Helgarpósturinn - 03.04.1981, Blaðsíða 13

Helgarpósturinn - 03.04.1981, Blaðsíða 13
12 Föstudagur 3. apríl, 1981. h&lrjarfin^tl irínn hp/g^rpncztl irinn Föstudagur 3. apríl, 1981 Eiea ...meira til aft drepa timann en af mikiili trúhneigö." ...samansafn af skrýtium úr Æskunni..." Viðial: Páll Pálsson lelkarl! — svavar Gesis i lieigarposisvioiail Spurning: — Hver er skemmtilegasti út- varpsmaðurinn okkar? Svar flestra: — Nú auðvitað hann Svavar (iests. Sem tekur brosandi á móti mér einn morguninn á lagernum sin- um. og við förum „bakvið” einsog finir menn. Svavar sest i skrif- — Hvaða augurn liturðu fram- tiðina? „Ég lit b.jörtum augum til hennar. Ég hef alltaf verið bjart- sýnismaður og reyni að sjá það góða i öllum hlutum. Ég mun starfa áfram við mitt fyrirtæki. Ég vonast þó til að verða ekki há- aldraður og enda inná einhverju elliheimili, kolruglaður. Guð- mundur vinur minn Jónsson söngvari býöur mér i nefið i hvert skipti sem við hittumst, og ég ég segi alltaf við hann: Ég skal þiggja i nefið þegar ég verð 75 ára. Og svo skýt ég mig daginn eftir”. þá kemur i ljós að megnið af is- lenskum sjómannalögum er á plötum sem ég hef gefið út og svona má halda áfram. Það er erfitt aö sigla milli skers og báru en ég held mér hafi tekist það og varla væri ég starfandi fyrir út- varpið enn i'dag ef ekki væri álitið að ég sýndi fyllsta heiðarleika varðandi þetta atriði”. — Ertu það sem þú ætlaðir að verða þegar þú værir orðinn stór? „Nei, ég var i menntaskóla þegar ég fékk hljómlistarbakteri- una og hún er ólæknandi Ég sé útaffyrirsig ekki eftir þviaðhafa lent i þessu starfi. En að starfa sem hljóðfæraleikari i dans- hljómsveiter ákaflega leiðigjarnt og alltaf verið illa launað starf. beir sem byrja á þessu ungir og hanga i þessu i 10—15 ár, gefast svo upp, standa uppi ómenntaðir og réttinda’lausir allsstaðar og Myndir: Jim Smari hlaðið svo uppá sig, ég á útgáfu- rétt að svo miklu efni að það er ekki hægt að hlaupa frá þessu, — og kaupandi að þessu mundi eng- inn finnast. Ég verð þvi að halda áfram og ætla að gefa fleiri titla út i ár en nokkru sinni áður”. Hl|ómplðlan og úlvarpio — Er ekki erfitt að vera hljóm- plötuútgefandi og gera um leið tónlistarþætti fyrir útvarpið? Ertu ekki sakaður um að aug- lýsa sjálfan þig? „Ekki veit ég hvað þú átt við með þvi að spyrja hvort ég sé að auglýsa sjálfan mig. Ætli flestir viti ékki nú orðið hver ég er. Það væri þá frekar hægt að tala um að ég væri að auglýsa mitt fyrirtæki og þær plötur, sem ég gef út. Alla vega hef ég enn ekki verið staðinn að slikri auglýsingastarf- semi i' þau 30ár, sem ég hefi verið viðloðandi útvarpið. Reyndar eru SG-hljómplötur sautján ára. Og þá ætla ég að svara fyrri spurningunni. Jú, það er erfitt að vera hljómplötuútgefandi og gera um leið tónlistarþætti fyrir út varpið. Astæðan er nefnilega sú, að ég tel, að þessir þættir, sem ég sé um liði fyrir það, að svo mildð er til af plötum, sem ég hef gefið út.Ég stend mig iðulega að þvi að velja aðrar plötur en þær sem ég hef gefið Ut til að kalla ekki yfir mig nöldur. Ætli ég t .d. að taka fyrir sjómannalög i einum þætti ***** • n «<n*~- niMikíim «6 tm nmum mma híubó verða þ\’i t.d. að fara að keyra sendiferðabil eða vinna á lager hjá heildsala. 1 þessu sambandi get ég bætt við að ég ræddi um Jan heitinn Morávek i útvarps- þætti um daginn, þá var mér sögð sú saga þegar ég var að viða að mér efni, að það hefði verið skylda ungs fólks i Austurriki, sem langaði að leggja tónlistina fyrir sig að læra jafnframt ein- hverja iðngrein ef þvi seinna gengi illa á tónlistarbrautinni, þá hefði það einhvern bakhjarl. Jan Morávek hafði semsagt lært úr- smiði. þó þurfti hann auðvitað aldrei að gripa til hennar, hann var slikur snillingur”. 0(| sKýl mig dayínn ellir tr laslsll, bá trl borðsstól og leggur fæturna uppá afgreiðslubekkinn. t kringum hann eru margir rekkar fuilir af plötum. Svavar er nefnilega ekki eingöngu að spila piötur við góðan orðstir i Ctvarpinu á miðviku- dögum. Hann gefur lika út plötur. Auk þess hefur hann einnig einu- sinni spilað inná piötu sjálfur — hver man tildæmis ekki eftir Þórsmerkurljóði. Það liggur þvi beinast við. þegar ég hef gert skriffærin klár, að spvrja hann fyrst hvort hann fái aldrei leiða á dægurtónlist? Parl ao vera vei iimi „Dægurtónlist hrifur mig ekki og hefur aldrei gert. Sem hljóð- færaleikari lenti ég i þvi að spila þessa tónlist og kynntist henni vel. Ég lærði laglinurnar á svip- stundu og þá einnig textana þó ég þyrfti þess ekki og ég hef alltaf verið haldinn einhverskonar fræðimennsku áráttu, þvi ég vildi einnig vita eitthvað um höfund- ana. Það hefur safnast saman mikill fróðleikur um þetta efni i kollinum á mér og auðveldar mér að setja saman útvarpsþætti um þessa tónlist. En dægurtónlist þarf að vera sérstaklega vel flutt svo að ég setji þesskonar tónlist á plötuspilarann heima. Ég hiusta fyrst og fremst á jazztónlist og þar er af gifurlega miklu að taka”. — Er hún ekki angi af meiði dægurtónlistar? „Kannski og kannski ekki. Jazztónlistin er skapandi tónlist en dægurflugurnar ekki. Ég viðurkenni engu að siöur að mikið er til af fall- egum og vel gerðum dægurlögum en þau höfða ekki til min, jafnvel þó ég hafi það sem aukastarf um þessar mundir að kynna aðallega dægurtónlist. Þar segi ég að sjálf- sögðu allt um hana sem ég veit og tala vel um það sem vel er gert". — Hugðarefni önnur en tónlist? „Já, það er nú sitt litið af hverju. Ég er i Lions-hreyfing- unni og starfa þar alltaf mikið. Klúbburinn sem ég er i hefur stutt viö bakið á barnaheimilinu Sól- heimum i Grimsnesi þarsem eru 40 vistmenn, þroskaheftir. Nú, svo skrepp ég 2—3 sinnum á sumri i lax með góðum kunningj- um, og finnst það mjög ánægju- legt. Svo fer ég á skiði, ég var mikill skiðaiðkandi sem ung- lingur, hætti siöan i 30 ár, en byrj- aði aftur fyrir nokkrum árum, og finnst það mjög hressandi”. Pólilíhin — Hvar ertu i pólitikinni? „Ég væri liklega kommi i dag, ef Þjóðviljinn hefði birt grein sem e'g sendi frá Ameriku 1947. Fósturfaðir minn var Alþýöu- flokksmaður og fylgdi Sigfúsi Sigurhjartarsynio.fi. i Sósialista- flokkinn þegar Alþýðuflokkurinn klofnaði á sinum tima, og siðan var bjóðviljinn dagleg fæða á minu heimili, — ég lenti meirað- segja i þvi' að bera hann út i 2 vetur, og vann við kosningar hjá kommum sem sendisveinn voriö sem ég var 14 ára. En ég hafði náttúrulega engan áhuga á stjórnmálum þá, og þegar hin frægu átök voru niðrá Austurvelli ’49. sat ég heima og spilaði djass- plötur og frétti þetta fyrst i út- varpinu um kvöldið. Þegar ég var viö tónlistarnám i Bandarikj- unum a árunum ’46—’47 fór ég mikiö á djasshljómleika og sendi Þjóðviljanum grein um hljóm- leika með Duke Ellington. En þeir birtu greinina ekki,svoleiðis og þá hafa liklega rofnað tengsl min við Þjóðviljann. Svo varð ég Sjálfstæðismaöur fyrir tilviljun, en hef lftið haldið á lofti minum stjórnmálaskoðunum. En ég held, einsog svomargiraðrir, að það sé nákvæmlega sama hver er við völd i þessu landi, það getur eng- inn stjórnað þvi”. siiihuieihrii — Svo viðsnúum okkur að æsku þinni — varstu td. i KFUM? „Já, en meira til að drepa tim- ann en af mikilli trúhneigð. Ég var lfka i barnastúku, skátunum og svo auðvitað i KR. Ég gafst fljótlega upp á KFUM þarsem hinn stanslausi sálmasöngur hreif mig ekkert sérstaklega. Leiðandi maður i barnastúkunni var Steindór Björnsson frá Gröf, og hann var alveg einstakur barna- og unglingaleiðtogi. Og hjá honum kynntist ég allra fyrst þvi sem heitir aö koma fram. Ég var látinn leika i smáleikriti, og talaði svo hratt að ég var búinn með það 10 minútum á undan hinum. Svo samdi ég sjálfur litið leikrit en það var flutt hjá nokkr- um stúkum og þótti skemmtilegt. Æ, um hvað það var? Þetta var svona samansafn af skrýtlum úr Æskunni og fleiri blöðum sem ég tengdi saman. Mest voru þetta skrýtlur um krakka að svara útúr spurningum kennarans, og féll i góðan jarðveg þarsem það voru mestskólakrakkarsem fluttuþað og hlýddu á það. Já, svo var ég nokkur ár i Skátafélagi Reykjavikur og undi mér nokkuö vel þar nema á sumrin. Þá var alltaf farið i úti- legur og i útilegunum var alltal fariðf svona hjálp-i-viölögumleik. En þarsem ég var svo litill var ég alltaf látinn leika þann viðbeins- brotna og þegar ég var búinn að vera fjórar útilegur i fatla, þá gafst ég upp. Annars vil ég Skáta- hreyfingunni allt hið besta, þetta er hreyfing sem hefur mikið upp- eldislegt gildi, en litið verið sinnt siöastliöin ár. Mér finnst alveg bráðnauðsynlegt að efla Skáta- hreyfinguna”. Slollur HR-ingup — En KR? „Já, ég ólst upp i Vesturbænum og það leið ekki á löngu uns ég fór að reka nefið öðruhvoru inn á skó- verkstæði Guðmundar Ólafs- sonar formanns neðst á Vestur- götunni, og lét skrá mig i félagið 5 eða 6 ára gamall. Svo æfði ég knattspyrnu sem barn og ung- lingur hjá KR, en lenti aldrei i að keppa, þvi ég var eitt þeirra Reykjavikurbarna er voru alltaf sendir i sveit á sumrin. Ég fór þvi alltaf úr bænum i þann mund sem mótin voru að byrja á sumrin, en þegar ég kom aftur heim voru þau búin. En ég lit alltaf á mig sem KR-ing og er stoltur af þvi, þó ég hafi lent i þvi að keppa i hlaupum undir merkjum ÍR, en það hliðarspor kom til af þvi að þeir sem æfðu meö mér voru i þvi félagi". El ég er lasislí — NU þykir eflaust mörgum forvitnilegt að vita hvernig þú ferð aö því að vera svona orð- heppinn og fyndinn? Liggurðu kannski yfir brandarabókum? „bað eru nú kannski tveir óskyldirhlutir.aðveraorðheppinn og að segja brandara. Og ég veit ekki hvort ég fell i þann flokk aö vera orðheppinn. En ég held að það sé mjög skemmtilegt að vera orðheppinn, og i eitt skipti hef ég reyndar verið ánægður með þaö sem sagði. Ég var þá staddur i Þjóðlei khúskjallaranum eftir frumsýningu á aöalsviðinu, og það vindur sér að mér ungur leik- ari, sem var greinilega búinn að fá sér of mikið neðan i þvi og hafði einmitt verið að leika i frumsýn- ingunni og var frekar lélegur. En hann vindur sér semsagt að mér og segir stundarhátt: „Svavar, er það rétt að þú sért fasisti? — og þá var ég svo heppinn að geta svarað honum strax: „Ef ég er fasisti, þá ert þú leikari”. En það gegnir öðru máli með skrýtlur. Ég les þær ef ég rekst á þær i blöðum, mér eru lika oft sagðar góðar skrýtlur, og ég man þær. gleymi þeim ekki einsog svo margir virðast gera”. — Hefur fólk samband við þig beinlinis til að segja þér einn góðan? ,,Já, ég er oft stoppaður og sagðir brandarar sem ég hef heyrt svona 20—30 sinnum áður, og hlæ alltaf jafnmikið, þvi maður má ekki móðga þessa ágætu vini sina”. Besli Drandarinn Geturðu sagt mér hver er besti brandarinn, sem þú hefur heyrt? „Ég kann svo mikið af þeim, að það er útilokað að velja einhvern einn. Hinsvegar bý ég stöku sinnum til skrýtlur og varð dálitið montinn um daginn þegar að strákurinn minn segir mér skrýtlu, sem hann sagði að kennarinn sinn hafi sagt þeim i bekknum og fullyrti kennarinn, að þetta væri besti Hafnar- fjarðarbrandarinn, sem hann hefði heyrt. Hann mundi þó ekki hver hefði sagt sér hann. En þennan Hafnarf jarðar- brandara bjó ég til og sagði i út- varpinu. Eigum við bara ekki að segja aðþettasé besti brandarinn þessa stundina: Hafnfirðingur nokkur var staðinn að þvi að falsa tiu króna seðla. Hann þurrkaði út annað núllið aftan af hundrað króna seðlum”. — Hefurðu samið eitthvert gamanefni sjálfur? „Já, ég hef samið gifurlega mikið af gamanefni fyrir marga skemmtikrafta: Gunnar og Bessa þegar þeir voru hvað virkastir hér um árið, Árna Tryggvason, Karl Einarsson, Jörund Guð- mundsson — svo fyrir ýmsa út- varpsþætti sem ég hef verið með, en aðrir hafa þá flutt það gaman- efni. En gamanvisur hef ég aldi-ei getað samið og á raunar erfitt með að setja saman eina litla visu. Hef þó mjög gaman af vis- um les þær mikið svo og ljóð. Greinilega leggst þetta ekki i ættir, þvi bróðir minn var hag- mæltur mjög og gerði mikið af þvi að semja gamanefni i bundnu máli, þannig að þetta virðist sum- um gefið en öðrum ekki”. Einn um marhaoinn — Hvernig er að vera hljóm- plötuútgefandi i dag? „Ég byrjaöi á mjög góðum tima, 1964, og þá var bara eitt fyrirtæki sem gaf út plötur, Is- lenskir tónar sem voru þó að draga saman seglin og útgáfunni nánast lokið. Svo ég var einn með markaðinn i nokkur ár og hver einasta plata sem ég gaf út, þær voru svona 4—5 á ári, seldust mjög vel. Ég álit að islenski markaðurinn beri svona 30 plötur á ári, og þeir sem gefa út plötur gætu haft það mjög gott ef plöt- urnar væru ekki fleiri en 30. En af þvi að það eru gefnar út 60—70 á ári, þá hefur það enginn gott, og raunar er þetta orðið hliðarstarf hjá flestum fyrirtækjum, nema minu. Steinar hf. og Fálkinn eru fyrst og fremst innflutningsfyrir- tæki, Jón ólafsson rekur hljóm- plötuverslun og er nú kominn með plötupressu. — Ég myndi hætta hljómplötuútgáfu strax i dag ef þaö væri hægt. En þetta hefur

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.