að þegar undirbún- ingur fór fram að skólanum, hafi verið leitast við að brydda upp á nýjungum. Sigurður sagði, að áhugi fyrir almennu brautinni og djassbraut- inni væri mjög áþekkur. Margir, sem væri nánast byrjendur hæfu nám i almennu brautinni með það fyrir augum að fara siðar á djass- brautina, þar sem auk kennslu i hljóðfæraleik, væri farið meira inn á spuna, og kenndir væru djasstónstigarnir, sem væru fleiri en hinir almennu tónstigar. Fullorðinsfræðsludeildin er önnur nýjungin i starfsemi skól- ans. t haust var haldið námskeið sem ætlað var fyrir fólk, sem ekki kunni að lesa nótur og ekki hafði inngrip i tón- list, þar sem leitast var við að kenna fólki að hlusta á tónlist. Aösókn að námskeiði þessu var hins vegar minni en gert var ráð fyrir, svo ekki verður meira úr námskeiðahaldi á þessu starfsári, en i haust verður þráðurinn tek- inn upp að nýju og bætt við það svolitilli undirstöðu i nótnalestri og tónfræði. Nemendur i tónlistarskóla FtH eru nú 103 og skólinn mun siðar útskrifa nemendur, eins og aðrir tónmenntastofnanir. ,,Ég er mjög ánægður með árangurinn og við höfum verið einstaklega heppnir með kenn- ara. Ég lit björtum augum á framtiðina og það var virkilega þörffyrir svona skóla”, sagði Sig- urður I. Snorrason, skólastjóri tónlistarskóla Félags tslenskra H1 jóðfæraleikara. — G B ELLEN & KYRKJARARNIR The Stranglers — The Men In Black Það er erfitt að imynda sér að árið 1978 þegar Steinar Berg stóö fyrir hingaðkomu hljóm- sveitarinnar The Stranglers þá hafi aðeins verið búið að selja svona um það bil 50 stk. samtals af tveimur fyrstu plötum hljóm- Stranglers komu hingað. Hljómsveitin var þá á hápunkti ferils sins og kom hingað með fulla flugvél af blaðamönnum til aö kynna þeim nýja plötu, sem þeir ætluðu að fara að senda frá sér. Þetta var platan Black & White, sem ég held að segja megi að sé besta plata þeirra enn þann dag i dag. Það að takast að fylla höll- ina þetta vorkvöld 1978 hlýtur að teljast til meiriháttar afreka, sé t.d. miðað við hljóm- Popp eftir Gunnlaug Sigfússon sveitarinnarhér á landi. tsiend- ingar neituðu nefnilega að hlusta á allt sem þeir gátu á ein- hvern hátt tengt pönkinu og blöðin fjölluðu um tóniist þessa eins og um einhverskonar eitur- efni væri að ræða. Ef manni varð það á að hrósa tónlist þessari við einhvern, þá fékk maöur yfirleitt þetta skrýtna augnaráð, sem sagði: Jæja greyið nú held ég aö hann sé eitthvað farin að ruglast. Mér er t.d. alltaf minnisstætt þegar ég leyföi einum af virtari popp spekúlentum bæjarins að heyra i Blondie fyrst (það mun hafa veriö árið 1977), þá hló hann og sagöi eitthvað á þessa leið: ,,Þú heldur þó ekki að þetta verði nokkurn tima vinsælt”. Nú og þið getið rétt imyndaö ykkur viðbjóðinn þegar ég svo spiiaði Sex Pistols fyrir hann. Þrátt fyrir þennan neikvæöa hugsunarhátt almennings, þá tókst þvi sem næst aö fylla Laugardalshöllina, þegar sveitina Smokie sem hafði selt hér plötur i þúsundatali og fékk ekki nema þrjú til fjögur þúsund manns á hljómleika hér i júni sama ár. Stranglers hljómleikarnir opnuðu eyru margra fyrir ný- bylgju tónlistinni, en þvi miður ekki nógu margra og blaöamenn voru yfirleitt jafn blindir og fyrr.. Stranglers voru eins og fyrr segirá toppnum á þessum tima, og en siöan hefur gengið á ýmsu th tdmAi :<:vw>WG^ # THWíNíNBEC^ W«H»SSI.V>ltH»W»« T«fW»8«W»AViSNNV it%THSA\SN- l AVOT«NB*«MWWI iNRtarK+Ttwnæcasei <w\EN*>tti/PTL£'-Kr •nnir.vn-KS*.uiiA\i«c t.»ateÖA-.\viffD\VTm M.YHX.swWjresiARSiíK. < m.'otlcEo toTÍfe nEniÆWjjANw STHAV ,TJi*S*TV»SniAN- «t«X,'ST f<«o*ÆÍ5n»JS\ OLB\SAll£HlXI*«NBLS£K.i THAM»TMIíh3TO8T- ANlEH’NWWTftJfeM!, llASSiVWAlSlyRfÍNIllAX 'NMúvwjí.i'kssíóvsTv nroáS \’XALS»THSS<X’Nt:í3'TU¥ fiAKrH4TVRNTH£<EN HV» ÍHfNBLAilKlN NK:|V*W>. Tl fBBKaWHlOTPM *♦♦♦«*♦**♦♦****♦* i SrfWjmrsöKWEN hjá hljómsveitinni og hafa ensk- ir blaðamenn verið þeim ein- staklega erfiðir, og þó ekki sé það nú alveg að ástæðulausu þá hafa Stranglers þó verið lagöir ótrúlega i einelti. Vinsældir hljómsveitarinnar eru þvi hvergi nærri þvi sem þær voru 1978 en þeir halda þó áfram að gefa út góðar plötur. Raven sem kom út 1979 er mjög góö og nú er ný plata komin á markaðinn. Hún heitir The Men In Black og virðast Stranglers vera jafnfrjóir og áður tón- listarlega’ séð. Þaö eru hins vegar textarnir sem ég get ekki sætt migvið. Þáerbæðierfitt að skilja og eins höfðar boðskapur þeirra engan veginn til min, þar sem verið er að fjalla um lif á öðrum hnöttum og komu manna þaðan til jarðarinnar. Og þeir eru sagðir trúa þvi sem þeir eru að segja mjög bókstaflega. Tónlistinni þarf hins vegar ekki að kvarta yfir, hún er að visu ekki eins kraftmikil og áöur og engin lög sem eru i sama gæöaflokki og t.d. Grip, No More Heroes, Nicen ’Sleazy eða Dutchess, en nokkur þeirra svo sem Thrown Away og Waiting For The Men In Black standa þeim ekki langt að baki. Stranglers sýna það með The Men In Black að þeir eru langt frá þvi að leggja árar i bát og að tónlist þeirra er i sifelldri þróun. Bara þeir héldu sig við jörðina hvaö textasmiðina varðaði, þá yröi árangurinn enn ánægju- legri. Ellen Foley — Spirit Of St. Louis Ellen Foley sló i gegn sem söngkonan sem söng með Meat Loaf á plötu hans Bat Out Of Hell. Margir hefðu eflaust tekið þvi fegins hendi að starfa meira með honum ekki sist þar sem platan gekk jafnvel og raun ber vitni. Ellen Foley hafði þá aðrar hugmyndir varðandi framtið sina. Hún ætlaði að skapa sér nafn á eigin spýtur, en ekki sem söngkona hjá einhverjum öðrum. Arið 1979 sendi hún frá sér sina fyrstu sólóplötu sem heitir Nightout. Aðstoðarmenn Foley við gerð plötunnar voru þeir bresku tvimenningar Ian Hunter og Mick Ronson. Plata þessi er hin hressilegasta, þó frumlegheitum sé ekki miklum þar aö dreifa. Siöan hefur litið farið fyrir Foley og nafn hennar helst boriö á góma i sambandi við Mick Jones gitarleikara hljómsveit- arinnar Clash, en hann er nú sá maður sem mestu máli skiptir i lifi hennar. En nú er sem sagt komin út ný plata frá henni og er hún skirð eftir flugvél Lind- bergs þ.e. Spirit Of St. Louis. Mick Jones er sá sem stiórnar upptöku að þessu sinm og hljóð- færaleikarar eru flestir þeir sömu og á Sandinista plötum Clash. Það fer þvi ekki hjá þvi að maður beri plötur þessar saman, eða einfaldlega liti á Spirit Of St. Louis sem fjórðu plötuna i Sandinistaalbúminu. Ef hugsað er til þess má benda á að af öllum þeim stefnum sem Clash fóru inná á Sandinista man ég ekki eftir neinu rólegu lagi, enda Strummer og Co kannski ekki með réttu radd- irnar i þess konar lög. Ef til vill er það ósanngjarnt að segja plötu þessa vera Clash-plötu þar sem aðeins hefur verið skipt um söngvara. Þvi eins og ég sagði áðan stóð hugur Foley til þess aö hún skapaði sinu eigin nafni einhvern sess. Vissulega ætti hún að eiga auðvelt með það þar sem hún er sérlega góð söng- kona og með slikar hjálpar- hellur og meðlimir Clash eru ætti draumurinn auðveldlega að rætast. A Spirit Of St. Louis er að finna tóif lög. Þar af eru sex eftir Stummer og Jones, þrjú eftir Tynon Dogg, en hann átti einmitt eitt iag á Sandinista. Eitt lag og eitt það besta á plöt- unni er eftir Foley og svo er þar aö finna tvo gamla standarda. 1 heildina er yfirbragð plöt- unnar rólegt og afslappað en inn á milli eru þó ágætir rokkarar. Það er aðeins eitt lag sem ég felli mig ekki vel við en það er My Legionnaire. Best finnast mér lögin ,,The Death Of The Psychoanalyst Salvador Dali, M.P.H., Theatre Of Cruelty og Phases of Travel. Ellen Foley og Clash komu manni svo sannarlega á óvart með plötu þessari. Ég heföi sjálfur kosið kraftmeiri rokk- plötu, en sætti mig þó vel við þessa.

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.