Helgarpósturinn


Helgarpósturinn - 13.03.1981, Qupperneq 21

Helgarpósturinn - 13.03.1981, Qupperneq 21
21 Jie/garpásturinn. Föstudagur 13. mars 1981 He/garpósturinn reynir kórealanska /anc/nemann Hyundai Pony Stendur undir verðinu en er lítið spennandi Mynd: Jim Smart Kóieanski „smáhesturinn” i islensku vetrarveðri. Ef vel er að gáð ininnir hann i útliti á bíla eins og Passat Hillman Avenger, Morris Marina og Jafnvel Datsun Cherry. Bilaiðnaður heimsins er á krossgötum. Sivaxandi tiikostn- aður, sem veldur hækkandi verði, og stöðugt hækkandi oliuverð, veldur þvi, að framleiðslan mun smám saman safnast á hendur örfárra risafvrirtækia. i Banda- rikjunum, Evrópu og Japan. Þeir minni i bransanum munu detta uppfyrir fyrr eða siðar hafi þeir ekki vit á að ganga i lið með ris- unum, er álit fróðra manna. En auk þess ei; nýtt land á hraðri leið að gera sig gildandi i bílaiðnaðinum, og raunar flestum öðrum greinum iðnaðar. Það er Suður-Kórea. Þar hefur á undan- förnum áratugum verið byggöur upp ótrúlega fjölbreyttur og full- kominn iðnaður. NU hefur fyrsti angi af bila- framleiðslu Kóreumanna borist til Islands. Það er fyrirtækið Hyundai, sem hefur haslað sér völl hér, og flytur hingað fyrir milligöngu Glöbusar h/f, fólks- bila undir nafninu Pony. Fimm manna bil, „fullstóran” á evrópskan mælikvarða, og að sjálfsögðu er verðið lágt miðað við það sem gengur og gerist i þessum efnum hér á landi. Hann kostar 66.500 krónur, með ryð- vörn og stereo Utvarpi-/segul- bandstæki. Pony er raunar aðeins brota- brot af þvi sem þetta 34 ára gamla kóreanska fjölskyldufyrir- tæki framleiðir. En að telja það allt upp væri að æra óstöðugan. En til gamans má nefna hluti eins og skip af öllum stærðum og gerðum, járnbrautarlestir, vegi, raforkuver — og allt sem til þeirra þarf, fatnað, iþróttavörur. hljóðfæri, niðursuðuvörur, hljóm- flutningstæki (o.s.frv. o.s.frv.). Samt sem áður er Ponyinn alls ekki kóreanskur i húð og hár, (eða járn og plast!). Vélin er gerð eftir sömu teikningu og vélin i Lancer og kramið er raunar allt frá Mitshubishi. Hönnuður er italskur, og sé Ponyinn skoðaður i krók og kring má sjá svip ýmissa gamalkunnra evrópskra bila svo sem Passat, Morris Marina, Hill- man Avenger og jafnvel Datsun Chery. Hvað snertir tækni og ótlit er Pony þvi gamaldags, að innri gerð nánast japanskur anno 1973 eða svo. En eftir lauslega skoðun og stuttan reynsluakstur gefur hann þó ekki þá tilfinningu, að frágangurinn sé lika japanskur. Að innan er billinn litt spennandi að sjá, og það gaf ekki góð fyrir- heit, að talsvert skrölt var á tveimur stöðum i þeim bil, sem ég reyndi, annarsvegar neðst á mælaborðinu, og hinsvegar i plötu á stýriskrossinum, en flauturofarnir eru á tveimur litl- um tökkum eins og á mörgum japönskum bilum, þess ber þó að geta að bíllinn hafði ekki verið yfirfarin og undirbUinn til af- hendingar. Samt sem áður kom billinn mér nokkuð á óvart. 1 fyrsta lagi virð- ist vera sæmilega þykkt stálið i honum, enda er hann þungur, eða 910 kiló. Það finnst mér lika fljót- lega i akstri. Hann er nokkuð stöðugur og fer vel með hraöa, en stýrið i þyngra lagi. Skiptingin er létt og nákvæm, og vélin (1439 rUmsm., 68 hestöfl við 5000 snUn- inga) ágætlega viðbragðsnögg og frisk. Þess var lika að vænta þar eðLancerinn náði allmiklum vin- sældum á sinum tima. Að þvi er gefið er upp frá verksmiðjunum er bensineyðslan 7—9 1. á 100 km, eftir aðstæðum. Sökum veðurlags og færðar var ekki auðvelt að reyna bilinn til neinnar hli'tar á þeim stutta tima sem ég hafði til umráða. Það var bæði skafrenningur og fljUgandi hált, og billinn þar að auki á sum- ardekkjum. En þetta eru radial- dekk með frekar grófu munstri, og það er ekki hægt annað en hrósa þeim. Eina þolraunin sem ég lagði bilinn i, ef þolraun skyldi kalla, var nokkuð djUp lausamjöll á Olfarsfellsveginum. Ekki bar á öðru en hann flygi gegnum tvo skafla áreynslulitið og það upp i móti. Við urðum að gefast upp i þriðju tilraun vegna timaskorts, en þá voru ekki ftir nema fáeinir metrar i gegn. Við gassalega keyrslu gegnum skaflana reyndist nokkuð auð- velt að halda réttri stefnu og 16.5 sm. undir lægsta punkt reyndist nóg til að billinn lagðist ekki á „kviðinn”. Snjórinn var raunar léttur i sér og laus og þvi auð- veldur viðfangs, en engu að siður litur Ut fyrir að Pony sé skárri i snjó og hálkuen margir japanskir bilar. Og sumardekkin eru undra- góð, þótt ég sé ekki að mæla með þeim framyfir góð vetrardekk. Eins og fyrr segir gat ég litið reynt bflinn. En það hefur rall- ökumaðurinn Omar Ragnarsson gert, að hans niðurstaða er sU, að íjöðrunin (stifur afturöxull og fjaðrir að aftan, gormar að fram- an) sé of grunn, þ.e. slái auðveld- lega saman i holum. Þá fannst honum stýrið leiðinlegt og billinn of þröngur. Undir það siðasta get ég tekið, bæði hvað varðar fótarými afturi og farangursrýmið, sem er bæði stutt og grunnt. Ekki bætir það heldur Ur skák, að varadekkið liggur flatt, greypt niður i skott- gólfið að nokkru leyti og tekur dýrmætt farangurspláss. I heild má segja, að Hyundai Pony sé litt spennandi og gamal- dags, en aksturshæfni alls ekki svo slæm, miðað við venjulegt aksturslag venjulegra fjölskyldu- ökumanna. Hann ætti að standast flestar lágmarkskröfur fyrir það verðsem hann er boðinn á, en lik- lega eru aðeins Trabant, Wart- burg, Lada og pólski Fiatinn Polanzky ódýrari. Um endingu er að sjálfsögðu ekkert hægt að segja. Einn Pony mun þó hafa verið á bilaleigu hér á landi i um það bil ár og likað alveg þokkaiega. Lausn á síðustu krossgátu • s 3 'fl X V' 3 5 L £ / r fí R L fí G ‘ L o 5 H fí T\ 5 m £ / /< u fí F T U R L J Ö sn n 5 V £ / r p/ /77 fí V u R £ 5 3 fí L fí R r £ L P u R G fí R / /77 1 K / L L j 5 l< n L L fí R fí /? í> /V fí K / /V U N N P Ö R r U pn F R O / /V 5 fí N ó U J< n r r / £ r fí D 1 fí F fí R l< ö 5 r U R. 'fi R L r 5 r / N 6 K R 'fí B fí L fí F fí r fí U /3 J fí tz 6 o L fí R 3 R £ J 5 u 5 B p 8 R O V fí R K £ y J fí R L / N u 'R L fí O fí V fí /V £ / 2> u R S77 'fí V L ft !Z / r Ý R r fí • fí /V // fí « * £ / u u KROSSGÁTA ;tt_ vr K." 5Trul fíjr VRftUG —3— TfíLID ’/L'flT Bindi £TNI NO. ST/LLfí HÖRFfl UNfífíN þvO/T fORfl Bol- /NN HN/T FUKflR fírfl LRS /NN Zf TÓNN KRlK moLi J Ö T 5PRHNU SnmHL. 2E/HS STflUR FoksK' £M HflPP Lpmnpfl NL.'/F’ RNóflÐ/ HLjöD 'rfllL/t) 1 ERKI HY'iLV HúS VUR fe'flWo Lh\jm vissfí eltss NEYTJ 'ILfíT ’ILHTrfí Stefnu flrl Wuóir’ KHRLM sa/nni- þf?nur TZUFlr ?EY)AP KÖGPi t SKÓ6RR. pyr? V 'fí SKfíK BoflV/ TfcZlfl 'OTrfí •T- f LYófí Sfléfl NIRÐUP IEINS ÉINS um TS G LflNN flfl KETfl/ /tJRNNI ILrfl fíVlR S/KUR HOV SKRÝTdj rmfíNrV ’/STRU rn HVILVI PÚKfí LiNS u/n n NNLS6 FÆD/l k/krð f POKR R HLBYRjK Bufír STKtíUÍ! ; R'oSTuR E/NS U/f) / END. rimH ÍÍILS ÞEFfl- u SUÐfl tyfíRfl TfíHGR Num UÐ\HN : • st/ng UR/nN SFER RflUS Nftum þURRKiq ÚT VKRUp TflLfl LOKft ORrD OHRElJ KflÐ titill t 'fí PElKN. UmUR sk.st ð/flóLRR RFI5UR RfíSfll? —v— 1 1 ódLDRfl Bol< LEKfl

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.