Helgarpósturinn - 04.12.1981, Blaðsíða 6
aöalhlaðiö&
___aukabladio
263. og 432. tbl. 71. og 3. árg. — f immtudagskvöld 2. des. og/eða föstudagsmorgun 21. nóv. 1981 og/eða 1981. _
Aðalblaðið og Aukablaðið verða eitt:
Brotið blad í
sameiningu
Aðalblaðið og Aukablaðið hafa sameinast í eitt stórt dagblað sem kemur út í
f yrsta sinn í dag. Um þetta náðist samkomulag nú rétt í þessu, eiginlega um leið og
þetta er skrifað, jafnvel er það ekki alveg búið ennþá. Blaðamaðurinn sem ritar
þetta er satt að segja ekki alveg með það á hreinu hvað er að gerast. Mér var bara
sagt að skrifa þessa f rétt og spyrja einskis, núna þegar ég kom í vinnuna klukkan
átta í hnorgun. Meira veit ég ekki.
Jú. Þetta er aö koma. í
leiðara fyrsta tölublaðs Aðal-
blaðsins og Aukablaðsins segir
að meginmarkmiö þessa nýja
blaös (það er þá komið á hreint:
Þetta ernýtt blað) sé að „starfa
óháð flokkum og flokksbrotum
og öðrum valdamiðstöðvum
þjóðfélagsins”. Það er
Schrambi Ellertsson, einn
óháðasti forystumaöur Sjálf-
stæðisflokksins og ritstjóri hins
nýja blaðs, sem skrifar
leiðarann.
Aðalblaðið og Aukablaðið eiga
hvort sinn hlut i nýja blaðinu.
Aðalblaðið á um 200 krónur og
Aukablaðið svipað. Afganginn
eiga ýmsir bilasalar og pen-
ingamenn úti bæ. Hverjir þessir
raunverulegu eigendur eru, veit
ég ekki svo gjörla, enda var
veriö að segja mér að mér kæmi
það ekki við.
Stofnað hefur verið sérstakt
hlutafélag til að gefa hið nýja
blað út á meðan það nennir.
Heitir það „Leiftursókn gegn
fjölmiðlum h.f.”, og er hlutafé
þess 100 milljónir. Stjornar-
formaður, útgáfustjóri,
fjármálastjóri, framkvæmda-
stjóri, forstjóri, hugmynda-
stjóri, sölustjóri og dreifingar-
stóri er Eyjólfur R. Sveinsson,
en framkvæmdaútgáfustjóri,
forstjóri, aftökustjóri,
fjármagnsstjóri, skrifstofu-
stjórnarformaður og fésýslu-
stjóri er Mörður Einarsson.
Eitthvað verður um ritstjóra
og blaöamenn á Aðalblaðinu og
Aukablaöinu, en það er ekki
vitaö hvernig verður með það
alltsaman, enda er ekki búið að
segja þeim af þessu ennþá. Ég
held að ég sé þó ráðinn.
Þetta fyrsta tölublaö hins
nýja glæsilega blaðs ber þess
nokkur merki að vera sett
saman i flýti. Eru lesendur
beðnir velvirðingar á þvi. Þetta
stafar bæði af þvi að eitthvað af
ritstjórum og blaðamönnum er
á ferðalagi i Sameinuðu
Arabisku furstadæmunum og
einnig af þvi að þeir ritstjórar
og blaðamenn sem eru
hérlendis vita ekki enn að þeir
eru ritstjórar eða blaðamenn á
hinu glæsilega blaði. Þvi siður
vita þeir hvort þeir eru rit-
stjórar eða óbreyttir. Þetta
horfir þó allt til bóta!
Upplag Aðalblaðsins og
Aukablaðsins er mjög verulegt.
Það er i stuttu máli samanlagt
upplag hins gamla Aðalblaðs
og hins gamla Aukablaðs i öðru
veldi, deilt með kvaðradrótinni
af sameiginlegum fjölda þess
starfsfólks sem sagt var upp.
t hinu nýja glæsilega blaði
veröur lögð mest áhersla á
auglýsinga- og sölumennsku.
Vonandi verður eitthvað um
fréttir og greinar i blaðinu, en
það verður að fá að mótast með
timanum. Við biðjum lesendur
að búast ekki við of miklu i þá
átt.
Ritstjórnarskrifstofur Aðal-
blaðsins og Aukablaðsins eru i
Múla á Siðu og siminn er ein
stutt, tvær langar, og þrjár
sameinaðar.
Gleypti Jónas
hvalinn?
— sjá Neytendasiðu
•
Hvaö varö
um Vísi?
— sjá Sérstæð sakamál
•
Er Chateau
Talbot 1938
besta raud-
vfnið í Rikinu?
— sjá Svarthöfða
•
Ólafur Jónsson
um nýjustu bók
Indriða:
Stórkostlegt
listaverk!
,— sjá menningu
•
IÞRÓTTIR:
Geta KSÍ
og HSÍ
sameinast?
— Ellert sjáðu það!
ÚTVARP/
SJÓNVARP
Sameinast
þau?
— sjá og heyr.
Blaöamenn
óska eftir
vinnu!
— sjá smáauglýsingar
•
Sveinn R.
Eyjólfsson
vann þrjá bíla
i Vísis
happdrætti!
—sjá fólk
•
Eru Geir
Hallgrímsson
og Svavar
Gestsson líka
óháöir, eins
og Ellert?
— sjá spurningu dagsins
Ritstjórnarskrifstofur blaðsins eru i húsnæði Landsambands bilasala, Fordhúsinu. Simar: gráir nýtisku takkasimar.
Móttaka smáauglýsinga við ytri hafnargarðinn. Móttaka stærri auglýsinga hvar sem er og hvenær sem er.
HRESSIR MENN EFTIR SAMEININGU
Kampakátir menn eftir sameiningu miðdegisblaðanna
í morgun. Unnið var af kappi við umbrot og setningu hins
nýja blaðs frá því f yrir 20 mínútum síðan. Aðalblaðið og
Aukablaðið er ein síða í dag, fjölbreytt að efni. Það
rúmar allt sem áður einkenndi bæði blöðin. Hið eina sem
fellur niður er tvíverknaðurinn. Fyrir utan náttúrlega
tugi starfsfólks. Myndin var tekin þegar menn litu við í
prentsmiðjunni núna rétt eftir að blaðið kom út. Frá
vinstri er enginn. Frá hægri er Karl Hilmarsson, hönn-
uður, Kristján Jónasson, ritstjóri (líklega), Gvuðvin Sæ-
mundsson, fréttastjóri (eða hönnuður), Ölafur
Magnússon, hönnuður, Schrambi Ellertsson, ritstjóri
(eða f lokksformaður?) og Haraldur Jónasson, aðstoðar-
eitthvað. — Aðalblaðsmynd: Stjarnleifur.