Alþýðublaðið - 19.03.1920, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 19.03.1920, Blaðsíða 1
Alþýðublaðið Gelið út af Alþýðuílokkuum. —~7~~ 1920 Föstudaginn 19. marz Þýzka byltingin. Orsök byltingarinnar, Khöfn 14. marz. Byltingin í Berlín virðist vera sprottin af óánægju með stjórnina og þjóðþingið, Erzberger-málin og uppfylling friðarsamninganna. Þetta til samans hefir magnað andstöð- una gegn stjórninni, einkum meðal sjálfboðaliða hershöfðingjans Lutt- witz, og hafa nokkrir menn úr Því liði í samráði við Döbernitz- herliðið gert byltinguna. Sjóliðs- fylkingar Erhardts, Löwenfelds o. fi. héldu til Berlínar, sendu stjórninni síðustu sáttaboð (ultimatum), að sumir ráðherrarnir færu frá, að Luttwitz yrði settur aftur í stöðu sína, og að aðstoðarmenn þeir, sem teknir hefðu verið höndum, yrðu látnir lausir. Stjórnin neit- aði þessu. Askorun jafnaðarmanna. 14. marz. Jafnaðarmannaráðherrarnir gáfu út ávarp til alþýðunnar um að •gera allsherjarverkfall, sem væri eina ráðið gegn afturkomu Yil- hjálms, sem mundi lama alt fjár- hagsstarf þjóðarinnar. Engirverka- lýðsmenn mættu hjálpa hervald- inu, og þess vegna nauðsynlegt állsherjarverkfall! Stjórnin leggur ekki niður völdin. 14. marz. Ebert og jafnaðarmennirnir úr ráðuneytinu yfirgáfu Berlín kl. 5 í morgun, án þess að leggja nið- hr völdin. Nýja stjörnin. 14. marz. A gatnamótum í Berlín var því lýst yfir, að ríkisstjórnin, sem hingað til hefði ríkt, væri ekki lengur við völdin, en að Kapp fyrverandi landsforstjóri væri nú ríkiskanzlari og forsætisráðherra Prússlands, og að yfirmaður alls hersins væri fótgönguliðsforinginn barón von Luttwitz, og að mynd- uð væri stjórn reglunnar, frelsis- ins, framkvæmdanna. Kapp hafði síðan undirritað tilkynningu um að þjóðþingið og prússneska þing- ið væru rofin, en að kosningar yrðu látnar fara fram, þegar ró og spekt yrði komin á aftur. Sömu- leiðis yrði þá forseti kosinn af þjóðinni, þar eð hin nýja stjórn væri ekki afturhaldsstjórn. Hún væri með þingræði og frelsisvinur, vildi ekki keisarastjórn, en nauð- synlegt væri að hún stjórnaði land- inu einvöld, þangað til kosningar gætu fram farið. Búist er við að Iýst verði yfir því, að Hindenburg sé ríkisforseti. Yorwerts og Frei- heit er bannað að koma út. YvTolffs fréttastofa er aftur tekin til starfa. Friður og spekt er á götunum. Kapp er þektur þjóð- ernissinna foringi. Luttwitz reynd ist eitt sinn mjög duglegur móti Spartakistum. Búist er við að her- deildirnar frá baltisku löDdunum fylgi honum. Álitið er að Luden- dorff sé með byltingunni. Bayernstjórn frá völdum. 16. marz. Frá Munchen er símað að stjórn- in í Bayern hafi farið frá völdum. Allsherjarverkfall hafið? 16. marz. Járnbrautarmenn hóíu allsherj arverkfall í morgun, þegar Kapp neitaði að leggja völdin niður aftur. 63. tölubl. Alþbl. kostar I kr. á mánuði. Engin blöð koma út, en eitt- hvað af fregnmiðum. í Kiel er barist. Bandamenn ogr byltingin. 16. marz. Frá London er símað, að nýja Berlínarstjórnin fullvissi, að hún ætli að halda friðarskilmálana. Lloyd George biður átekta, en Frakkar heimta að strax sé ráðist inn í Þýzkaland. Oháðum j'afnaðar- mönnum boðið að vera með. 16. marz. Kapp hefir boðið óháðum jafn- aðar mönnum að taka þátt í stjórnarmynduninni. Byltingrin magrnast. 16. marz. Suðurþýzku herdeildirnar hafa gengið á vald hinnar nýju stjórnar. sömuleiðis hafa bæirnir, Hamborg, Bremen, Dresden o. fl., viðurkent Kapp. Æðsti maðurinn í Saxneska herliðinu hefir reynt að miðla málum milli gömlu og nýju stjórnarinnar, en árangurslaust. Báðar stjórnirnar gefa út fjölda yfirlýsinga og fregnum frá Þýzka- landi ber ekki saman. Harðindin. Af Patreksfiröi er skrifað 21. febr.: „Skepnur eru víða í voða vegna fóðurskorts, farið að skera í Tálknafirði. Mesti skortur fyrir dyrum með eldivið og steinolíu.8

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.