Helgarpósturinn - 18.12.1981, Qupperneq 2

Helgarpósturinn - 18.12.1981, Qupperneq 2
Föstudagi desember Sumir eru settir bak viö rimlana þótt þeir ættu alls ekki aö vera þar. þvi aö afplána dóma sina. Utan rimlanna fá svo sfbrotamennirnir hvern frestinn á eftir öörum á Sumir eru úti, sem ættu að vera inni- eru inni, en að vera úti aðrir ættu ■ Meöan fóik sat fyrir framan sjónvarpiö á föstudagskvöldi og fylgdist meö Guömundi J. Guömundssyni alþingismanni rekja i Fréttaspegli sorgarsögu ungs manns sem var settur i fangelsi til aö afplána refsivist eftir aö hann haföi tekiö sig til, stofnaö heimili og sett sig i miklar skuldir viö ibúöakaup geröist vofeiflegur atburöur á baklóö viö Þverholt I Reykjavík. ■ Allir þekkja þá sögu. Ungur maöur réöist á 15 ára gamia stúlku og stórskaöaöi hana meö barsmiöum og eggvopni. Slöan lá hún i blóöi slnu ifjóra tima þar til vegfarandi fann hana af tilviijun. Þaö sýndi sig, aö árásarmaöurinn haföi oftsinnis áöur gert sig sekan um líkamsárásir og skömmu áöur haföi hann ógnaö stúlku meö skrúf- járni. ■ Þetta er ein af þverstæöum réttarfarsins. Afbrotamenn sem taidir eru hættulegir umhverfi slnu ganga lausir meöan þeir eru ekki kæröir fyrir refsiveröan verknaö. Aörir hafa byrjaö nýtt llf þegar þeim er gert aö hefja refsivist, og komast ekki hjá afplánun. ■ En ekki er allt sem sýnist. Helgarpósturinn kannaöi bæöi málin hjá lögreglu- og dómsyfirvöldum, og niöurstaöan er sú, aö hvaö sem líöur mannúð eöa mánnúöarleysi einstaklinga innan kerfisins eru þessi mál erfiö viöureignar. i hengingaról- 1 fyrsta lagi er ljóst, að þegar menn eru settir I fangelsi hafa þeir undantekningarlaust fengið hvert tækifærið á eftir öðru hjá „kerfinu”. Áður en þeir eru „sett- ir inn” hafa þeir fengið frestun á ákæru, frestun á afplánun og frestanir á að hefja afplánun, og i annanstaöer algengt að menn fái skilorösbundna dóma. Mikið gengið á Það hefur þvl ýmislegt gengið á áður en menn eru settir í fangelsi, nema um sé að ræða mjög alvar- legt brot, svo sem stórþjófnað, alvarlegar likamsárásir, jafnvel manndráp eða morð — og fikni- efnasmygl. Hér áður fyrr var plássleysi á Litla-Hrauni talsvert vandamál, og menn þurftu oft að blöa lengi eftir að fá að hefja af- plánun af þeim sökum. Siöan 1971, þegar byggt var við fangels- ið, hefur það ekki verið mikið vandamál. Auk þess segja kunn- ugir, að afplánanir séu orðnar mun samfelldari eftir að Fullnustudeild dómsmálaráðu- neytisins var sett á stofn 1978, og nokkuð hefur verið dregið úr frestum á þvi að hefja afplánun. Vissulega getur oft liðið óhóf- lega langur timi frá þvi afbrot er framið þar til menn geta hafið af- plánun dóms. I mörgum tilfellum er hæggengu dómsvaldi um að kenna og oft tekur rannsókn mála mjög langan tima. Það er sérstaklega þegar um er að ræða flókin fjármálaafbrot og fikniefnabrot. Slikur málarekstur getur tekið mjög langan tima, jafnvel svo skiptir árum. Nýlegt dæmi er um fikniefnamál frá ár- inu 1976, þar sem sá seki var loks dæmdur á þessu ári og hóf afplán- un I haust, þá búinn að stofna fjöl- skyldu og koma sér upp heimili. öllum sem þessi mál voru rædd við ber saman um, að fikniefna- dómstóllinn hafi lengi verið sein- virkur og kenna um miklu vinnu- álagi. En bent er á að nú hafi verið bætt nokkuð úr þvi. Þá er bent á, að rannsókn á fikniefna- málum sé erfið vegna þess, að oft séu mikilvæg vitni komin til út- landa eða út á land, þegar til þeirra eigi að gripa, jafnframt þvi sem málin tengist hvert öðru og verða af þeim sökum all flókin. „Lengja inni” En það má lika skella hluta skuldarinnar á hina dæmdu sjálfa. Það er nefnilega talsvert algengt, að menn noti alla hugsanlega möguleika til þess að fá för sinni i fangelsi frestað, og þeir eru talsverðir. Dómsmálaráðuneytið veitir nær undantekningarlaust alit að átta mánaða frest, og margir nýta rétt sinn til áfrýjunar til fullnustu, oft á tiðum í vonlausum málum. Margir eru þeirrar skoðunar, að hér eigi ekki við orðtakið „frestur er á illu bestur”, þvi eilifir frestir á fullnustu dóma i þeirri von að kraftaverk gerist sé aðeins til að „lengja I hengingar- ólinni”. „Lögreglan ráðþrota” Innan lögreglunnar eru mjög skiptar skoðanir um það hversu langt megi ganga i þvi að meta fyrirfram hvort einstaklingar geti orðið umhverfi sinu hættu- legir. „Satt að segja er allt of mikið um að menn sem geta verið hættulegir öörum gangi lausir. Hvað sem allri mannúð liður þá þarf lika að hugsa um aðra, þá sem hugsanlega verða fyrir barð- inu á þeim”, segir Páll Eiriksson lögregluvarðstjóri. Hann bendir á, að I rauninni standi lögreglan ráðþrota gagn- vart þessum mönnum, þótt þeir leftir Þorgrím Gestssoni séu ekki margir. Það má ekki halda þeim inni meira en 24 tima eftir að þeir eru handteknir hafi þeir ekki verið kærðir fyrir alvar- legan refsiverðan verknað. „Það er hreinasta hörmung að þurfa að sleppa þessum mönnum, sem kannski hafa framið hvert ódæðið af öðru”, segir Páll Eiriksson. „Auðvelt að vera vitur eftirá” Magnús Einarsson lögreglu- varðstjóri vill fara varlegar i sak- irnar. „Það er staðreynd, að þessi maður sem réðist á stúlkuna i Þverholti hafi sýnt sig i þvi að veita fólki áverka. En það er engu að siður auðvelt að vera vitur eftirá og segja, að þennan mann hefði átt að handtaka fyrr”, segir Magnús Einarsson. Og Þórir Oddsson vararann- sóknarlögreglustjóri bendir á, að öll lagaskilyrði skorti til að lög- reglan geti haft afskipti af mönn- um ef þeir hafa ekki brotið af sér. „Þómábeita gæsluvarðhaldi ef ætla má, að viðkomandi haldi áfram brotaferli sinum, eða til að verja hann fyrir árásum. En það þarf að styðja slikt mjög sterkum rökum ef á að sannfæra dómara um, að slik hætta sé fyrir hendi. Tilfinning lögreglumanns nægir ekki til að sanna slikt, og afbrota- menn eiga að njóta fullra mann- réttinda eins og aðrir”, segir Þór- ir Oddsson. Biðtiminn hefst Hvað sem þvi liður er það stað- reynd, að verulegur fjöldi af- brotamanna, einkum svonefndir sibrotamenn eru nánast i föstum ferðum milli fangelsa landsins — oftast Litla Hrauns — og heima- byggðar sinnar. Það eru einkum tvær stofnanir sem þetta fólk hef- ur samskipti vib, annars vegar svonefnt Skilorðseftirlit en hins- vegar Fullnustunefnd refsidóma. Fullnustunefnd var sett upp vorið 1978 og er nefnd skipuð þremur mönnum Jónatan Þórmundssyni prófessor, formaður, Ólafi Ólafssyni land- lækni og Jónasi Jónassyni lög- regluvarðstjóra, en starfar undir dómsmálaráðuneytinu. Deildinni er ætlað að sjá til þess, að hinum dæmdu sé kynntur dómurinn og siðan að honum sé fullnægt, þ.e. að refsivist hefjist. En það er einmitt þarna sem biðtimi hinna dæmdu hefst, sé lit- iö frá þeim tima, sem málarekst- ur kann að hafa tekið. Til að byrja Imyndir: Jim Smarti Jie/garpásturinn með fá þeir nefnilega tveggja vikna frest til að áfrýja dómnum til Hæstaréttar en saksóknari fær raunar þriggja mánaða frest til að áfrýja felli hann sig ekki við niðurstöðu dómsins. Sé málinu ekki áfrýjað þarf að ganga frá málsskjölum, sem siðan eru send ráðuneytinu. Þetta getur tekið einn til tvo mánuði. Loksins þegar hinum dæmda hefur verið tilkynnt, að nú eigi hann að fara i fangelsi getur hann beðið um frest (frest á fullnustu dómsins á Iagamáli). Til skamms tima veitti ráðuneytið þessa fresti óspart, en þegar Vilmundur Gylfason sat I embætti dóms- málaráöherra veturinn 1979 setti hann þá vinnureglu, að ekki skyldi veita meira en fjögurra mánaöa frest á þvi að dómi sé fullnægt, og hann megi siðan framlengja i aðra fjóra mánuði. „Vilmundur settiá okkur þenn- an klafa, fjögurra mánaða frest, sem má framlengja I aðra fjóra, og lengri frest mátti ekki gefa. Síðan hafa ráðherrar að visu leyft sér að fara út fyrir þennan ramma”, segir Jón Thors deildarstjóri i dómsmálaráðu- neytinu. Þorsteinn A. Jónsson er ráð- gjafi fullnustunefndarinnar og starfsmaður dómsmálaráðu- neytisins og hefur m.a. fangelsis- mál á sinni könnu. Hann var að þvi spurður hvaða skilyrði þurfi til þess aö fá fullnustu dóma frestað. „í framkvæmd metum við mál- in mjög litið og allir sem um það biðja fá frest svo framarlega sem þeir eru I vinnu og eru ekki fyrir á fresti hjá okkur eða i óreglu. Framlengingu fá lika yfirleitt all- ir sem biðja um það, og þar er matið ekki meira nema i undan- tekningartilfellum, ef við höfum grun um að þeir hafi ekki sagt okkur satt. I sannleika sagt leggj- um við þó litla vinnu i að athuga það”, segir Þorsteinn A. Jónsson. Ráðherra eða ráðuneytisstjóri getur veitt jafnvel lengri frest en þetta, en þó er ekki mikið um að þeir geri það, að sögn Þorsteins. „Ég man aðeins eftir fáeinum dæmum að undanförnu þar sem var framlengt i nokkra mánuði til viðbótar”, segir hann. Fullnustunefndin hefur orðið fyrir þeirri gagnrýni, að þegar húntók tilstarfa, imars 1978, hafi nefndarmenn einfaldlega tekið bunkann sem þá lá fyrir af ófull- nægðum dómum og „sópað” mönnum inn. Hvað segir Þor- steinn Jónsson um þessa gagn- rýni? „Þetta er ekki rétt að öllu leyti. Það rétta er, að vorið 1978 lá fyrir mikið af gömlum dómum. Sú stefna var tekin að fullnusta alla dóma frá 1977 og fram til þess tímaaðnefndin varstofnuð. Eldri dómar voru látnir eiga sig, nema eitthvað sérstakt hefði komið fyrir, svo sem ný afbrot”, segir hann. „Frestir af hinu verra” —Nú er ljóst, að nánast allir sem hafa fengið döm geta fengiö allt að átta mánaða frest á þvi að hefja afplánunina, jafnvel meira. Má ekki stilla dæminu þannig upp, að með öllum þessum frest- um sé veriðað draga máliö óþarf- lega á langinn og menn séu ein- ungis að fá gálgafrest? „Min skoðun er sú, að þessir frestir séu I flestum tilfellum af hinu verra. Ef á að afplána dóm á tvimælalaust að gera það sem allra fyrst eftir að dómurinn er kveðinn upp. Þab er orðið litið samræmi á milli orsakar og af- leiöingar þegar liöa kannski nokkur ár frá þvi að dómur fellur þar til refsing er tekin út”, segir Þorsteinn A. Jónsson. Þegar afbrotamenn hefja sam- skipti sin við fullnustunefndina hefur þvi yfirleitt talsvert mikið gengið á, og langur afbrotaferill að baki. A þeim ferli sinum eiga þeir meiri og minni samskipti við Skilorðseftirlit rikisins, sem var sett á fót 1914. Og þar byrja allir frestirnir. Axel Kvaran, fyrrverandi lög- reglumaður, hefur veitt Skilorðs- eftirlitinu forstöðu frá upphafi, en þar starfa nú auk hans Erlendur Baldursson afbrotafræðingur og einn ritari. Skiloröseftirlitinu er ætlað að hafa umsjón með ungmennum á

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.