Helgarpósturinn - 25.08.1983, Síða 2
2
Fimmtudagur 25. ágúst 1983
XÉsturinn
Húrra-Húrra
Helga og Jónína
TRIUMPH
Mæögurnar luku þriggja daga rallyakstri
meö glæsibrag,
enda klæddar TRIUMPH.
Hörkuspennandi keppni er lokið og
TRIUMPH-INTERNATIONAL óskar
þeim til hamingju með frábæran ár-
angur og fjölskyldunni allri með stelp-
urnar.
Ágúst Ármann h.f.
^p'Ssturinn auglýsir
Krakkar athugiö
mánuöina júlí-ágúst stendur Helgarpósturinn fyrir keppni á lausa-
sölu á blaöinu, fyrir blaðburðarbörn.
15 glæsilegir vinningar fyrir söluhæstu börnin yfir landiö.
1. vinningur: Reiðhjól að eigin vali fyrir 7.000r
2. vinningur: Sambyggt útvarps- og kasettutæki
3. vinningur: Kasettutæki
4:—15. vinningur: Vöruúttekt að eigin vali fyrir 2.000
'Upplýsingar gefur dreifingarstjóri í síma 81866 og umboðsmenn um land allt.
Pl^| Sjálfstæðismenn eru sagðir
f' I mjög óhressir með þær
hækkanir opinberrar þjón-
ustu sem leyfðar hafa verið að
undanförnu, en forysta flokksins
hefur þó talið að ekki væri unnt að
sporna gegn þeim. Þeir sem eru að
undirbúa stjórnmálayfirlýsingu
Landsfundar Sjálfstæðisflokksins
munu leggja áherslu á að flokkur-
inn taki harðari afstöðu en hingað
til í málefnum opinberra fyrir-
tækja, og er sagt að margir telji nú
lag til þess að „koma bákninu
burt“. Eru það einkum yngri
mennirnir í flokknum með Þorstein
Pálsson, Davíð Oddsson og Kjartan
Gunnarsson í fararbroddi sem vilja
þjarma að ríkiskerfinu og skera það
verulega niður...
P/1 í Knattspyrnusambandi ís-
\ lands gerast menn nú þungir á
✓ brún. Veldur því einkum ó-
vissa um mannaval í landsleikjum i
fótbolta, sem verða úti í Hoilandi 7.
september n.k. og hér heima 21.
september á móti Irum. KSÍ er vita-
skuld mikið í mun að sem flestir
þeirra íslensku knattspyrnumanna
sem hafa atvinnu af spili sínu er-
lendis geti tekið þátt í þessum leikj-
um. En öldungis er óvíst hvort
stærsta tromp íslenska landsliðsins,
Ásgeir Sigurvinsson, á þess kost að
vera með. Hefur hann átt við alvar-
leg meiðsl að stríða, mun reyndar
vera nýkominn af skurðarborðinu
en á góðum batavegi. Auðvitað
stafa áhyggjur KSÍ af umhyggju-
semi einni saman, og eflaust eru
menn þar hinir velviljuðustu. Hitt
er annað mál að ekki gætu aðeins
úrslit leikjanna orðið tvísýn ef Ás-
geirs nýtur ekki við, heldur er jafn-
víst (og þetta er peningamál), að
stórstjörnur á borð við hann
trekkja áhorfendur svo þúsundum
skiptir...
Ævisögur stjórnmálamanna
J hafa löngum verið vinsælt
y lestrarefni og margar slíkar
komið út um hver jól. Næstu jól
ætla ekki að verða nein undantekn-
ing frá þeirri reglu. Þannig heyrum
við að hjá ísafold sé væntanleg bók
um Ólaf Jóhannesson í tilefni af
sjötíu ára afmæli hans. Bókin verð-
ur ekki ævisaga í þeim skilningi,
heldur byggð upp á greinum og
samtölum við menn úr pólitíkinni
og kerfinu sem hafa umgengist Ólaf
á ferli hans. Frændi Olafs, Stein-
grímur Jónsson, mun ritstýra verk-
inu, en meðal þeirra sem við heyr-
um að sitji í ritnefndinni er Þór Vil-
hjálmsson hæstaréttardómari. Þá
er vitað um bók um Eystein Jóns-
son, sem Vilhjálmur Hjálmarsson -
hefur skráð. Að stofni til hefur hún
að geyma ræður Eysteins við ýmis
tækifæri, en einnig mun þar fjallað
um menn og málefni. Einnig mun
væntanlegt seinna bindi æviminn-
inga Ingólfs Jónssonar, fyrrverandi
ráðherra, sem Páll Líndal hefur
skráð. Loks skal getið bókar um -
Ágúst Þorvaldsson fyrrverandi al-
þingismann á Brúnastöðum og það
mun vera Halldór Kristjánsson á
Kirkjubóli sem hana skráir. En
fleiri æviminningar stjórnmála-
manna munu vera væntanlegar....
K l Það vekur nokkra furðu
f' I manna á Snæfellsnesi þessa
dagana hvað Landsbanki
Islands virðist ætla að þjóna íbúum
á utanverðu nesinu dyggilega í kom-
andi framtíð. Landsbankinn er
nefnilega að reisa ný útibú bæði í -
Ólafsvík og á Hellissandi. Nýsmíði
útibúa í báðum grannbæjunum
þætti ekki svo fráleit ef vegurinn
fyrir Ólafsvíkurenni yrði lífshættu-
legur um alla framtíð. Málið er bara
það, að nýi vegurinn fyrir Múlann,
meðfram sjónum, verður mjög
greiðfær, eins konar hraðbraut. Á
honum verður væntanlega hægt að
skjótast á milli bæjanna (t.d. til að
skreppa í banka) „á nótæm“ án
þess að hætta lífi og limum. Lands-
bankinn hefur haft útibú á báðum
stöðum hingað til og hin mikla
samgöngubót virðist engu ætla að
breyta um það....
Veðrið um
Engar stórbreytingar fram-
undan segja þeir á Veðurstofunni.
En rigningarlaus verður hann
ekki blessaður. Um helgina er gert
ráð fyrir suðvestlægri og vestlægri
átt um allt land. Það þýðir nátt-
úrlega að fyrir sunnan og vestan
verður sólarlaust og einhver væta,
en fyrir norðan og austan verður
sól með köflum. Besta veðrið
verður þó á Austurlandi. Aum-
ekkert til að tala um. Sömu vetrar-
hörkurnar myndu andfætlingar
sjálfsagt segja og Afríkubúar.
Góða helgi.
Kreppan, engu síður en krabbinn, vinnur á reyk-
ingafólki. Eitt bragðið gegn kreppu er að búa sér til
vindlingar neysla blaða og lauss tóbaks fer ört vax-
andi í Evrópu, aukningin nam 30% á síðasta ári.
Bragð gegn krabbanum væri auðvitað að hætta
þessu bara....
m
SÖLUDEILD
AFGREIÐSLA
24220
33533
ÞAKPAPPI