Alþýðublaðið - 25.03.1927, Síða 1

Alþýðublaðið - 25.03.1927, Síða 1
Alpýðublaði 6ef£ð út asff Alf»ýdu?fiokknusit 1927. Föstudaginn 25. marz. 71. tölublað. CrAMLA Bí© Boðoriiii Iím sýnd í kvöld kl. Pantaðir aðgöngumiðar afhendast í Gamla Bíó kl. 8- 8 %, en eftir pann tíma seldir öðrum. Erl©md sini'ÉkjDyti* Khöfn, FB., 24. marz. Alt með kyrrum kjörum í Shanghai. Frá Lundúnum er símað: t Shanghai hefir verið tiltölulega friðsamlegt í gær. Fleiri her- deildir Kantonmanna erg nú Isomnar til borgarinnar, og hefir þeim tekist að koma í veg fyrir óróa múgsins í Kinverjahverfum borgarinnar. Yfirmaður Kanton- lierdeildánna í Shanghai hefir lof- að að vernda líf og eignir út- lendinganna þar, en þó búast menn við því, að hætt sé við óróa i kringum útlendingahverfið, því vafasamt þyki, að herstjórninni takist að halda öllu í skefjum. Enn sem komið er, hafa engar fregnir borist um það, að Evrópu- menn hafi orðið fyrir tjóni þar eystra. Balkandeiiunni að ljúka. Frá Lundúnum er símað: Nú er talið mjög liklegt, að Balkan- deilan leiði ekki til ófriðar. Hef- ir verið stungið upp á því, að sænskum herforingjunr verði falið að rannsaka, hvort þær ásakanir itölsku stjórnarinnar á hendur Júgóslövum, að þeir hafi undir- búið ófrið gegn Albaníu, hafi- við nokkuð að styðjast. Verkamenn alíra Djóða síyöia Rínverja. Miöstjórn Alþjóöasambands verkamanna í Amsterdam hefir birt svo látandi yfirlýsingu: „Stjórn AlþjóÖasambands verka- manna hefir rætt síðustu atburð- ina í Kína og lýsir yfir því, að «kki verði það mál á enda kljáð, svo að vel sé, nerna með því að öll hlunnindi og utanríkis-sérrétt- indi séu afnumin með því, að Kína verði fengið tollfullveldi, með því, að feklir verði úr gildi þeir samningar, sem svifta Kína sjálfstæði sínu, og með þvi, að gerðir verði nýir samningar á þeirn grundvelli, að Kína sé jafn- sett öðrum ríkjum. • W A w ðra afmæli ielkfélags Rejrkjavíknr. A útleið eftir Sutton Vane verður leikið í kvöld kl. 8. Aðgöngumiðar verða seldir í dag frá kl. 10. f. h. Hjákranartæki eru beztogódýrustíParís Stjórn Alþjóðasambands verka- manna mótmælir allri sérréttinda- pólitík, því að hún brýtur í raun og veru niður alt þjóðlegt sjálf- stæði, og hún fordæmir allar til- raunir til að halda uppi þessum sérréttindum með hervaldi. Sam- kvæmt þessu styður stjórn Al- þjóðasambands verkamanna þá stefnu, sem landsfélagið brezka og brezki verkamannaflokkurinn hafa tekið, er þeir krefjast þess, að bundinn sé fullkominn endir á öll þau mál, sem nú valda al- þjóða-ósamþykkinu í Kína, með frekari samningum og styður all- ar tilraunir til að hindra, að þrif- ið sé til vopna.“ Myndalistin á Eússlandi. Myndaiistin hefir á hinum síðari árum tekið miklúm framförum á Rússlandi. Með hverju ári vex á- hugi almennings á Rússlandi fyrir söfnum og sýningum. Meðal lista- mannanna gætir mjög þeirrar við- leitni, að þeir velja þær fyrir- myndir, sem eru auðskildar al- menningi. Myndalistin hefir á seinni árum meira og meira nálg- ast veruleikastefnuna. Hún leit- ar viðfangsefna sinna í hinu raun- verulega lífi. En hinar mörgu og mismunandi listastefnur hafa það sameiginlegt, að mest ber á hinu verulega hjá þeim, — vinnunni og lífinu, eins og það er. Erlendis hefir hinni rússnesku list verið tekið ágæta-vel, t. d. á sýningunum í Amsterdam, Ber- lín, París, Dresden og einnig í Japan. Sagnfræði framtiðarinnar mun ekki með þögninni geta hlaupið yfir þann mikla skerf, sem rúss- neskir listamenn hafa lagt fram í þágu byltingarinnar og á þeirn tímum, þegar við hvað mesta örð- ugleika var að etja. Það, sem listamennirnir pú leystu af hendi og bjuggu til, svo að segja á far- aldsfæti, hefir þegar haft ger- ÚTSALA. Til a5 rýma fyrir nýjum vörum verða neðantaldar vörur seldar með afslætti til mánaðamóta: UUartau 15% Morgimhlðlataa 20 %, Ullarflauel 20% Gardfnutau 10(,j) Káputau 15% Allar aðrar vörur seldar með afslætti. — Munið eftir Upphlutasilkinu, það verð- ur einnig niðursett. Motið tældfæriðS Verzl. ®. Beropórsdðttnr, Sími 1190. Laugavegi 11. Tilkynning. Rullupylsur mjög góðar og ódýrar og mjallahvítur freð- fiskur, vel barin. Verzl. ,Örnin‘ Grettisgötu 2. Sími 871. Reynið ný-niðursoðnu fiskbollurn- ar frá okkur. Gæði þeirra standast erlendan saman- burð, en verðið miklu lægra. Sláturfélao Suðurlands. breytandi áhrif á listamenn í Þýzkalandi, Hollandi og Ung- verjalandi. Styrjaldar- og byltinga-árin eru nú liðin, og listamennirnir eru aft- ur seztir að í vjnnustofum sinum. En einnig nú er listin mjög helguð áhrifamiklum atburðum frá hinu stórfenglega tímabili, byltingarár- unurn. ISYJA BÍO Völsunga- saga. Stórfengleg kvikmynd í II. pört- um, 15 þáttum, gerð af hinu heimsfræga Ufa-félagi í Berlín. Útbúin til leikseftir FritzLang. -Fyrripartur myndarinnar verður sýndnr í kvifM og annað kvöld f sfðasta siirn. Aðgöngumiða má panta í sinia 344 frá kl. l;þeirra sé vitjað fyrir kl. 8%, annars seldir öðrum. Páll tséif sson. Wíiiiadi Or^eS - Sroiasert í fríkirkjunni laugard. 26. þ. m. kl. 8V2, helgaður mimaiugu Beethoven’s. Frú Guðrún Ágústsdðttir aðstoðar. Aðgöngumiðar fást í, bóka- verzl. ísafoldar, Sigf. Eym- undssonar, Arinbj. Svein- bjamarsonar, Hljóðfæraverzl- un K. Viðar, Hljóðfærahús- inu og Hljóðfærav. H. Hall- , grímssonar og kosta 2 krónur. Ný egg á 1S aura stykkið. Hatarbílðiii, Laugavegi 42. Sfmi 812. Notið niðursoðna kjötið frá okkffr; það er gott, handhægt og drjúgt. Sláturfél. Suðurlands. Kaupið niðursoðnu kæfuna frá okkur. Hún er ávalt sem ný og öllu viðmeti betri. Sláturfélag Suðurlands.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.