Helgarpósturinn


Helgarpósturinn - 16.10.1981, Qupperneq 5

Helgarpósturinn - 16.10.1981, Qupperneq 5
—he/garpósturinn__ Föstudagur 16. október 1981 5 Högantis Á GÓLF OG VEGGI ÚTI OG INNI Höganás gólf- og veggflísar henta hvort sem j er á heimilinu eða vinnustaðnum. Skoðið úrvalið í sýningarsal verslunar okkar. Höfum einnig Höganás flísalím, fugusement og áhöld. VILJIR ÞÚ VANDAÐ ÞÁ VELUR ÞÚ HÖGANÁS = HÉÐINN = SEUAVEGI 2, SÍMI 24260. Auglýsið í Helgarpóstinum Drunur í trumbum 19 Frávik frá ryþma- dúmpi A tónleikunum voru flutt 6 verk; 4 eftir Áskel Másson og 2 erlend verk, sérstaklega skrifuð fyrir hinn unga slagverkssnill- ing, Roger Carlsson. Þessi 24 ára gamli Svíi hefur þrátt fyrir unganaldur komistgiska langti tónlistarheiminum og leikur hans á Kjarvalsstöðum sýndi að það er ekki að ástæðulausu. Fyrsta verkið var Tokkata fyrir 13 krómatiskar roto-tom trommur, eftir Askel Mássón. Það var sumsé ein trumba fyrir hverja nótu hinnar hefðbundnu áttundar. Þarna var leikin mús- ik á trommur, en slíkt hefur ekki mikið heyrst hérlendis áð- ur,þegar undan er skilinn þáttur tónskáklsins, Áskels Mássonar. Það var forvitnilegt að hlusta á, amk. fyrir þá sem helst þekkja trommur af hefðbundnu ryþma- dúm pi. Coloration var eins og Tokk- ata Áskels, leikin af Roger Carlsson einum . Verkið er eftir Rúmenan Zoltán Caál, sem er búsettur i Sviþjóð. Carlsson lék á vibrafón og samhliða voru flutt trumbuslög af tónbandi (alias segulbandi). Tónbandið flutti nokkuð reglubundið brak (og bresti) sem Carlsson öf sið- an inn i með vibrafóninum. Þessi tónalitun var skemmtileg áheyrnar, stundum fannst manni m.a.s. að Gary Burton væri mættur til leiks með esé- emm (ECM)-lega blöndu af nú- timatónlist og frjálsdjassi, en tónbandið sá siðan um að splundra þeirri tilfinningu. Bláa ljósið, verk fyrir flautur og slagverk eftir Askel, rúnnaði af fyrra settið. Það var samið „eftir lestur samnefndrar sögu bræðranna Grimm”, svo vitnað sé i orð Áskels. Hafandi lesið þær upplýsingar fyrir flutning, er kannski ekki að furða að manni hafi fundist nokkur ævin- týrablær af Bláa ljósinu. Verkið verður ekki ásakað um að vera mdódiskt i hefðbundinni merk- ingu þess orðs, en var engu að siður þekkilegt áheyrnar. Djúpir þankar „Tankar” hét verk eftir Svi- ann Sture Olsson, tileinkað Carlsson slagverksmanni. Nafnið er komið frá þeim siðar- nefnda og „merkir að i þessu verki er um dýpri hugsun að ræða en oftast gerist i einleiks- etýðum”, svo vitnað sé i tón- leikaskrá. Þar segir einnig að skilja mætti verkið sem eins konar spil milli skapandi og eyðandi krafta. Yfírlýsingar af þvitagi eru mjög almennar og næsta marklitlar, flestum tón- verkum mætti lýsa sem slíku samspili. Vera má að næm eyru hafi greint hina dialektisku tog- streitu i Þönkum Sture Olssons, en undirrituðum fannst sem hugsanirnar væru helsti hljóð- legar. Sónata fyrir marimbu og stemmd ásláttarhljóðfæri, eftir Áskel Másson, var hressilegt verk. Sumir hafa kvartað yfir þvi að vibrafónn og marimba séu dauf hljóðfæri, amk. miðað við pi'anó.og erfittsé að komast með þeim i spennuskapandi hæðir. Það varallsekki svo með Marimbusónötuna; þar náðist oft gott ris og meiri sköpun en i fyrrnefndum Þönkum. Siðasta verkið var Sýn, eftir Askel, fyrir kvenraddir og slagverkseinleik- ara, skemmtilegasta verkið á tónleikunum. Það helgaðist af óvenjulegri notkun raddanna og hugvitssamlegu samspili þeirra og slagverksins. Askell Másson er löngu þekkt- ur sem fjölhæfur tónlistarmað- ur, bæði ieigin slagverksleik og sem tónskáld. Hann virðist þó halda þessu tvennu nokkuð að- skildu; i verkum hans saknar maður hins striða ryþma, fjörs- ins og húmorsins sem jafnan einkennir slagverksleik hans. Eða er maður að biðja um það sem ekki má i nútimatónlist? Tómas R. Kinarsson Siðferðið í soranum 19 legt, jafnvel söngleiki, en veriö mislagðar hendur. MeðSaint Jack hefur hann þó vonandi snUið þróuninni við. Þetta er bráðskemmtileg skoð- un á manni sem einhverntima hefur strandað i Singapore, og er þar á kafi i vændis-iðnaðin- um. Jack er afskaplega sann- færandi karakter.þökk sé vönd- uðum leik Ben Gazzara, — hann er þarna á kafi i ólöglegum og að mörgu leyti ógeðslegum bis- niss, en samt hefur hann vissa siðferðistilfinningu. Hann er týpa sem er vinmargur og elskulegur, alltaf reiðubUinn að hjálpa litilmagnanum, og þegar hann er undir lokinn keyptur til að ljósmynda á laun bandari'sk- an þingmann i ástarleik, þá lendir hann ; dálitilli móralskri klipu. t hans heimi er nefnilega yfirleitt allt keypt fyrir peninga — jafnvel ástin. Saint Jack er byggð á sam- nefndri bók eftir Paul Theroux (sem fyrst og siðast er þekktur fyrir frábærar ferðabækur sin- ar,The Railway Bazaar og The Old Patagonia Express) en hann bjó lengi i Singapore. Það er mikið afrek Bogdanovich og kvikmyndatökumannsins Robby Múller að ná fram and- rúmslofti borgarinnar og gera hana að lifandi hluta myndar- innar. Þetta er vel leikin, vel skrifuð og vel gérð kvikmynd, og um heldur athyglisvert efni; Sið- ferðið i soranum. —GA SPENNUM sjálfra okkar vegna! GRAHAM SMÍTH Graham Smith, f iðluleikarinn stórsnjalli leikur á þessari plötu f jölmörg íslensk lög eftir kunna höfunda. Nokkrir bestu hljóðfæraleikarar Islands aðstoða Graham. • fl Frábærar útsetningar Olafs Gauks. Þetta er p/ata sem hlustandi er á Þetta erplata, sem höfðar til hlustenda á öllum aldri, enda hefur ekki nejn plata, sem við höf um gef ið út undanfarin ár hlotið jaf ngóðar viðtökur og þessi pfata Gra- ham Smith, Með töfraboga. Plata og kassetta fást í hljómplötuverslunum um land allt. Verð: kr. 148.-

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.