Helgarpósturinn - 24.05.1984, Page 2

Helgarpósturinn - 24.05.1984, Page 2
SÍMASKRÁNA íMíöarkápu! Símaskráin er allsstaðar nauðsynleg. En eftir nokkra notkun vill hún verða snjáð. Stundum rifna blöð úr og þá geta skapast vandræði. Forðum því. Hlífðarkápan frá Múlalundi er lausnin. Endist ár eftir ár og er ódýr í þokkabót. § 1 Hafið samband við sölumann. Múlalundur Ármúla 34 - Símar 38400 og 38401 - 105 Reykjavík SUNDAKAFFI AUGLÝSIR Kaffi, kökur, smurtbrauð. Heitar og kaldar samlokur. Hamborgarar og franskar kartöflur. Heitar pylsur, tóbak, öl og sælgæti. Opið allar virka daga kl. 7.00 - 22.00 Iaugardaga8-19 sunnudaga10-19 SUNDAKAFFI V/SUNDAHÖFN Tugirtegunda afteogkaffi ☆ Það lagði Ijúfan ilm fyrir vit okkar þegar við opnuðum hurðina á Barónsstíg 18. Þar opnaði nýlega verslunin Te og kaffi sem mun í fram- tíðinni bjóða uppá meira úrval af þessum göfugu drykkjum en fáanlegir hafa verið á íslandi til þessa. Þar ráða húsum Berglind Guðbrandsdóttir oo. maður Tékkneskir dagará Loftleiðahóteli ☆T ékkneskir dagar verða haldnir á íslandi 24.-30. maí næstkomandi og verður mikið um dýrðir. Dagskráin fer að mestu leyti fram á Hótel Loftleiðum sem hefur fengið tékkneskan kokk til liðs við sig, en dagarnir eru á vegum utanríkisverslunar- ráðuneytis Tékkóslóvakiu, auglýsingafyrirtækisins Rapid og tékkneska sendi- ráðsins í Reykjavík. Auk þess sem kynntir verða tékkneskir sérréttir á Hótel Loftleiðum leikur þar þjóðlagatríó og til sýnis verða ýmsar vörur sem tékknesk útflutningsfyrirtæki hafa á boðstólum. Börnum verður boðið upp á tékkneskt sjónvarpsefni, einkum byggt á þjóðsögum, og má vel vera að þau kenni þar ein- hverja vini úr barnatímum sjónvarpsins, þar sem tékkneskar teiknimyndir eru vinsælar. Á fundi með fréttamönnum minntist Jindrich Jirasek, frá Rapid, þess að fyrsti efna- hagssamningur Islands og Tékkóslóvakíu hefði verið gerður fyrir sextíu árum. Samband landanna hefði ávallt verið gott og vinsam- legt. Undanfarin tvö ár hafa viðskipti landanna dregist ..,^^5 hennar Sigmundur Dýrfjörð, sem fengu hugmyndina að þessari verslun þegar þau voru búsett í Gautaborg. „Við stefnum að því aö vera með allt sem til þarf til að sælkerar á te og kaffi geti notið þessara veiga sinna með sem ferskustum og fjöl- breyttustum hætti. Við verðum meðal annars með fimm tegundir af kaffi- baunum og fólk getur þessvegna búið sértil eigin blöndur til að drekka. Við komum til með að selja kvarnir til að mala baunir og einnig ýmsar tegundir af könnum til kaffigerðar, til dæmis sérstakar könnur til að búatil Capuccino.“ Tebirgðireru þegarorðnar allnokkrar í versluninni. Þar er nú hægt að fá te frá Indlandi, Ceylon, Indónesíu, Kína, Formósu og Japan. Einnig eru á boðstólum ýmsar tegundir sem eru bragðbættar með ávöxtum eða víni. Þá má ekki gleyma alls- konar jurtatei; birki, kamillu, valhnetu og þarfram eftir götunum. Menn sykra sína drykki misjafnlega og í Te og kaffi fá þeir ýmsar tegundir að velja úr, svosem hrásykur og kandís. Þeir sem vilja reyna eitthvað nýtt í kaffi- og tedrykkju geta örugglega fundið skemmtilegttilbrigði í þessari litlu verslun.* verulega saman. Versnandi efnahagsástand á íslandi og aðhaldsaðgerðir í baráttu við verðbólgu og vöruskipta- halla nánast lokuðu íslensk- um markaðifyrirtékkneskum vörum. Jindrich Jirasek sagði Tékka telja að enn væru fyrir hendi möguleikar til að auka viðskipti landanna. Tékkar væru reiðubúnir að hefja á ný innflutning fiskmjöls og ann- arra fiskafurða, sem ekki hefðu veriðfáanlegarfrá íslandi undanfarið. Einnig stefndu þeir að árangri með tilboði í tæki Blöndu- virkjunar. ,,Við teljum að unnt sé aö snúa við samdrætti í við- skiptum landanna og teljum að tékknesku dagarnir og þátttaka okkar í kaup- stefnunni í ágúst auki likur á að það takist.“^ LATIÐ FAGMENN VINNA VERKIÐ bprungu- in. Upplýsingar í símum Sm. (91) 66709 81 24579 Tökum að okkur að þétta sprungur í steinvegjum, lögum alkalískemmdir, þéttum og ryðverjum gömul bárujárnsþök. þétting Höfum háþróuð amerísk þéttiefni frá RPM 11 ára reynsla á efnunum hér á landi. Gerum föst verðtilboð yður að kostnaðarlausu án skuldbindinga af yðar hálfu. Svifið yfir Sandskeiði ☆ Þegarskíðamennhætta að njóta útsýnisins í Bláfjöllum taka svifflugmenn viö. Undanfarnar vikur hafa flugur þeirra oft vokað yfir skíðamönnunum, því nú er allt komið í gang á Sand- skeiðinu. Svifdrekaflugmenn hafa sig þar líka í frammi og hafa fengið að fara með græjur sínar upp í stóla- lyftunni og hef ja sig til flugs af fjallstoppinum. Þegar Jim smellti af þessari mynd á Sandskeiðinu, var ekki nokkurn mann að sjá í grennd við svifflugurnar, né áburðarvélina sem dregur þær á loft. Með tilliti til þess hvernig veðrið var taldi hann víst að þeir hefðu fundið sér einhverja laut og lægju þar í sólbaði.-* 2 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.