Helgarpósturinn - 24.05.1984, Síða 3

Helgarpósturinn - 24.05.1984, Síða 3
Ný ferðaskrifstofa Nýir sumaiieyfisstaðir ~ Glæsilegar ferðir, góðir gististaðir J Rhodos Garda Túnis „Jaa. . . við reynum að laga afköstin að laununum. Við höfum til dæmis unnið á hálfum hraða en farið allt upp í þrjá fjórðu úr venjulegum vinnuhraða." - Og gert símnotendum lífið leitt með alls kyns brögðum: Seinagangi í að fá són, truflunum á línum og þar fram eftir götunum? „Ekki liggur fyrir nein fundarsamþykkt um slíkan skæruhernað. En það er aldrei aö vita hverju menn taka upp á þegar þeir eru pirraðir.“ - Þið gerið ykkur grein fyrir því að þið eruð mjög óvinsæl stétt þessa stundina? „Það er alltaf gott að vera vinsæll en það kemur ekki í stað launahækkunarsem nemur hálfu kaupi.“ - Eru það kröfurnar? „Sérkröfur okkar eru að laun okkar miðist við laun rafeindavirkja á almennum markaði, og að starfsréttind- in verði að fullu viðurkennd. Auk þess viljum við að rafeindavirkjar Pósts og síma fái fulla aðild að endur- menntunarkerfi því sem meistara- og sveinafélög raf- eindavirkja hafa samið um sín á milli." - Hvað þýða þessar kröfur í tölum? „Við rafeindavirkjar (áður kallaðir símvirkjar) hjá Pósti og síma erum í 13.-15. launaflokki. Eftir allmörg ár I starfi losum við 16 þúsund á mánuði. Rafeindavirkjar á almennum markaði eru ekki undir 30 þúsund krónum á mánuði, nema þeir sem eru nýskriðnir úr skóla. Við viljum því 7 til 8 launaflokka, eða 30% hækkun. Það ber einnig að hafa í huga að verkfræðingar og tæknifræð- ingar hjá Pósti og síma fá 20 tíma yfirvinnu borgaða mánaðarlega en slík hlunnindi falla ekki okkur í skaut." - Hvernig varð hugmyndin um skæruhernaðinn til? „Hún kom eiginlega neðan frá, þ.e.a.s. stór vinnuhóp- ur var að ræða um kjör sín og hugsanlegar aðgerðir í kaffitímanum. Og þá fengu menn hinar ágætustu hug- dettur." - Hvað gerið þið eftir þriggja daga fríið? Farið aft- ur í vinnu og hagið ykkur vel eða halda aðgerðirnar áfram? „Við förum aftur í vinnu og sjáum hvað setur. Ef ekkert gerist í okkar kjaramálum á næstunni munu símamál landsmanna dofna hægt og sígandi. Að hausti er ekki ósennilegt að þau fjari alveg út. En það skiptir okkur ekki svo miklu, því þá verðum við sennilega búnir að taka öðrum vinnutilboðum sem til okkar streyma. Til dæmis er mjög sóst eftir rafeindavirkjum á Norðurlöndum." - Þið metið mátt ykkar sem mikinn? „Við erum sterk stétt varðandi fjarskipti. Við erum beinlínis með allt kerfið í höndunum. Einn símvirki getur gert meira á hálftíma en öll BHM-hjörðin á Pósti og síma getur afkastað á mánuði." - Og svona að lokum frá skæruliða í kjarabar- áttu. .. „Ég vil bara segja að sem gömlum starfsmanni Pósts og síma leiðist mér að standa í svona málum. Það er sorglegt að þurfa að grípa til skæruaðgerða til aö hlust- að sé á sjálfsagðar launakröfur." Leó Ingólfsson er fæddur 1933. Hann hefur veriö starfandi rafeindavirki (símvirki) síðan 1959. Hann vann áðursem teng- ingamaður við jarðsíma en vinnur nú við tæknideild og er jafnframt formaður svonefndrar fimmtu deildar, en i henni eru símvirkjar sjálfvirku stöðvanna. Þægilega milt lottslagið, hvítar strendurnar, náttúrufegurðin og síðast en ekki síst eyjaskeggjar sjálfir, allt gerir þetta Rhodos að sælureit ferðamannsins. Góð hótel eða íbúðir, sól og sjór, fjölbreytt afþreying, fjörugt næturllf. Það er varla hægt að hafa það betra. Ef þú villt ferðast á eigin vegum, t.d. á bílaleigubil, þá er upplagt að dvelja eina viku (eða fleiri) við Gardavatnið í ítölsku Ölpunum. Við bjóðum gistingu í glæsilegum sumarhúsum eða ibúðum í þessari sólarparadis, þar sem aðstaða er í sérflokki, ekki síst fyrir bömin. Róm-Sperlonga Vikudvöl í Róm verður ógleymanleg. Hvem hefur ekki dreymt um að líta augum staði eins og Péturskirkjuna, Colosseum eða Forum Romanum? Að dvölinni I Róm lokinni er haldið til Sperlonga, — baðstrandar mitt á milli Rómar og Napolí. Dvalið verður í mjög skemmtilegum íbúðum rétt við ströndina. Sund- laug, verzlun og veitingahús er á staðnum. Og svo er það rúsínan í pylsuendanum — bllaleigublll fylgir með hverri íbúð. í Sousse I Túnis er haegt að kynn- ast ekta Afrískri stemmingu. Reika um þröngar götur með hvftkölk- uðum húsum, prútta við kaupmenn og kynnast framandi lifnaðar- háttum. Farþegar okkar búa á glæsilegu hóteli eða í þægilegum Ibúðum út við hvíta ströndina. Þar eru þægindi og aðstaða eins og best verður ákosið, diskótek, nætur- klúbbar og fjölbreyttir veitingastaðir á hverju strái. FERDASKRIF5TOFAN Laugavegi 28, 101 Reykjavik. Sími 29740 Stundið þið skæruhernað? Verð og nánari upplýsingar á skrifstofunni. Fáið bækling og verðlista sendan Safari-tískan ☆ „Ef hægt er að tala um að eitthvað sé ráðandi í sumar- tískunni þá er það helst safari-línan,“ sagði Marta Bjarnadóttir í Gallery, þegar við litum þar inn, í vikunni. „Safari-sniðið er raunar sígilt og hefur alltaf verið nokkuð vinsælt en í sumar er sérlega mikið framboð á skemmtilegum útfærslum á því, bæði fyrir pilta og stúlkur. Að öðru leyti má segja það um sumartískuna að fötin eru mikið úr léttum og Ijósum efnum. Það eru til dæmis mörg blæbrigði af grænu og bláu og „off“ eða ,,faded“ litir eru vinsælir. Sniðin eru yfirleitt víð og þaö er því mjög þægilegt að vera í sumartískunni í ár.* Krossgátuverölaun til Breiðdalsvíkur Fjölmörg svör bárust við verð- launakrossgátunni hún Edda jörgvins dró fyrir okkur úr réttum lausnum. ☆ „Nei, hvað ertu að segja, það var garnan," sagði hún Auður Stefánsdóttir á Breið- dalsvík, þegar við hringdum til að segja henni að hún hefði unnið fyrstu verðlaun í verðlaunakrossgátu Helgar- póstsins, sem var í blaðinu 19. apríl. „Ég dunda oft við að ráða krossgátur og sendi þær inn ef það eru einhver verðlaun, en ég hef aldrei unnið til þeirra fyrr. Þetta eru því skemmtilegar fréttir.“ Inní krossgátuna var fléttuð eftirfarandi öfug- mælavísa: Heyrði ég úthafsöldugný uppi á reginheiðum, lóuna syngja dirrindí djúpt á sjávarleiðum. Tvenn verðlaun voru í boði, tvöþúsund krónur og eitt- þúsund krónur. Auðurfær send fyrstu verðlaunin heim til Breiðdalsvíkur. Önnur verðlaun fékk Halldóra ísberg sem býr við Tómasar- haga í Reykjavík og hún fær þau líka send í pósti.* HELGARPÓSTURINN 3

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.