Helgarpósturinn


Helgarpósturinn - 24.05.1984, Qupperneq 4

Helgarpósturinn - 24.05.1984, Qupperneq 4
'¥f" Sigríður Magnúsdóttir hjá nýju ferðaskrifstofunni; Terra. Viltu ferðast um eyðimerkur? ☆ ,,Enn ein ferðaskrifstofa,11 sögðum við Jim þegar við tylltum okkur fyrir framan skrifborðið hennarSigríðar Magnúsdóttur hjá ferða- skrifstofunni Terra sem opnaði, að Laugavegi 28, fyrir nokkrum dögum. Sigríöur skellihló; ,,Þið eruð ekki þeir fyrstu sem segið þetta. Við erum nú samt bjartsýn á að þetta gangi hjá okkur. Allar þær fyrirspurnir sem við höfum fengið síðan við opnuðum benda allavega til þess að fólk hafi áhuga á þeim nýju stöðum og nýju leiðum sem við bjóðum uppá.” Það eru eilefu aðilar sem eiga hlutafélagiðTerra, en af þeim er Sigríður sú eina sem hefur reynslu af ferðabrans- anum. Hún er búin að vera í honum í sjö ár, fyrst hjá Sam- vinnuferðum-Landsýn og svo hjá Ferðaskrifstofu stúdenta. Terra þýðir jörö og þeir Jarðarbúar ætla að fara hægt af stað í fyrstu, að sögn Sigríðar. í sumar verður þó boðið upp á feröir til grísku eyjarinnar Rhodos á tveggja vikna fresti og einnig upp á hópferðirtil Rómarog Túnis. Þá býðurTerra sumarhús eða íbúðif við Garda-vatnið á Ítalíu fyrir þá sem vilja ferðast á eigin vegum. Þeir geta náð til Garda með bíla- leigubílum eða lest. Hvorki Ítalía né Rhodos eru alveg nýir staðir fyrir íslenska ferðamenn, en ferðatilhögun Terra er nokkuð öðruvísi en hinna skrifstofanna. Túnis er aftur á móti nýjung og þar er boðið upp á ýmis- legt nýstárlegt, eins og til dæmis tveggja daga eyði- merkurferð þar sem gist er í Bedúínatjöldum. Einnig gefst tækifæri til að skoc^ Karþagó.* Leikfélag Selfoss á leið til írlands ☆ Leikarar í Leikfélagi Selfoss hafa staðið í ströngu undanfarnar vikur. Þeir hafa hamast við að læra textann við ,,Þið munið hann Jörund,” á ensku. Og á morgun (föstudag) leggja þeir land undir fót til írlands þar sem þeir troða upp á hátíð áhugaleikhúsa, sem haldin er í bænum Dundalk, fyrir norðan Dublin. ,,Á ensku heitir leikritið „Jokers and Kings,“ sagði Viðar Eggertsson leikstjóri sem fór á harðahlaupum gegnum ritstjórnina hjá okkur á mánudaginn, enda hafa leikstjórar í mörg horn að líta svona rétt áður en þeir leggja heiminn að fótum sér. „Molly Kennedy þýddi verkið á sínum tíma og gerði þaö listavel.“ Selfyssingar hafa beitt öllum ráðum til að læra aö koma textanum rétt til skila. Meðal annars hafa þeir gripið blásaklausa Englend- inga sem hafa óvart farið í gegnum þeirra bæ og sett þá , niður til að hlusta á fram- íburðinn. VERSLUNARMIÐSTÖÐ VESTURBÆJARIN m ^ Allar vörur Jli ti ý á markaðsverði. 2 p Be ■unocA? <**%&«** RAFTÆKJADEILD II. HÆÐ Raftæki - Rafljós og rafbúnaður JL-GRILLIÐ Grillréttir allan daginn MUNIÐ OKKAR HAGSTÆÐU GREIÐSLUSKILMÁLA Innkaupin eru þægileg hjá okkur Svo geturðu líka slappað af í Kaffiteríunni OPIÐ: Mánud.-fimmtud. 9-19. Föstud. 9-20. Laugard. 9-16. Jon Loftsson hf „Árangurinn ermjög góður,“ sagði Viðar, „leikararnir eru jafnvel farnir að tala með írskum og skoskum hreim, eftir því sem við á.“ Á hátíðinni í Dundalk flytja sjö leikhópar frá sjö löndum sjö verk á sjö dögum í húsi sem tekur sjö hundruð manns. Hóparnir eru frá ísrael, Mexíkó, Bandaríkjun- um, Bretlandi, írlandi og Selfossi. Jónas Árnason er líklega að verða einn frægasti leikritahöfundur, íslenskur, á írlandi því Skjaldhamrarnir hans voru á sínum tíma einnig fluttir í Dundalk. Það var þá sér- stakur gestaleikur, þar sem þá voru atvinnumenn á fjöl- unum. En við væntum þess að Selfyssingar veki þar jafn- mikinn fögnuð.* Hringbraut 121 Sími 10600 Maíergóður skíðamánuður ☆ Það fernú líklegahverað verða síðastur að renna sér á skíðum í Bláfjöllum. Undan- farnar vikur hefur verið þar nægur snjór, en hinsvegar fátt um gesti. Þegar snjór hættir að sjást á götum höf- uðborgarinnar er eins og menn gleymi því að hann sé enn til í fjöllunum. Maí er hinsvegar oft á tíðum einn allra skemmti- legasti mánuður til að skíða í Bláfjöllum. Veðrið er þar indælt og oft á tiðum svo heitt að menn skíða berir að ofan. Sumir eru svo ákafir að njóta sólarinnar að þeir leggja sig til í stólalyftunni, eins og sést á meðfylgjandi mynd.* Umsjón: ÓliTynes myndir Jim Smart 4 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.