Helgarpósturinn - 25.08.1983, Side 19
Albertsæskan hefur sett upp réttu gleraugun og brosir breitt fram
an í Sjálfstæðisfiokkslausa framtíð.
Sjálfstæðis-
flokkurinn á
sölulistann
— nái Albert kjöri í haust
Albert Guðmundsson fjármála-
ráðherra hefur ákveðið að gefa kost
á sér til embættis formanns Sjálf-
stæðisflokksins á landsþinginu í
haust.
„Ef ég næ kjöri verður mitt fyrsta
verkefni að setja Sjálfstæðisflokk-
inn á sölulista með öðrum ríkis-
fyrirtækjum" sagði Albert í samtali
við Aðalblaðið í gærkvöldi. „Ég
hef fundið fyrir miklum hlýhug
æskunnar í minn garð á undanförn-
um vikum og mánuðum og sem
fjármálaráðherra og sem væntan-
legur formaðtir flokksins get ég
ekki svikið hana. Æska þessa lands
og framtíð getur ekki, og má ekki
bera þann kross sem Sjálfstæðis-
flokkurinn er á ríkissjóði, og þar
með hinum almenna skattborgaraý
sagði fjármálaráðherra ennfremur.
Albert sagðist hafa átt könn-
unarviðræður við marga aðila um
hugsanleg kaup þeirra á Sjálf-
stæóisflokknum, en hann varðist
allra frétta. Aðalblaðið hefur hins
vegar fregnað að Alþýðubandalag-
ið sé ofarlega á lista yfir hugsanlega
kaupendur. Munu Alþýðubanda-
lagsmenn þá ætla sér að kaupa
höfuðandstæðinginn að morgni, og
hætta síðan öllum afskiptum af
honum að kvöldi, en láta hann eftir
sem áður greiða alla skatta þing-
manna Alþýðubandalagsins og
starfsmanna þess, beinna og
óbeinna.
„Hugmyndin er ekki fráleitý var
það eina sem Svavar Gestsson for-
maður Alþýðubandalagsins vildi
segja við Aðalblaðið.
„You can get the f....g party for the price of one of my cigars. But
then I call the shots...“ Albert í viðræðum við erlenda aðila.
Steingrímur hreinsar
andrúmsloftið:
Býður
gamla
fólkinu
á skíði
„Hann kom, sá og sigraði, alveg
eins og hvítur stormsveipur.“
Þessi orð hrukku út úr einni af
blaðakonum Tímans, þegar hún
kom af fréttamannafundi með
Steingrími Hermannssyni forsætis-
ráðherra í gær.
Klukkan var langt gengin i sex
þegar Steingrímur snaraðist inn í
veislusali ríkisins við Borgartún,
kvikur í spori og greiddi toppinn frá
enninu. Hvítar tennur hans fóru vel
við sólbrúnt andlitið. Og brosið.
Steingrímur rétti Bryndísi
Schram ritstjóra tískublaðsins Líf
ljósa yfirhöfn sína og hvíslaði ein-
hverju í eyra hennar. Um leið og
Bryndís hvarf með frakkann inn á
Mjólkurbarinn stundi Stefán Frið-
bjarnarson þingfréttamaður Morg-
unblaðsins og fyrr en varði berg-
málaði óánægjukliðurinn um allan
salinn. Steingrímur rétti þá upp
aðra höndina til merkis um að hann
vildi fá orðið og bauð fréttamenn
velkomna til þessa fundar, en bað
þá að afsaka töfina sem hefði orðið
á leiguvél Útsýnar frá Spáni.
„Eg náði mér í nýjan frakka hjá
Gucci og Bryndís ætlar að skoða
hann á meðan ég segi ykkur frá af-
mælisverkum stjórnarinnar, en eins
og þið vitið heldur hún upp á
þriggja mánaða afmæli sitt um
þessar mundir“, sagði forsætisráð-
herra, og það var eins og við mann-
inn mælt, fréttamenn önduðu léttar
og Tímamenn voru hreyknir af sín-
um manni.
Steingrímur Hermannsson
forsætisráðherra kom í nýjum
frakka á fundinn.
„Þetta kalla ég röggsama stjórn“,
sagði Agnes Bragadóttir af títt-
nefndu blaði.
„Ríkisstjórnin hefur ákveðið að
koma með enn eina mildandi að-
gerðina vegna hinnar gífurlegu
kjaraskerðingar sem orðin er. Við
höfum ákveðið að bjóða nokkrum
eldri borgurum í skíðaferð upp í
Bláfjöll um leið og fyrstu snjóa
festir," sagði Steingrímur Her-
mannsson forsætisráðherra og sleit
fundi.
Andrúmsloftið hreinsaðist I einni
svipan, öll tortryggni hvarf og Ósk-
ar Guðmundsson blaðamaður
Þjóðviljans gat ekki annað en dáðst
að hugrekki forsætisráðherra.
„Við þurfum fleiri slíka menn“,
sagði Óskar.
Samtök um hærra
kaup:
Dagyinnu-
laun dnga
ekki
Fjölmennur hópur einstaklinga
hefur ákveöið að stofna fjöldasam-
tök verkafólks úr öllum stjórn-
málaflokkum til að berjast fyrir
hærri launum.
„Það er útilokað að fólk geti lifað
af dagvinnukaupi í dag“, sagði
Þröstur Ólafsson, einn talsmanna
hópsins í samtali við Aðalblaðið í
gær.
„Kaupið var nógu lágt fyrir, en svo
hefur ríkisstjórnin bætt um betur
núna og skert það um tugi prósenta.
Hún m.a.s. viðurkennir það sjálf.
Og mér skilst að það megi ekki einu
sinni semja um kaup lengur. Þessu
ætlum við að breyta", sagði Þröst-
ur. Samtökin, sem kalla sig Alþýðu-
samband íslands (A.S.Í.), ætla að
gangast fyrir borgarafundi í Iðnó á
sunnudaginn kl. 14:00.
„Ég hélt að þeir ætluðu alveg að
tæma mig þegar þeir komust að
því að ég er ekki hommi,“ sagði
þessi maður þegar hann kom úr
blóðbankanum í gær.
Dr. Jóhannes Nordal meðal jafningja við setningu Friðarþingsins.
Dr. Jóhannes Nordal
seðlabankastjóri flytur
aðalræðu á Friðarþingi
pakistanskra kvenna í
London
Dr. Jóhannes Nordal, seðla-
bankastjóri og formaður íslensku
samninganefndarinnar í Álmálinu
gaf sér tíma frá annasömum fund-
um nefndarinnar með fulltrúum
Alúsviss í London um helgina og
skrapp á þing Friðarhóps pakist-
anskra kvenna þar í borg. Jóhann-
es, (sem kallaði sig Mrs. Mushtag
Mehr) flutti aðalræðu þingsins og
fjallaði þar um yfirgang ísraels-
manna í Miðausturlöndum og gyð-
inga yfirleitt í heiminum. í ræðu
sinni vitnaði Jóhannes (alias Mrs.
Mehr) óspart í Kóraninn, blaðlaust.
Fréttaskýrendum í London ber
saman um að Jóhannes hljóti að
kunna Kóraninn utanað, eða a.m.k.
álíka vel og núgildandi álsamning,
enda sé hvort tveggja honum jafn
heilagt.
VERKAMANNASAMBAND
ÍSLANDS
auglýsir laust til umsóknar
STARF FRAMKVÆMDASTJÓRA
Laun samkvæmt kjarasamningum Dags-
brúnar, lægstataxta(margfölduö meö þrem-
ur).
Umsóknarfrestur um stöðuna rann út í
gær.
F.h. stjórnar VMSÍ Guðmundur J. Guð-
mur>t*sson formaður.