Helgarpósturinn - 12.11.1982, Blaðsíða 8

Helgarpósturinn - 12.11.1982, Blaðsíða 8
8 sÝninfjnrssilir Listasafn Einars Jónssonar. Safniö er opið á sunnudögum og miðvikudögum frá klukkan 13.30 til 16.00. Ásgrímssafn Safnið er opið þriðjudaga, fimmtudaga og sunnudaga frá 13.30 til 16.00. Bergsta&astræti 15 Á innrömmunarverkstæði að Berg- staðastræti 15 er nú opin sýning.Ru- dolfs Weissauer á vatnslitamyndum, pastel og grafíkmyndum. Rudolf kem- ur hingað til lands öðru hvoru og hefur m.a. kennt við MHl. Listasafn ASÍ Sýning á smámyndum eftir Nínu Tryggvadóttur stendur yfir til 28. nóv- ember. Opið þriðjudaga til föstudaga 2-7 og laugardaga og sunnudaga 2- 10. Lokað á mánudögum. Ásmundarsalur Sýning á listmunum, þjóðbúningum, vefjarefnum og nytjahlutum frá Sovét- lýðveldinu Tadsjikistan, á vegum MlR. Nýlistasafnið Árni Ingólfsson og Guðrún Tryggva- dóttir sýna „bara þessa helgi." Föstu- dagur: Opnun kl. 20 -hljóö. Bob Beck- er, laugardagur: Opið frá kl. 14. Kl. 20: Hljóð, Rod Sommers. sunnudagur: Opið frá kl. 14. Kl. 20: Hljóó. Mokka Sýning á fornum biblíumyndum ettir fjóra breska listamenn. Listasafn íslands Yfirlitssýning á verkum Jóns Þor- leifssonar stendur til 21. nóvember og er opin daglega frá 13.30 til 22.00 Kjarvalssta&ir Sýning Karólínu Lárusdóttur á olíu- málverkum, teikningum, grafík og vatnslitamyndum í Vestursal. I forsaln- um þar fyrir framan sýnir Aðalbjörg Jónsdóttir handprjónaða kjóla úr isl- ensku eingirni. I Austursalnum er Thorvaldsen ennþá, en þeirri sýningu lýkur um helgina. Norræna húsið I anddyrinu sýnir norski listamaðurinn Björn Björnaboe tússteikningar og kol- teikningar. Sýningin stendur til 17. nóv. Skruggubúð Sjón sýnir myndir og hluti. Gallerí Langbrók Ásdís Sigurþórsdóttir sýnir grafík- myndir. Sýningunni lýkur ásunnu- dagskvöld. Háholt, Hafnarfir&í: Gunnar Hjaltason opnar sýningu á rúmlega 100 landslagsmyndum, mal- uðum meö vatnslitum, pastellitum og akryl á laugardaginn. Sýningin verður opin daglega kl. 14-22 næsta hálfan mánuðinn. Þjó&leikhúsið Amadeus föstudag kl. 20. Síðasta sýning. Garöveisla laugardag kl. 20. Gosi sunnudag kl. 14. Síðasta sýning. Hjálparkokkarnir sunnudag kl. 20. IcíIlIiíis Leikfélag Akureyrar Siðustu sýningar á Atomstööinni verða um helgina. Sextánda sýning á föstudag kl. 20.30 og sú sautjánda laugardaginn kl. 20.30. Aðsókn hefur verið góð. Aukasýning verður á stóra sviðinu i Þjóðleikhúsinu í boði þess, þriðjudaginn 23. nóv. Fjalakötturinn Hnífur í vatninu. Pólsk. Árgerö 1962, leikstjóri Roman Polanski. Margverðlaunuð mynd um fólk um borð í seglbáti. Trial. Frönsk. Árgerð 1962. Leik- stjóri Orson Wells. Fjallar um Joseph K. sem leiða á fyrir.rétt án þess að nokkur sjáanleg ástæða sé fyrir því. Anthony Perkins í aðalhlutverkinu. Stella. Grisk. Árgerð 1965. Leik- stjóri Michael Cacoyannis, sá sem gerði Zorba. Aðalhlutverk: Melina Mercouri. Leikfélag Reykja- víkur: írlandskortið föstudag kl. 20.30. Skilnaður laugardag kl. 20.30. Jói sunnudag kl. 20.30. Hassið hennar mömmu sýnt á miðnætursýningu í Austurbæjarbiói kl. 23.30 á föstudag. íslenska óperan: Litli sótarinn eftir B. Britten á laugar- dag og sunnudag kl. 16. Töfraflautan eftir W.A.Mozart á föstudags- og laugardagskvöldið kl. 20. ' Kópavogsleikhúsiö: Hlauptu af þér hornin á laugardags- kvöldið kl. 20.30. Föstudagur 12. nóvember 1982 trinn nýjaða meðferð. Og fyrir svosem þrjátíu árum var byrjað að semja verk sérstaklega fyrir harmonik- una. Mogens Ellegaard sagðist að vísu öfunda píanista og fiðl- ara af Mozart, Beethoven og öll- um hinum, sem samið hefðu fjölda verka fyrir þeirra hljóðfæri. En það væri líka gam- an að fá að vera með frá byrjun. Þau spiluðu einkum norræn harmonikuverk frá síðustu tveim áratugum og af mikilli list og kunnandi. Þeir sem einkum kalla sig harmonikuunnendur fylltu hinsvegar ekki húsið. Kór Langholtskirkju lætur ekki deigan síga. Á sunnu- dagskvöldið fluttu þau Sálumessu Mozarts í Fossvogskirkju undir stjórn Jóns Stefánssonar. Verkið var vel sæmt af flutningi þessa sí- hressa kórs, og betri umsögn er í rauninni ekki hægt að gefa. Helst bjátaði það á, að einsöngvararnir væru misgóðir. Mozart dó frá þessu verki, sem Walsegg-Stuppach greifi hafði pantað vorið 1791, ef það mætti stytta hrellingar náðugrar greifafrúarinnar í hreinsunareld- inum. En texti hefðbundinnar sálumessu er flökurvekjandi undirdánung beiðni um miskunn og vægð vegna einhverra óskýr- greindra synda. Það var búið að borga helminginn fyrirfram, 50 dúkata. 25 ára gamall nemandi Mozarts, Sússmayer, hafði að- stoðað hann við verkið og lauk því eftir dauða hins ódauðlega. Þá fékk hann seinni 50 dúkatana greidda. Aldrei hafa fundist frumdrög Mozarts að öllu verk- inu, og líklega eru síðustu kafl- arnir að öllu leyti eftir Sússmay- er. En það skiptir okkur litlu máli. Verkið blífur og er í anda listaskáldsins góða. Annars er það næstum sárgræt - iegt, þegar um er hugsað, hversu margir bestu listamenn verald- arsögunnar hafa sólundað snilli sinni í afsakanir til handa þeim guði, sem eftir lýsingum að dæma er hálfgert meinhorn. Það hlýtur a.m.k. að vera heimskur, illgjarn og öfundsjúkur drottinn, sem finnst Mozart þurfa að biðjast afsökunar á gerðum sínum; svona álíka og Sjostakovitsj segir Stalín hafa verið. Kannski öfunda slíkir jálkar listamennina, af því þeir eru snjallari þeim sjálf- um. En sé það rétt, að maðurinn hafi skapað guð í sinni mynd, en ekki öfugt, þá er svosem engin furða. þótt liann sýnist heldur ó- fullkominn og smásálarlegur. Það er þó bót í máli, að Mozart var ekki að biðjast afsökunar á sjálfum sér, heldur fyrir hönd einhverrar greifafrúar, sem e.t.v. hefur haft ástæðu til. þess tíma eins auvirðilegt og harmóníkan. Enda sagði Edward Grieg eða eitthvert álíka norrænt tónskáld, að rækist maður á harmóníku á förnum vegi, skyldi maður trampa hana í sundur í þúsund parta og fleygja þeim síð- an í drafið til svínanna. Þar ætti hún heima og hvergi annar- staðar. Það var því harla merkilegt að koma á harmóníkutónleika Mog- ens Ellegaard og Mörtu Bene í Norræna húsinu á föstudaginn og hitta par m.a. fyrir skólastjóra Tónlistarskólans í Reykjavík, forseta Bandalags íslenskra lista- manna, formann Tónskáldafé- lags íslands, konsertmeistara Sinfóníusveitarinnar auk minni tónlistarpótintáta. En hér er enn komið að aftur- hvarfi nútímamannsins. Áður lít- ilsvirt „alþýðuhljóðfæri" einsog blokkflauta og lúta fá nú endur- Afturhvarf nútímamannsins Martin Berkofsky sýndi það eina ferðina enn á Háskólatónleikunum í Norræna Því hrikalegri urðu umskiptin, þegar hann tók til við Ferencz Liszt. Það er nú svo með þann mikla sjarmör, að fæstir tengja hann við annað en Ástardraum Mogens Ellegaard og Marta Bene - merkilegt að hitta tónlistarpótintáta á harmoníkuleikum þeirra í Norræna húsinu. helgisögn um nafndýrling tón- skáldsins: Heilagur Frans af Paul gengur á vatninu. Hitt var sú 11. af 12 æfingum í einskonar myrkravaldalist. Snillingar 19. aldarinnar gáfu nefnilega óspart í skyn, að þeir væru í tygjum við dularöfl, jafnvel Þann Vonda Sjálfan, og þægju þaðan sinn undrakraft. Berkofsky hamaðist svo við þessi verk, að sumum fannst nóg um. Og til þess er leik- urinn væntanlega gerður öðrum þræði. Harmóníkan hljómar dátt Sú var tíðin fram eftir þessari öld, að harmóníkan var næstum eina hljóðfærið, sem meirihluti Islendinga þekkti í návígi fyrir utan orgel í kirkjum og á einstaka bæjum, þar sem þau stóðu þó fremur sem stöðutákn en brúks- hlutir. Daginn sem skemmtun skyldi haldin í sveitinni sást maður ganga í þá áttina með kistil á bakinu. Það var tvöfalda harm- óníkan, sem spilað skyldi á fyrir dansinum. Eftir að þær urðu fjór- og fimmfaldar, þurfti baggahest undir þær, ef ekki var bílfært. Þegar maður svo á barnsaldri heyrði einhverja fyrirrennara Jóns Múla og Svavars Gests kynna útlenda danstónlist ,og djass í útvarpinu, þá undruðust menn, að sjálfrar harmóníkunnar var sjaldan eða aldrei getið. Það var helst Bjarni Bö, sem hélt uppi heiðri hennar. Ekki tók betra við, eftir að maður ánetjaðist klaksískri tón- list. Ekkert þótti spámönnum eftir Árna Björnsson húsinu í miðvikuhádeginu, að hann er mesti vígahnöttur við píanóið. Á þessum 40 mínútum spilaði hann fyrst sónötu op. 79 eftir Beethoven. Hún er víst talin með hinum „auðveldari" eftir jöfurinn, og skal ófaglærður eng- an dóm á slíkt leggja. Hitt veit ég, að hún var vel og fallega leikin, ekki síst miðkaflinn með undur- fíngerðum hætti. og ungverskar rapsódíur fyrir utan annálaða fingrafimi við slag- hörpu og stelpur. Það er einkum á seinni áratugum, að tónlistar- menn hafa að ráði tekið að sýna þeím verkum sóma, sem Liszt sjálfur mun hafa talið merkilegri. Þetta virðist einn angi af aftur- hvarfsþörf nútímamannsins. Berkofsky flutti tvö sýnishorn af því taginu. Annað dregur nafn af Sólóplötur Bergþóra Árnadóttir - Bergmál Mikið hefur verið gefið út af íslenskum plötum á þessu ári, en þegar litið er á afraksturinn verð- ur manni fljótlega Ijóst að mikill meirihluti þessara platna er hreinræktað drasl. Þaðerþóekki svo að allt sem út hefur verið gef- ið sé lélegt, því einstaka plata hefur staðið upp úr og ein þeirra er plata Bergþóru Arnadóttur, Bergmál. Nú hefur vísnasöngur aldrei verið í neinu sérstöku uppáhaldi hjá mér. Ég held nú samt að ég sé ekki heyrnarlausari en það að ég tel mig geta sagt um að hér er á ferðinni tónlist seni unnin er af vandvirkni ogalúð. Lögin eru öll, utan eitt, eftir Bergþóru en ljóðin eru komin víðar að. Þar koma við sögu menn eins og Steinn Steinar, Davíð Stefánsson, Tóm- as Guðmundsson, Halldór Lax- ness, Hannes Pétursson o.fl. Allmargir tónlistarmenn eru Bergþóru til aöstoðar og er þar fátt að finna seni hægt er að fetta fingur út í, en hins vegar er margt vel gert. Mikið mæðir á Helga Eiríki Kristjánssyni, sem leikur á ýmis hljóðfæri, en aðrir eiga einnig góða spretti og dettur mér þá einna helst í hug ágætur píanó- leikur Guðmundar Ingólfssonar og flauturnar hans Gísla Helga-. sonar krydda tónlistina af smekk- vísi. Útsetningar eru flestar gerðar af þeim Helga og Gísla einkum þó þeim fyrrnefnda, og eru þær margar hverjar hinar ágætustu og í þeim daðrað við ýmsar stefnur. Bergþóra er . þokkaleg söng- kona en röddin kannski frekar takmörkuð og sum lögin hefði mátt vinna betur, þ.e. sjálfar tónsniíðarnar en þetta eru þó minni háttar gallar, því í heild er platan hin ágætasta. Michael McDonald Sagt er að Michael McDonald hafi hér áður fyrr verið meðlimur hljómsveitarinnar Steely Dan og vel má vera að hann hafi leikið með hljómsveitinni á hljóm- leikum en á plötu spilaði hann aldrei einn tón, heldur söng bara bakraddir. Á þessum tíma komst hann í kynni við Jeff Baxter gítar- leikara Steely Dan, sem yfirleitt gekk undir nafninu Skúnkurinn. Þegar Baxter gekk til liðs við Do- obie Brothers leið ekki á löngu áður en hann hafði mælt með McDonald, sem eftirmanni Tom Johnston, sem varð að hætta með þeim vegna veikinda, sem m.a. voru rakin til of mikillar eiturlyfj- aneyslu. Takin’It To The Streets var fyrsta platan sem Doobies lætur frá sér fara eftir komu McDon- alds, það mun hafa verið árið 1976, og að mínu mati er þar uni að ræða bestu plötu sem hljóm- sveitin sendi frá sér en platan Liv- ing On The Fault Line sem kom þar næst á eftir var einnig ágæt. Aftur á móti var Minute To Min- ute, sem kom út seint á árinu 1979, þeirra langvinsælasta plata og fór hún í fyrsta sæti bandaríska vinsældarlistans og sat þar um nokkurt skeið. McDonald hafði þegar hér var komið sögu gjör- samlega yfirtekið hljómsveitina. Lögin voru flest eftir hann og í útsetningum bar langmest á hljómborðum hans en áður en hann gekk til liðs við Doobies hafði hljómsveitin fyrst og fremst verið gítarhljómsveit. Enda fór nú svo að ýmsir hljómsveitar- meðlimir fóru að hugsa sér til hreyfings og var Skúnkurinn fyrstur til að láta sig hverfa. Pers- ónulega hef ég aldrei þolað Min- ute To Minute og finnst hún veta eitthvað það lágkúrulegasta sem komið hefur út undir merkjum Doobie’Brothers. Nú er Doobie Brothers, eftir því sem ég best veit, hætt og Mic- hael McDonald hefur sent frá sér sóló plötu. Má segja að hann sé enn að gera sömu hlutina og á Minute To Minute. Hann er nú ekki ýkja fjölbreytilegur laga- smiður og satt að segja er ekkert nýtt að finna á plötu þessari. Lögin svipuð og áður og útsetn- ingar svipaðar því sem niaður hefur áður heyrt frá honum en þó

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.