Helgarpósturinn - 16.10.1981, Qupperneq 24
BLA BLA BLA
Ekki var nú vist allt eins fint og
sætt i Lóninu bláa og landslagið.
Eitthvað vesen var á litlu stjörn-
unum. Framleiðandi myndarinn-
ar, sá sem einnig framleiddi
Grease, skipaði nefnilega strákn-
um að gera sig skotinn i Brooke
Shields, kvenhetjunni. Henni lik-
aði vel við strákinn, en svo missti
hann út úr sér leyndarmálið, og i
ljós kom að hann átti aðra kær-
ustu heima. Þótti stelpunni þá
heldur á sig snúið, sem vonlegt
var, og brást hin versta við. Var
þá ástarsenunum frestað til loka
myndatökunnar, i von um að
sættir næðust — og viti menn og
konur: allt fór vel, skötuhjúin
sættust og eru nú að sögn slúður-
dálka bestu vinir.
Bla-bla-ið rakst á viðtal við
Einar örn söngvara Purrksins i
New Musical Express, en Einar
var í London á dögunum að kynna
og selja þarlendum islenska ný-
bylgjurokkmúsik af mikilli at-
orku, að dómi NME. Einar örn
greindi i viðtaiinu frá þvi að
skallapopparar sem eru fyrir
löngu búnir að gleyma hvað þeir
voruað reyna að gera, hafi hindr-
að músikþróunina, en svo kom
Bubbi og ruddi nýja veginn. Ein-
ar segir Purrkinn reyna að höfða
til tilfinninga i fólki sem það beri
venjulega ekki á torg —■ og lofaði
NME að lokum annarri plötu-
sendingu undir nafninu „Eskimó-
ar i dulargervi”, eða þannig
Hljómsveitin Spilafifl gerir það
viðreist þessa dagana. Þeir eru
nýbúnir að fara hring á Æsku-
lýðsmiðstöðvarnar, spila á bar-
áttusamkomu Leigjendasamtak-
anna, i klúbbi N.E.F.S. og i gær
spiluðu þeir við góðar undirtektir
á Hótel Borg. I næstu viku er svo
fyrirhugað að fara að spila i skól-
um og byrja þeir á mánudaginn i
Fjölbrautaskólanum i Breiðholti.
Spilafiflin eru með efnilegri
hljómsveitum um þessar mundir
en hljómsveitina skipa þeir: Sæv-
ar Sverrisson, Birgir Mogensen,
Halldór Lárusson og örn Hjálm-
arsson.
Hljómsveitin Bodies mun vænt-
anlega i næsta mánuði hefja
spilamennsku af fullum krafti en
þeir hafa einu sinni komið fram
en það var á Borginni þegar
hljómsveitin Fall var hér á landi.
Vöktu þeir þá gifurlegan fögnuð,
en Bodies skipa Utangarðsmenn
— minus Bubbi Morthens. Verður
spennandi að fylgjast með ferli
þeirra félaga....
Gaukarnir sitja hér nokkuð hressir,þrátt fyrir mikla hrakninga , á Gauknum sfnum púströrssprungna.
Einmana Gaukar:
Tónlist
okkar er rusl77
„Við erum lélegasta og leiðin-
legasta hljómsveit i heimi,”
sögðu félagarnir i hljómsveitinni
Gaukarnir, þegar þeir komu við
hjá Stuðaranum um daginn.
Gaukarnir eru svo að segja með
öllu óþekktir hér á landi, i hljóm-
sveitinni eru fjórir strákar þeir
Asgeir Sverrisson gitarleikari
(skaldanafn hans er Hinn hóg-
væri gammur), Egill Helgason
sem beitir engilfagurri rödd sinni
óspart og spilar auk þess á
harmonikku, Einar Hrafn bassa-
leikari og Haraldur greifi Hrafns-
son sem lemur trommur. (Hann
, skortir nokkuð tæknina ennþá en
bætir það upp með kraftinum).
En við skulum gefa strákunum
orðið, þeir létu gamminn geysa.
Samfelld vonbrigði
„Ferill okkar er samfelld von-
brigði. Um verslunarmanna-
helgina vorum við t.d. eina
hljómsveitin sem fékk ekki að
spila. Að visu áttum við bókað eitt
ball sem var svikíð. Okkur hefur
heldur aldrei verið boðið að spila
á hljómleikum.”
— Hvernig tónlist spilið þið?
„Tónlist okkar er óskilgreinan-
legt rusl. öllu lélegasta er stolið
úr hverri áttinni. Við erum ekki
pönk.
Einangrun fjallkonunn-
ar
Tónlistin kemur úr fjórum átt-
um og rennur saman i eina heild,
sem er algjört rusl. Fjórföld
dialektík,” segja drengirnir
daprir á svip.
— Enþetta er þá nokkurs kon-
ar tilraunatónlist? spyr blaða
maður uppörvandi.
,,Já”segja þeir feimnir. „Þetta
ertilraun til aðskapa nýjan tón.”
Svo færist kraftur i pilta og þeir
segja með sannfæringartóni:
„Við erum að eyða þessum ömur-
legu tómstundatimum okkar. Það
er Þrennt sem kemur til greina. í
fyrsta lagi, horfa á sjónvarp,
drekka eða æfa. Með Gaukunum
getum við samræmt ailt þetta.
Við viljum gjarnan taka það fram
að þrir Gaukanna eru hamingju-
samlega giftir en einn gengur
laus.” Þeir benda á Harald
greifa.
— Hvernig gengur hjónabandið
hjá ykkur?
„Það hefur litið reynt á það.
Tónlistin tekur allan okkar tima.
Halli kilir það i gegn með stæl-
um.”
— Asgeir, ég sé að þú ert með
kvennabaráttumerki i barmin-
um. Hvaða stælar eru það?
„Upprunalega var fjallkonan
fyrir neðan. Ég vildi undirstrika
kynferðislega einangrun henn-
ar.”
Sjaldan vita tveir þá...
— Er langur ferill að baki
Gauka?
Forsaga málsins er að Einarog
Halli voru að æfa i M.S. með
Húberti Nóa, Sigga Transitor og
Steingri'mi Eyfjörð og var boðið
gigg (Gjuð). En þeir þrir siðast
nefndu gáfust upp. Eitthvað varð
að gera i snatri svo við töluðum
við þessa snjöllu menn, Egil og
Asgeir, en þeir höfðu spilað i
Stellu Bianco. Það voru tveir dag-
ar til stefnu. Við æfðum 10 lög
sem bókstaflega smullu saman.
Nú leið að balli, en þegar við átt-
um að mæta urðum við fyrir töf-
um. Maggi rauði klúðraði öllueða
eins og máltækið segir. Tveir
tala, fjórir drekka, eða Sjáldan
vita tveir þá fjorir drekka. Við
spiluðum á ballinu en allt mis-
tókst. Við vorum á endanum
rdínir af sviðinu og dyraverðirnir
tóku draslið. — Samt höfðum við
tvær grúpppiur. Ellu og Gurru.
Megum við skila kveðjum til
þeirra?” Þeir roðna vandræða-
legir, og halda siðan áfram:
„Fólk kunni ekki að metaMe and
Bobby McGee með Chris
Christofferson. Það ereins og fólk
búist alltaf við einhverju öðru.
Það kemur með fyrirfram mótað-
arhugmyndir.Enþetta voru ægi-
leg vonbrigði. Aðalþátturinn var
þó sá að fyrir þetta áttum við að
fá greitt, en vorum sviknir um
stóran hluta greiðslunnar. Hinn
seki, jú, Indriði Benediktsson, sá
halti mörður.
S«*g og svinari
Siðan var mál manna að Gauk-
arnir myndu aldrei risa úr ösku-
stónni. Við urðum heldur aldrei
samir á eftir. Nú liða tveir mán-
uðir i sorg og svfnarii og Halli
þarf að kaupa sér skó. Við þurft-
um ekkert að segja. Við fundum
allirað Gaukamir þurftu að hitt-
ast. Innri þörf. Siðan höfum við
spilað oft saman og drukkið.
Þetta hefur gengið svona upp og
ofan, aðallega neðan.”
— Hvert er markmið Gauk-
anna?
„Markmiðið er að gefa ekki út
plötu.Við viljum ekki verða fastir
i súpunni, verða súpuhausar eins
og islenskir tónlistarmenn eru.”
Skallapopparar og súpu-
hausar
— Þið eruð sumsé engir skalla-
popparar?
„Halli jú, en við hinir erum
sæmilega hærðir. Halli er að visu
.Gauka hærðastur á bringunni.”
,,— Annars, ef við mættum að-
eins skjóta inni — vantar okkur
pening fyrir nýju púströri undir
bilinn okkar, Gaukinn sjálfan.
Bensinið fer nefnilega inná púst-
rörið sem getur þá sprungið.
Rómantíkin bjargar...
— En við viljum spila aftur.
Við erum rUnir mannorði, vin-
sældum, met naði, ágirnd og gleði,
en ekki réttlætiog leiðindum. út-
litið er ekki gott en við erum
bjartsýnir, raunsæir og tiltölu-
lega glaðir þótt mót blási. Ef ekki
væri rómantiki lifi okkar, værum
við búnir að gefa allan metnað og
tjáningu upp á bátinn. Við þrir
sem giftir erum höfum rómantik
og Halí á von um meira hár.”
— Haraldur greifi, viltu segja
eitthvað að lokum?
„Ég og Egill erum algjörlega á
móti eiturlyfjum. Við erum á
móti þvi að fólk reyki hass á sið-
kvöldum. Við erum lika á móti
kynferðistónlist. — Megum við
svo birta ljóð? spyrja Gaukar
auðmjúkir á svip.
— Gjöriði svo vel strákar:
Heilræðavisur Gauk-
anna.
Gaman er á Borginni
pilsin sveiflast hátt,
þú gleymir allri sorginni,
nú hlæja skaltu dátt.
Hallast fer á flöskuna,
augun orðin stjörf,
Jói græni með kryppuna
og hefðarfrúin djörf.
Jakkaklæddir halir
hamingjuna reyna að ná,
en Armann Kr. Einarsson
fallinn er i dá.
Leigubilar lokka
liðleskju hal og sprund
gleymdu ekki flöskunni
og farðu svo f sund.
Bjóddu dömu í kames
bfslagið hallt nú er
veröndin að hrynja
sjénsinn orðinn ber.
Fostudagur i6, oktober 1981 helgarpósturinn