Helgarpósturinn - 03.04.1981, Page 1
r r t
helgarpásturinn
Fasteignamarkaður
LÁNAMARKAÐURINN
Húsnæðisstjórnarlán: Bygg-
ingalán fyrir 2. ársfjórðung 1981
hafa enn ekki verið reiknuð út, en
á 1. ársfjórðungi voru lán vegna
nýbygginga þessi:
Til einstaklinga 84 þús. kr.
Til 2—4ra m. fjölsk. 107 þús. kr.
Til 5—6 m. fjölsk. 127 þús. kr.
Til 7 m. fjölsk. o.íl. 147 þús. kr.
Þeir sem gerðu ibúðir sinar
fokheldar á 1. ársfjórðungi áttu
rétt á þessum lánum. Ctborgun
þeirra fer fram i þrennu lagi. Á 2.
ársfjórðungi hækka lánin skv.
hækkun byggingarkostnaðar.
Tilkaupa á eldra húsnæðigetur
fólk fengið allt að 50% nýbygg-
ingalánsins, ef um fyrstu ibúð er
að ræða. Þeir sem skipta um ibúð
komast hæst i 25—30% af nýbygg-
ingalánum og aldrei er lánað
meira en sem nemur 50% af
fjármagnsþörf viðkomandi.
011 lán Húsnæðismálastofnunar
eru með 2,25% vöxtum og 100%
visitöluhækkun samkvæmt láns-
kjaravisitölu. Nýbyggingalánin
eru til 26 ára og er 1. árið afborg-
unarlaust. Lán vegna eldra
húsnæðis eru til 16 ára, 1. árið
sömuleiðis afborgunarlaust.
Lánin falla i gjalddaga fjórum
sinnum á ári og eru greiðslur
jafnar að öðru leyti en þvi að visi-
tala bætist ofan á.
Einstaklingar með sérþarfir,
ss. ellilifeyrisþegar og fatlaðir
geta fengið lán til endurbóta á
húsnæði sinu.
Lifeyrissjóðslán:
Lifeyrissj. verslunarmanna:
Hámarkslán eru 120 þús. kr. eftir
lOára þátttöku i sjóðnum, 80 þús.
kr. eftir 5 ár og 48 þús. kr. eftir 3
ár. Lánstimi 10—25 ár, vextir 2%,
100% verðtrygging samkvæmt
byggingavisitölu.
Lifeyrissj. Dagsbrúnar og
Framsóknar: Hámarkslán 57
þús. eftir 5 ár, 13 þús. eftir 3 ár.
Láústimi 20 ár, vextir 2,5%
verðtrygging 100% samkvæmt
lánskjaravisitölu.
Lifey rissjóður Eimskips:
Hámarkslán 50 þús. kr. eftir 5
ár og 25 þús. eftir 3 ár. Lánstimi
10—25 ár, vextir 2,5%, verðtrygg-
ing 100% samkv. lánskjaravisi-
tölu.
Lifeyrissj. Iðju, Akureyri:
Hámarkslán 25þús. kr. til 15 ára.
Vextir eru 2% og 80% verðtrygg-
ing samkv. lánskjaravisitölu.
Lifeyrissj. Iðju, Reykjavík:
Hámarkslán 60 þús. Lánstimi 20
ár, vextir 2%, verðtrygging 100%
samkv. lánskjaravisitölu.
Lifeyrissj. Málm- og skipasm.:
Hámarkslán 50 þús. eftir 8 ár og
20 þús. eftir 3 ár. Lánstimi 20 ár,
vextir 2%. verötrygging 80%
samkv. lánskjaravisitölu.
Lifeyrissj. SIS: Hámarkslán
100 þús eftir 5 ár, 50 þús. eftir 3
ár. Lánstimi 10—25 ár, vextir 2%,
verðtrygging 100% samkv.
byggingavisitölu.
Lifeyrissjóður starfsmanna
rikisins: Hámarkslán 80 þús kr.,
lánstimi 25 ár, vextir 2%,
verðtrygging 100% samkv. láns-
kjaravisitölu.
Bankalán:
Forvextir af vlxlum eru nú
33%. Vaxtaaukalán bera 45%
vexti. Þau eru lengst veitt til
þriggja ára og skemmst til 6
mánaða. Skuldabréf með láns-
kjaravisitölu bera 2,5 vexti, en
fulla verðtryggingu samkv.
lánskjaravisitölu. Þau eru
skemmst veitt til fjögurra ára.
Veðskuldabréf i fasteigna-
viðskiptum bera yfirleitt 20%
ársvexti.
Lánskjaravísitala frá 1. april er
232 stig, en var i mars 226 stig og
hefur þvi hækkað um 2,65%,
Byggingavisitala frá l.apriler
682 stig, var 626 stig áður og hefur
þvihækkaðum 8,9%.
Lifleg sala — en verðid
hækkar þó litið
Þetta telja fasteignasalar vera helsta
einkenni fasteignamarkaðarins núna
„Það sem einkennir fasteignamarkaðinn helst núna er að hann er
liflegur og það er greinilegt að fólk hefur sæmilegan aðgang að pen-
ingum i lifeyrissjóðum og bönkum”, sagði Friðrik Stefánsson við-
skiptafræðingur og fasteignasali í Þingholti i samtali við Helgar-
póstinn.
Friðrik sagði, að verðið hefði þó ekki hækkað eins mikið og á
sama tima i fyrra. Undir þetta tóku þeir líka, Sverrir Kristinsson I
Eignamiðluninni og Ragnar Tómasson I Fasteignaþjónustunni.
Allir voru þeir sammála um að framboð á fbúðum væri mikið um
þessar mundir og eignirnar seldust fljótt. En þrátt fyrir það hefur
verðið litið hækkað og Ragnar taldi það meira að segja hafa lækkað
hlutfallslega á fullgerðum ibúðum miðað við ibúðir I smiðum.
„Það er eflaust vegna þess hve rekstrarfé er orðið dýrt. Það er
ekki fjarri lagi að áætla að 1/5 hluti Ibúðarverðsins séu vextir”,
sagði Ragnar.
Friðrik tók i sama streng og taldi notaðar íbúðir full ódýrar nú
miðað við byggingarkostnað.
Annars sagði Ragnar Tómasson að það sem einkenndi markaðinn
mest núna væri getuleysi unga fólksins til að byrja fasteignakaup.
Lifeyrissjóðslán og húsnæðisstjórnarlán væru langtum minni hluti
kaupverðs íbúðar nú en áður var og mismuninn yrði fólk aö fá með
skammtímalánum. sem bæru feikilega háa vexti, sem aftur til að
kóróna allt saman væru ekki lengur frádráttarbærir frá skatti i
sama mæli og áður. Þetta allt saman leiddi til þess að ungu fólki
væri nær ókleift að komast yfir sina fyrstu ibúð.
Fasteignamarkaður
Fjárfestingafélagsins:
??Byrjunin gefur til-
efni til bjartsýni”
segir Gunnar Helgi Hálfdánarson
framkvæmdastjóri
Fjárfestingafélagsins
„Þessir fyrstu dagar gefa svo
sannarlega tilefni til bjartsýni
varðandi framhaldið,” sagði
Gunnar Helgi Hálfdánarson,
framkvæmdastjóri Fjár-
festingafélagsins, um nýstofn-
aðan fasteignamarkað
félagsins.
Fasteignamarkaður Fjár-
festingafélagsins hefur skrif-
stofur að Skólavörðustig 11, 3.
hæð og eru þar fjórir starfs-
menn 1 fullu starfi. Fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins er
Pétur Þór Sigurðsson lög-
fræðingur.
— En hvernig stóð á þvi að
þetta fyrirtæki var yfirleitt
stofnað? Nú skyldi maður ætla,
að nægilegur fjöldi fasteigna-
sala væri starfandi á Reykja-
vikursvæðinu.
„Það var áhugi okkar á verð-
bréfum, sem kom okkur af
stað,” sagði Gunnar Helgi. „Við
teljum fasteignamarkaðinn
vera mikilvæga uppsprettu veð-
skuldabréfa og fórum þvi að
kanna hann. En þá kom i ljós, að
verðbréf vegna fasteignavið-
skipta skipa hlutfallslega minni
sess nú en áður. Siðast liðinn
áratug hefur útborgunarhlutfall
i fasteignaviðskiptum farið
hækkandi úr 50% i 75% og þetta
hefur orðið til þess
að kaupendur og seljendur
hafa átt i si-
3>
Hvað
sem fyrir
„Það er ekkert við þvi aö
segja. Hér ríkir samningsfrelsi.
En hvernig ungt fólk á að standa
við þessar greiðslur, get ég ekki
séð”, sagði Sverrir Kristinsson
hjá Eignamiðluninni, þegar við
spurðum hann hvort verðtrygg-
ing sú, sem Fasteignamarkaður
Fjárfestingafélagsins boðar, sé
framtíðin.
Sverrir sagðist vilja benda á
að undanfarið hefði kaupgjalds-
visitala ekki hækkað jafn mikið
og lánskjaravisitalan og þvi
hefði aukist vandi þeirra, sem
væru með verðtryggð lán.
„Svo vitum við það þau okkar,
sem hafa keypt spariskirteini
rikissjóðs, hve hækkun þeirra
hefur verið notaleg. En hvernig
liöi okkur ef við værum orðin
greiðendur?”
Ég býst við að það væri gott
fyrir gamla fólkið að fá verð-
tryggingu, en gallinn er sá, aö
unga fólkið byrjar ekki á að
kaupa stærstu eignirnar. Þaö
byrjar smátt og vill losna sem
fyrst viö skuldabyrðina.
þeir
voru?
Ég hef ekki orðið var við að
fólk vilji hafa fasteignaviðskipti
verðtryggð, en teldi það æski-
legt ef það væri viðráðanlegt og
heilbrigð efnahagsmálapólitik
væri i þjóðfélaginu”.
„Æskileg þróun”
„Ég er sannfærður um að
þetta er æskileg þróun og að
verðtrygging muni eiga eftir að
ryðja sér til rúms”, sagði
Ragnar Tómasson i Fasteigna-
þjónustunni. „En það þarf ekk-
ert nýtt fyrirtæki til að koma þvi
i kring. Að öðru leyti hef ég ekk-
ert út á Fasteignamarkað Fjár-
festingafélagsins að setja. Þeir
hafa fullan starfsrétt.
Við getum ekki breytt
markaðinum I einu vetfangi,
til þess bindur hvað annaö of
mikið. Allar aöstæður á mark-
aðinum eru mjög keðjuverkandi
og eiri sala hefur áhrif á það
hvernig fjöldi annarra verða.
En við erum tilbúnir
til að stuðla að þessari
þróun. Þessi
ja.
$
Sömu kjör fyrir harða
samningamenn og
hógværa
Fasteignaþjónustan
veitir fastanafslátt
af sölulaunum
fasteigna í
einkasölu
„Okkur finnst eðlilegt, aö eitt sé
látið yfir alla ganga og það sé
ekki háð samningshörku
seljenda, hve góð kjör þeir fái.”
sagði Ragnar Tómasson hjá
Fasteigaþjónustunni, þegar
blaðamaður HP ræddi við hann
um nýtt fyrirkomulag á einkasölu
ibúða hjá fyrirtækinu.
Fasteignaþjónustan hefur aug-
lýst, að hér eftir verði sölulaun
vegna ibúðar, sem látin hefur
verið til þeirra i einkasölu, 1 1/2%
i stað 2%, enda hafi verið gert um
það samkómulag fyrirfram.
„Það hefur verið opinbert
leyndarmál, að þegar fasteigna-
salar hafa fengið ibúðir i einka-
sölu, hafa þeir gefið afslátt af
sölulaunum, en það er háð sér-
samningi hverju sinni,” sagöi
Ragnar. „Mér finnst að þeir
hógværu meðal seljenda ættu að
fá sömu kjör og aðrir.
Margir vilja frekar samkeppni
milli fleiri fasteignasala um
söluna, en aðrir kjósa að hafa
þetta bara á einum stað. Einka-
sala minnkar vinnuna hjá fast-
eignasalanum og þvi er ekkert
óeðlilegt að reynt sé að finna
reglu sem sé sanngjörn fyrir báða
aðila.”
Þinglýsingar og einka-
samningar
Ragnar Tómasson
Fasteignaþjónustan býður upp
á fleiri nýungar núna, þar á
meðal endurgjaldslausa aðstoð
við þinglýsingu á skjölum vegna
fasteignaviðskipta. Ragnar
sagði, að það væri sifellt meira
verkefni að annast þinglýsing-
arnar. Menn þyrftu að fá
uppáskriftir hjá allt að fjórum
aðilum áður en hægt sé að fá
pappirunum þinglýst og sumir
veigri sér við þessum snúningum,
enda geti það tekið nær heilan
vinnudag.
„Við veitum lika aðstoð við alla
almenna samningagerð. Það eru
oft nágrannar eða ættingjar
að gera samninga sin á milli og
þurfa að fá hlutlausa aðstoð
þriðja aðila til að ganga frá
samningunum”, sagði Ragnar.
Þá kvaðst hann vilja vekja at-
hygli á þvi, að i 14 ár hafi Fast-
eignaþjónustan sent endurgjalds-
laust út skrá með upplýsingum
um þær fasteignir, sem þar séu i
sölu. Þar er gefin almenn lýsing á
eigninni, upplýsingar um verð og
útborgun.
„Þessi skrá er mjög upplýsandi
um stöðu fasteignamarkaðar-
ins,” sagði hann, og er þvi
ómetanleg heimild fyrir þá sem
eru að fara út i kaup eða sölu.
Þarna sjá þeir hvernig framboðið
ei" °6 verölagið á markaðnum.”