Helgarpósturinn - 30.12.1981, Blaðsíða 24
fielgarpásturinn,
ióíab w oröið
TUBORG
.• >?_■' . ■:<_ ■■■?■ .* f wwf iiga&m M /V Í vYlAl' 41 tA /11/11{/ 1 {i WW’í Ji é?
9 1 fundarskýrslum útvarps-
ráös, sem öðru hverju rekur á
fjörur okkar Helgarpóstsmanna,
má sjá að Eiður Guðnason hefur
itrekað óskað eftir greinargerö
frá sjónvarpinu um kaup þess á
körfubfl, fyrir ærinn pening. Bill-
inn mun siðan hafa staðið
óhreyfðurhjá sjónvarpshúsinu nú
um nokkurra mánaða skeið. A út-
varpsráðsfundi rétt fyrir jól
kvaöst Eiður vera orðinn lang-
þreyttur á að biöa eftir greinar-
gerðinni og spurði hvort em-
bættismennirnir ætluðu að
hundsa fyrirspurn hans. Sá Vil-
hjálmur Hjálmarsson, formaður
útvarpsráðs, sig knúinn til að lýsa 1
þvi yfir að hann teldi „almennt
rétt að verða viö svona tilmæl-
»» »»
um ...
AX—210
BÝÐURUPPÁ
Klst, min, sek.
Mán, dag, vikudag.
Sjálfvirk dagatalsleiðréttine
um mánaöamót.
12 og 24 tima kerfið.
Skeiðklukka 1/100 úr sek og
millitima
Vekjari með són/lög td. Dixie
land.
Visaklukka og Töluklukka
Hljóðmerki á klukkutima
fresti.
Annar timi td. London.
Niðurteljari með vekjara.
Ljóshnappur til aflestrar i
myrkri.
Vatnshelt, högghelt.
Ryðfritt stál.
Eins árs ábyrgð og viðgerðar-
þjónusta.
Casio-umbodid
Bankastræti 8,
simi 27510.
® Fundarskýrslur útvarpsráðs
geta oft verið skemmtileg lesn-
ing, sérstaklega þegar fundar-
stjórinn Guðmundur Jonsson er i
stuöi. Eins og komiö hefur fram
annars staðar kvartaði formaöur
helgarpósturinn
Þetta er siðasta tölu-
blað Helgarpóstsins á
þessu ári. Blaðið
þakkar lesendum
sinum samfylgdina og
óskar þeim gleðilegs
nýs árs.
Næsta blað kemur út
föstudaginn 8. janúar
’82.
útvarpsráðs Vilhjálmur Hjálm-
arsson nú nýverið undan jóla-
bruggsuppskriftum i Morgun-
vöku Páls Heiðars. Segir svo um
þetta mál i fundarskýrslum:
„Formaður óskaði eftir afriti af
umfjöllun Páls Heiðars um „jóla-
brugg” i „Morgunvöku” sinni.
Taldi formaður þetta fráleitt
uppátæki... Fundarritari hafði
„punktað” hjá sér, að formaður
óskaöi eftir „uppskrift af jóla-
bruggi”en sá við nánari athugun
aðþað var ekki þaðsem formanni
var efst i huga”...
9 Asgeir Hannes Eiriksson,
pylsusali i Austurstræti,stendur
einattfyrir framan vagninn sinn
á góðviörisdögum og tekur veg-
farendur tali. Einhvern tima i
sumar bar þar að Bandarikja-
mann og tóku þeir Asgeir tal
saman. Bandarikjamaðurinn
vildi vita sitt hvað um næsta ná-
grenni og þar kom að hann benti á
styttuna af Hannesi Hafstein fyrir
framan stjórnarráðið og spurði
hver þaö væri. „Þetta er langafi
minn,” sagði Asgeir Hannes
stoltur. „Oh”, sagði þá Banda-
rikjamaöurinn uppveðraður.
„Was he the founder of this Hot-
dog-stand?”...
9 önnur gamansöm Ur við-
skiptalifinu: SU var tíðin að
Gunnar Asgeirsson með sinar
vönduðu Husquarna-saumavélar
frá Sviþjóö hafði töglin og hagld-
irnar á saumavélamarkaðinum
hér. Svo komu ódýrari vélar að
austan til að veita sænsku vélun-
um harða samkeppni, þ.á m.
Toyota-vélarnar frá Japan. Og nU
fyrir jólin tóku umboðsmennToy-
ota-vélanna hér sig til, pöntuðu
100 stykki af vélunum og fengu
verksmiðjurnar til að skira þær
„Pálinu” í höfuðið-á saumakonu i
alþekktri islenskri visu. Sniðug
auglýsingabrella, dneitanlega,
enda seldust Pálinuvélarnar upp
fyrir jólin. En hins vegar segir
sagan að Gunnari Asgeirssyni
hafi ekki verið skemmt, þvi aö
hann er nefnilega annar höfundur
visunnar um kerlinguna
hana Pálinu, sem átti ekkert ann-
að en saumamaskinu...
® Sagt er að forystumenn
Framsóknarflokksins hafi veru-
legar áhyggjur af deyfð og
drunga f borgarmálum flokksins
hér i Reykjavik, þrátt fyrir að að-
eins rétt vika sé i að ætlast sé til
aö fólk byrji að skila inn framboð-
um i prófkjör flokksins sem fram
á að fara i kringum 20.janúar.
Ekkert útlitvirðist veraþarfyrir
hressilega baráttu, eins og mál
standa nú. Heyrst hefur að Eirik-
ur Tómasson, varaborgarfulltrúi
flokksins, ætli til að mynda ekki
aö gefa kost á sér i prófkjörsslag-
inn að þessu sinni, þvl að hann sé
önnum kafinn um það leyti sem
prófkjörið fer fram að koma á
viöskiptasamböndum i Saudi Ar-
abiu. Alfreð Þorsteinsson mun
sömuleiðis hafa lýst þvi yfir að
hann hafiekki hugsað sérað taka
þátt i prófkjörinu og nd siðast
heyrist að einhverjar vomur séu á
Gerði Steinþórsdóttur, sem var i
ööru sæti siðast, um að gefa kost á
sér aö þessu sinni vegna persónu-
legra ástæðna. Virðist þvi svo
geta farið að enn veröi að dusta
rykiö af Kristjáni Benediktssyni,
enda þótt út frá þvi hafi veriö
gengið um skeiö að hann myndi
nú draga sig i hlé...
9 Loks er búið að selja gamla
Oddahúsið við Bræðraborgarstig-
inn. Kaupendurnir eru sagðir
vera bræður Vilhjálms Þ. Vil-
hjáimssonari'SAA, þeir Hlöðver
og Svanur Viihjálmssynir, og
munu þeir hafa i hyggju að inn-
rétta húsið sem ibúðarhúsnæði og
selja siöan...
9 Nú liggur fyrir að verulegar
sviptingar verða I verkalýðspóli-
tikinni á Akureyri eftir áramótin.
Akveðið hefur verið að bjóða þá
fram gegn Jdni Helgasyni, sem
veriö hefur formaður Einingar
þar um árabil. Sá sem fenginn
hefur veriö til mötframboðsins
gegn Jóni er Guömundur Sæ-
mundsson, sem undanfariö hefur
veriö kallaður öskukall og gerst
hefur atkvæðamikill i starfi að
verkalýðsmálum undanfarið.
Skipun framboðslistans gegn
stjórn Einingar er að öðru leyti i
undirbúningi, en heyrst hefur að
talsverður hljómgrunnur hafi
fundist fyrir þessu mótframboði.
Þannig hafihelmingi fleiri en hin-
irnauðsynlegu hundrað meðmæl-
endur fengist á aðeins nokkrum
vinnustööum. Þvi kann svo aö
fara að róttækari stefna taki við
af gamalgrónum kratisma Jóns i
Einingu...
® Ljóst virðist aö bókaþjóðin
ætlar að halda áfram að leita til
annarra miðla i auknum mæli. 1
fyrra varð 25% samdráttur i bók-
sölu, og eftir þvi sem við heyrum
úr bókaheiminum er niðurstaðan
eftir þessi jól sú, aö samdráttur-
inn hefur ekki unnist
upp, — salan varð svipuö og i
fyrra. Talið er að ein af skýring-
unum sé sú, að bókin hefur aldrei
fyrr staðið verr i verðsamanburöi
viö hljómplötuna. Þá merkja út-
gefendur þá þróun að sala fagur-
bókmennta er á niðurleið, en ævi-
sagna- og heimildaverk (non--
fiction) auka sifellt hlutdeild sina
i sölunni. Annars er bókakreppa
viðast erlendis og kannski er angi
af henni að teygja sig hingaö...
® Islenska stórmyndin (Jtlag-
inn hlaut ekki náö fyrir augum
dómnefndar þeirrar á vegum
Berlinarhátiðarinnar, sem velur
kvikmyndir til þátttöku i sam-
keppninni sem fram fer i sam-
bandi við kvikmyndahátiðina.
Aðeins ein norræn mynd komst
þar að — sænsk að þjóðerni. Ot-
laginn verður hins vegar eftir
sem áður sýnd á Berlinarhátfð-
inni sem er eins og aðrar áþekkar
hátiðir heilmikil kaupstefna i
leiðinni...
9 Borgin sparar nú á öllum
sviðum. Nú siðast hefur verið tek-
in ákvörðun um að taka fyrir öll
kaupá dagblöðunum til skrifstofa
stofnana og fyrirtækja á vegum
borgarinnar nema sjúkrahúsa og
stofnana aidraðra. Blaöakaup
borgarinnar munu nema alls um
kr. 700 þúsundum á ári, en meö
þessu móti mun borgin spara sér
um 500 þúsund krónur aö þvitaliö
er. Hér eftir verða þvi borgar-
starfsmenn að kaupa blöðin sin
sjálfir...