Helgarpósturinn - 06.11.1981, Page 7
7
hpilrjrirpn^tl irinn Föstudagur 6. nóvember 1981
var talaö um aö íslenska ríkiö
heföi veriö hlunnfariö um 50 mill-
jónir dollara i' viðskiptunum viö
Alusuisse. Þegar uppgjör Coop-
ers og Lybrand kom var talan
hins vegar orðin aö 16 milljónum
dollara. Og nú heyrum viö, aö eft-
ir þvi sem upplýsingar og gögn
skýrist þá hafi talan fariö enn
iækkandi og sé nú komin niöur i
eina milljón dollara. Og þá spyrja
sumir hvað íslendingar hafi iqjp
úr krafsinu, eöa hvaö sé rann-
soknin sjálf búin aö kosta?...
® bá er til þess tekið aö við-
ræðunefndin sem mynduð var af
hálfu islenska rikisins til aö ræöa
við álfulltrúana fékk ekki skipun-
arbréf sitt fyrr en nýlega, eða i
byrjun september. Skipunarbréf-
iö hefur legiö I iönaðarráöuneyt-
inu siöan í sumar þvi þaö er dag-
sett 31. júni. Sagt er aö iönaöar-
ráðherra leitiiogandi ljósi aö nýj-
um flötum á málinu og vilji að
viöræðurnar sniíist nii ekki um
„hækkun i hafi” heldur endur-
skoöun ásamningnumum álveriö
i heild sinni, raforkuverð og þess
háttar...
1 Morgunblaðinu i gær var
greint frá því að framboðsfrestur
til prófkjörs Sjálfstæðismanna
fyrir borgarstjórnarkosningam-
ar rynni Ut í kvöld og nefndir
nokkrir væntanlegir kandidatar
ásamt þremur sem vitað er aö
muni ekki gefa kost á sér aftur,
þ.e. ÓlafurB. Thors, Elin Pálma-
dóttir og Bessi Jóhannsdóttir.
Hins vegar vekur athygli að Birg-
ir tsl. Gunnarsson er ekki i' þess-
um hópi, enda vitað aö einhverjar
vomur eru á honum hvort hann
eigi aö hætta i borgarstjórn eöa
halda áfram. Þar sem nokkuð
ljóst þykir aö bæöi Þórir Lárus-
son og JUIius Hafstein veröa
meöal þátttakenda i prófkjörinu
eru menn nU orönir sannfæröir
um aö leiötogi þeirra tveggja, Al-
bert Guðmundsson.muni ætla sér
I prófkjöriö og sjá hvernig Ut-
komuhann hlýtur þar — i barátt-
unni viö Davíð Oddsson um odd-
vitasæti sj^lfstæöismanna i
Reykjavik. Eru menn þess vegna
aö geta sér þess til, aö skerist
verulega i odda milli DaviÖ6 og
Alberts i þessum slag, muni Birg-
irekki verabUinn að gefa þaö upp
á bátinn aö þá geti hann komib
fram sem málamiölunarmaöur-
inn sem allir geti sætt sig viö i
borgarstjóraembættið...
• Viö sögöum frá þvi fyrir
skömmu aö einhver stiröleiki
heföi veriö i samskiptum rit-
stjórnar og framkvæmdastjórnar
á Dagblaöinu undanfarið, — svo
mikill reyndar aö Jónas Kristj-
ánssonrítstjóri og Sveinn R. Eyj-
ólfsson framkvæmdastjöri heföu
ekki talast við öðru visi en bréf-
lega i nokkra mánuði. Þessi
klausa okkar virðist hins vegar
hafa ýtt á eftir þvi aö Jónas og
Sveinn eru famir aö talast við.
Viljimenn fá staðfestingu á þvi er
bent á myndasiðu Dagblaösins i
vikunni frá árshátið DB og Hilm-
is, þar sem Jónas og Sveinn eru
m.a. sýndir saman i nettum sam-
kvæmisleik. Annars heymm viö
úr fjölmiðlaheiminum, að rætur
fyrrgreindra samskiptaöröug-
leika séu i gamalkunnum hug-
myndum um sameiningu Dag-
blaðsins og Visis, sem Sveinn er
sagöur hlynntur og Visismenn
einnig. Jónas mun hins vegar
ekki mega heyra slfkt nefnt....
• Núverandi meirihluti borgar-
stjórnar, og þá einkum Alþýöu-
bandalags-fulltrúarnir,geröi mik-
inn hávaöa fyrir siöustu kosning-
ar Ut af biöskýlamálum þáver-
andi meirihluta og hétu þvi aö
gera stórátak i fjölgun þeirra
þegar þeir kæmust aö. Siöan er
liðiö nokkuö á fjóröa ár, og þótt
biðskýlum hafi eitthvað litillega
fjölgaö þá er þaö varla sem neinu
nemur hlutfallslega vegna þess
aö biöstöðvum hefur lika fjölgaö á
timabilinu. A hinn bóginn gekkst
stjórn Strætisvagnanna fyrir
myndarlegri og aö sama skapi
kostnaöarsamri samkeppni um
gerð nýrra gangbrautarskýla,
sem svo eru nefnd, og verðlauna-
tillagan var hinásjálegasta, enda
gerö samkvæmt erlendum stöðl-
um.Gallinner hins vegar bara sá
að i hinum erlendu stöölum er
gert ráö fyrir sérstökum bognum
burðarjárnum. Hins vegar kom
þaö ekki i ljós fyrr en eftir á, aö
engin vél er til hér á landi sem
getur beygt járn meö þessum
hætti og framleiðsla þessara biö-
skýla þvi sögö óframkvæman-
leg...
• Kvikmyhdahúsaeigendur eru
nú sem óöast aö undirbúa mót-
leiki gegn myndbandaleigunum,
sem leigja Ut myndir, sem kvik-
myndahúsin hafa keypt sýningar-
rétt á. Grétar Hjartarson i Laug-
arásbiói stendur i ströngu þessa
dagana viö að koma upp mynd-
bandaleigu i anddyri biós sins og
mun hUn taka til starfa I næstu
viku. Þar veröa til leigu myndir,
sem bióiö hefur sýnt, ásamt
gömlum og góöum myndum, sem
þaö hefur keypt videóréttá, og er
mikiö um svokallaöar „double
features”, þar sem tvær myndir
eru á einni spólu...
Feröaskrifstrfan útsýn aug-
lýsir nú af miklum kraftiferöir i
tengslum viö heimsmeistara-
keppnina i knattspyrnu-, sem
haldin veröur á Spáni næsta sum-
ar. í auglýsingunum segist Útsýn
hafa einkaleyfi á sölu miöa á leiki
iþessari keppii. Þessistaðhæfmg
feröaskrifstofunnar mun ekki
eiga viö rök aö styöjast, og hefur
hleypt ilhi blóöi f aöra I feröa-
bransanum, svo sem Ferðamið-
stöðina.sem hefur selt mönnum
sólarferöirtil Benidorm og ætlar i
sumar að hafa sérstakar „fót-
boltaferöir” á þær slóöir. 1 ná-
grenni Benidorm eru þrjár borg-
ir, þar sem leikið veröur næsta
sumar, þ.e. Alicante, Valencia og
Elche— og reyndar er ekki svo
langt til Madrid, þar sem aöal-
leikirnir veröa. Þegar Útsýn fór
að auglýsa „einkaleyfi”sitt, mun
Feröamiöstööin hafa spurst fyrir
um þaö á Spáni, hvort fslenskum
aöila heföi veriö veitt slikt leyfi.
Þaö var aftekið á Spáni, enda
tiðkast slikir viöskiptahættir ekki
i feröaþjónustu...
• Bresku feministarnir, sem
komu hingað til lands til kvik-
myndatöku uppi við Langjökul i
haust meö leikkonuna Julle
Christie í áhöfninni.,eru væntan-
legir ööru sinni til landsins i næstu
viku til aö endurtaka nokkur skot
sem eyöilögðust i framköllun
ytra. Unnið hefur verið að tökum i
Englandi i millitiöinni, en hér
verður hópurinn i fimm daga.
Ekki verða þó neinir leikarar með
i förinni, þvi þeirra vinnu mun
lokiö....
Leiðrétting
Meö greininni um landsfund
Sjálfstæöisflokksins i siöasta
Helgarpósti birtust teikningar af
öllum formönnum flokksins til
þessa, en þessar myndir hanga
uppi I húsi hans, Valhöll. Þar láö-
ist aö geta þess, aö teikningarnar
eru geröar af Siguröi Jónssyni
flugmanni.sem þekktastur er sem
Siggi flug. Er hann beðinn vel-
viröingar á þessu.
ÞEGAR KOMIÐ
ER AF VEGUM
MEÐ BUNDNU
SLITLAGI . . .
FÖRUM VARLEGA!
||UMFERÐAR
Versliö þar sem varan er góð og
verðið hagstætt
AFMÆLISAFSLÁTTUR
10% afsláttur frá verksmiðjuverði
á Stjömu ★ málningu alla næstu viku
og 10% afsláttur af öðrum vörum verslunarinnar
Sérlagadir litir — Góö þjónusta! — Reyniö vidskiptin
Næg bílastæöi — Fjölbreytt litaúrval
Sendum í póstkröfu út um landið
St jörnu ★ litir sf.
Málningarverksmiðja — Höfðatúni 4 — Sími 2-34-80
Öll okkar málning á vcrksmiöjuverdi
vakandi auga meó
Ávöxtunarkjör á innlánsfé eru mismunandi og meðferð sparifjár á *
margan hátt vandasöm. Mikilvægt er að leita hagstæðustu vaxta-
kjaranna sem bjóðast hverju sinni þannig að hámarksávöxtun sé
tryggð. í þeim efnum getur þú treyst á holla ráðgjöf í Alþýðu-
bankanum - þar höfum við vakandi auga með vöxtunum.
Þeir sem beina innlánsviðskiptum sínum til Alþýðubankans eiga
einnig greiða leið að persónulegu sambandi við starfsfólkið ef
umframfjár er þörf. Lánafyrirgreiðslan er ekki stöðluð, málið er
rætt og fyrirgreiðslu bankans hagað í samræmi við aðstæður í
hverju einstöku tilfelli.
Við gerum vel við okkar fólk.
Alþýðubankínn hf
Laugavegi 31 - Sími 28700
Útibú: Suðurlandsbraut 30 - Sími 82911