Helgarpósturinn - 25.08.1983, Qupperneq 21
21
1 f-faj ' '' '' ■ T *■i
irinn Fimmtudagur 25. ágúst 1983
??Þeir sem settu svip á
staðinn
eru flestir dauðir“
■ ■ V >:■ :
Konungsveisla?
Mikið jínerí d Café Rosenberg árið 1920.
/
— Café Rosenberg heitir nú I kvosinni
Café Rosenberg. Nafnið hljómar einhvern
veginn ekki ókunnuglega, það er eins og hvíli
yfir því blær liðinnar tíðar. Hugurinn hvarfl-
ar ósjálfrátt að nöfnum á frægum kaffihúsum
í þeirri Evrópu sem var og Stefan Zweig hef-
ur lýst af nærfærni í æviminningum sínum:
Café Luitpold og Café Grössenwahn í
Miinchen, Café Baumgartner í Linz. Og
raunar sómir Café Rosenberg sér vel í þess-
ari upptalningu, þótt frægð þess hafi ef til vill
fallið í dá um nokkra hríð. Blómaskeið þess
var þriðji áratugur okkar aldar — gullnu
árin hýru þegar amma var á gelgjuskeiðinu.
Veitingahúsið Café Rosenberg var starfrækt
með miklum glæsibrag í kjallara Nýja bíós í
Reykjavík á árunum upp úr 1920.
Eigandinn hafði áður verið bryti á björgunarskipinu
Geir. Hann var danskur maður að ætt og hét Alfreð
Rosenberg. Ekki er vitað til að hann hafi verið náskyldur
samtíðarmanni sínum, þýskum stjórnmálafrömuði, sem
var alnafni hans. Til þess var tekið hversu salarkynni á
Café Rosenberg voru vegleg, þau áttu þátt í að skapa örlít-
ið heimsborgaralegra andrúmsloft í Reykjavík þeirra
tíma. Sagt er að veitingar allar hafi verið framreiddar af
mestu rausn, hr. Rosenberg þótti ekki við hæfi að hafa
annað á boðstólum en aðeins hið besta. Hljómsveit lék
fyrir dansi — „Hljómsveit Café Rosenberg" — skipuð
Hljómsveit Café Rosenberg:
Karl 0. Runólfsson, Þórarinn Guðmundsson, Eggert Gilfer,
Torfi Sigmundsson og Björn Jónsson.
nafntoguðum tónlistarmönnum. Þetta voru þeir Karl Ó.
Runólfsson, Þórarinn Guðmundsspn, Eggert Gilfer, Torfi
Sigmundsson og Björn Jónsson. Á lagaskránni voru sex
til sjö hundruð lög og gátu gestir valið sér öska- og eftir-
lætisdanslög úr öllum þeim fjölda — sannkallað djúkbox
þeirra ára! Þá var þar einnig ungum sem öldnum veitt
nokkur tilsögn í fótmennt. Þetta voru þó alltént The
Golden Twenties !
Sverrir Bernhöft stórkaupmaður í Reykjavík á notaleg-
ar endurminningar um Café Rosenberg. „Ég var pró-
grammsali í Nýja bíó þegar ég var þetta tólf eða þrettán
ára snáðiý sagði hann í samtali við Helgarpóstinn. „Og
manni þótti þetta heldur en ekki upphefð. Það brást sjald-
an að eftir tónleika, til að mynda hjá Karlakór Reykjavík-
ur, var haldið kaffisamsæti í kjallaranum. Þá var jafnan
mikið um dýrðir, ætíð höfðinglegar veitingar og það átti
nú við okkur strákana. En ég man eftir því að þegar hann
Gotti bróðir heitinn söng einu sinni einsöng þarna niðri
þorði ég ekki fyrir nokkurn mun að vera viðstaddur því að
ég var svo hræddur um að hann myndi springa á limminu.
Mikið var um að alls konar músíkantar træðu upp, líka
útlendingar eins og Poul Bernburg sem seinna var spilari
á Borginni. Annars eru þeir sem settu svip á staðinn flestir
dauðir núna!‘
Síðar, á daprari tíð, lognaðist Café Rosenberg út af —
að nokkru leyti af tæknilegum ástæðum, eins og sagt er.
Alfreð Rosenberg, hins vegar, hóf að reka Hótel Island og
gerði það á hinn snöfurmannlegasta hátt, uns það brann
til kaldra kola eina vetrarnótt á því herrans ári 1944. Á
þeim stekk getur nú að líta hið rómaða Hallærisplan.
En þar með er saga Café Rosenberg ekki öll. Endur-
reisnin er í nánd. Á næstu dögum verður opnaður nýr
veitingastaður í gömlu húsakynnunum — kjallara Nýja
bíós. „Hver sem sæi staðinn fengi óðara þessa hugmyndý
sagði Hafsteinn Gilsson, framkvæmdastjóri og einn
eigenda hins nýja veitingastaðar, þegar blaðamaður innti
hann eftir því hvernig hugmyndin að veitingarekstri ein-
mitt þarna hefði kviknað.
„Ætlunin er að staðurinn heiti í kvosinniý sagði Haf-
steinn ennfremur, og lét þess jafnframt getið að „Café
Rosenberg" yrði endurvakið og í heiðri haft sem róman-
tískur undirtitill. „Margir kannast við nafnið.“
Allt var á tjá og tundri í kjallara Nýja bíós þegar blaða-
maður gerði þar vettvangskönnun fyrir skemmstu.
Iðnaðarmenn í óða önn að reka smiðshöggið hver á sitt
verk — málarar, rafvirkjar, trésmiðir og aðrir völundar.
Ekki er að undra þótt handtökin séu mörg og ófárra lag-
færinga sé þörf, því að þarna hefur heildverslun ein hér í
borg haft pakkhús í öll þau ár sem Iiðin eru frá því að Café
Rosenberg lagði upp laupana.
Yfirumsjón með innréttingum sem og tilhögun allri
hefur Jón Hjaltason annast. Við gerð innréttinga hefur
hann stuðst við gamlar Ijósmyndir, sem einhver býsn eru
til af og virðist fólk í þann tíð hafa haft unun af að láta
smella af sér mynd í þessu tignarstóra umhverfi. Leitast
verður við að vekja til lífsins, að svo miklu leyti sem slíkt
er unnt, það andrúmsloft sem þarna sveif yfir vötnunum
á áratugnum gullna. Gyllingar verða á súlum, birtu stafar
af voldugum kristalsljósakrónum, plussáklæði á mubbl-
um, persnesk teppi á gólfum. Sannarlega pell og purpuri,
eins og stendur í biblíunni.
En hvers konar starfsemi skyldi vera ætlað að fara fram
á veitingastaðnum nýja? „í kvosinni verður fyrst og
fremst notaður undir einkasamkvæmi, afmælis- og
fermingarveislur, fundahöld ýmiss konar og mann-
fagnað af öllu tagiý svarar Hafsteinn Gilsson. „Auðvitað
verðum við með mat og aðrar veitingar, einnig vínveiting-
ar.“
Ekki kvaðst Hafsteinn þó vilja útiloka að í kvosinni
yrði síðar meir almennur veitingastaður, a.m.k. í aðra
röndina, en framtíðin þyrfti að skera úr um það. Fram
kom og að hljómgrunnur væri fyrir að hafa þarna jass-
kvöld og jafnvel einhvers konar listuppákomur í miðri
viku. Café Rosenberg er vaknað af meira en hálfrar aldar
dásvefni. —Góð tíðindi, ekki satt? — ÞE
SELKO
ÐNSYNING JL
a aöcfi D aS
í sérflokki
Þar getið þér skoðað framleiðslu okkar.
Hinar nýju glæsilegu spjaldahurðir með og án glugga
að ógleymdum okkar sívinsœlu SELKO fataskápum
sem við bjóðum nú í nýjum og fjölbreyttari
viðartegundum. - Verið velkomin.
SIGURÐUR
ELÍASSONHF.
Auóbrekku 52 Kúpavogi, s 41380