Helgarpósturinn - 25.08.1983, Blaðsíða 17
17
j~}r^c^fl irinn Fimmtudsgur 25. ágúst 1983
lögur arkitektanna undir ákveðin
komplex....
Meira um lóðir og byggingar.
f' J Heyrst hefur að borgarstjór-
inn Davíð Oddsson sé með
viðræðunefnd í gangi við Eimskip
og Völund út af lóðum sem þessi
fyrirtæki eiga við Skúlagötuströnd.
Segir sagan að Gunnlaugur Péturs-
son, fyrrv. borgarritari, sé í forsvari
fyrir nefndinni. Ekki er ljóst hvað
hangir á spýtunni; sennilegast þykir
að fyrirtækin vilji fá að byggja og
byggja stórt. Það má minna á að
eigendur Völundar eru þeir Sveins-
synir (Leifur, Sveinn og fl.) sem.líka
eiga hlut í Árvakri, útgáfufélagi
Morgunblaðsins. Skyldu vera ein-
hver tengsl þarna á milli...?
Eins og borgarbúar hafa orð-
> ] ið varir við er núverandi
V meirihluti borgarstjórnar
mjög byltingarsinnaður í skipulags-
og byggingarmálum. Borgarstjóri
boðaði t.d. að hann vildi byggja í-
búðir við Skúlagötuna þar sem nú
standa ýmis. gömul fyrirtæki og
skemmur. Á fundi skipulagsnefnd-
ar Reykjavíkur s.l. mánudag voru
lagðar fram tillögur um skipulag
lóðanna þar sem nú eru Völundur
og Kveldúlfsskálinn gamli. Gylfi
Guðjónsson, arkitekt gerir tillögu
um að húsin á svæðinu verði rifin
og í staðinn komi 8 hæða blokkir.
Arkitektarnir Ólafur Sigurðsson og
Guðmundur Kr. Guðmundsson -
vilja reisa 4 hæða hús og eins konar
hús verslunarinnar, ibúðir þó upp á
10,11 og 13 hæðir. Borgarskipulagið
gerir hins vegar ráð fyrir 4 hæða
húsum og að Völundur og Kveld-
úlfsskálinn standi áfram. Sumir sál-
fræðingar myndu eflaust flokka til-
3
Með haustinu er búist við að
samkeppni hefjist um teikn-
ingar að nýrri tónlistarhöll í
Reykjavik sem hópur áhugafólks
hefur beitt sér fyrir að undanförnu.
Þessi hópur hefur verið að kanna
lóðamál hjá Reykjavíkurborg að
undanförnu. Vonast er til að línur
skýrist í þeim málum innan
skamms. Meðal þeirra staða sem
nefndir hafa verið undir lóð fyrir
höllina eru Sogamýri, svæðið við
Suðurlandsbraut hjá Glæsibæ og
svo Breiðholt. Nokkrir arkitektar
af yngri kynslóðinni hafa nýlega
hreyft þeirri hugmynd, hvort hægt
væri að reisa tónlistarhöllina í -
gamla miðbænum. Þeir hafa í huga
svæðið við Ingólfsgarð, þar sem
gömlu vörugeymslurnar standa við
varðskipabryggjuna. Þeir telja að
tónleikahöll í miðbænum yrði lyfti-
stöng fyrir mannlífið þar, og að
með þessari staðsetningu væri unnt
að komast hjá uppbyggingu dýrrar
jaðarstarfsemi við höllina s.s.
veitingastaðar og bílastæða...
Rakarastofan Klapparstíg
Sími 12725
Hárgreiðslustofan Klapparstíg
Tímapantanir
13010
T',T7VCT1? Bílaleiga
Ijf I ul IV Car rental
BORGARTÚNI 24 - 105 REYKJAVÍK, ICELAND - TEL. 1101S
Leigjum út nýja Opel Kadett, Mazda 323 og Daihatsu-bíla.
Sækjumog sendum. Simsvari allan sólar'hringinn, kredit-
kortaþjónusta.
Húsið opnað kl. 10.30
Miðasala í Félagsstofnun
stúdenta v/Hringbraut
Sími19455
Veitingasala
„Elskendurnir í Metró“
Eftir Jean Tardieu í leikstjórn
Andrésar Sigurvinssonar
Leikmynd: Karl Aspelund
Lýsing: Lárus Björnsson, Egill
Árnason
Tónlist: Kjartan Ólafsson
Síðasta sýning
„Lokatrimm sumarsins"
Lausn á 16. Ehrenstein
skákþraut 1. Dc6-Kb4 2. Dcl! og
15. Úr tefldu tafli 3. Da3
1. ..rHxh2 + ! mát
2. Dxh2-Dc6 + 1. ..rKa5
2. Kxh2-Hh8 + 2. Kb3-Ka6
3. Dg2-Hh8 + 3. Da8
og mát mát
I
PRJÚNAGARN - ÚTSAUMUR - SMYRNA
r^£«y.?
T£>l
Parið á ströndinni
ásamt mörgum
ísaumsmyndum fyrir-
liggjandi
Sjón er sögu ríkari
Póstsendum daglega
Mikið úrval af
prjónagarni
Tugir tegunda
Hundruð lita
Með haustinu bendum við
sérstaklega á mohairgarn
fyrir grófa prjóna og
ullargarn
H0F
- INGOLFSSTRÆT11
IGEGNT GAMLA BÍÓI). SiMI 16764.
j
„TÍÐINDALAUST...
SÍÐUR EN SVO!"
Segir Arnþór Helgason um nýútkomna hljómplötu Ingva Þórs Kormákssonar
Ljóð eftir:
Gunnar Dal
Pjetur Hafstein Lárusson
Sigfús Daðason
Ragnar Inga Aðalsteinsson
Pórarinn Eldjárn
Stein Steinarr
Hallgrím Thorsteinsson
SQNGVARAR:
Guðmundur
Hermannsson
Mjöll Hólm
Sverrir Guðjónsson
Dreifing: Skífan
Útgefandi: I.Þ.K.
Umsagnir
Sig. Rúnar Jónsson
(„Diddi fiðla"):
„Hér kveður við
nýjan tón miðað við
hljómplötuútgáfu
undanfarinna ára."
Arnþór Helgason:
„ . . . einstaklega
gott samræmi milli
Ijóðs og lags.".