Helgarpósturinn - 24.05.1984, Blaðsíða 16

Helgarpósturinn - 24.05.1984, Blaðsíða 16
I.FiKFÉLAC REYKJAVlKUR 9M116620 GÍSL Laugardag kl. 20.30. Priðjudag kl. 20.30. FJÖREGGIÐ 8. sýn. fimmtudag kl. 20.30. Appelsínugul kort gilda. 9. sýn. sunnudag kl. 20.30. Brún kort gilda. BROS ÚR DJÚPINU Föstudag kl. 20.30. Stranglega bannað börnum. Miðasala í Iðnó kl. 14 - 20.30. GEYSIR Carrental Borgartún 24 Ihom Nóatúnal Sími 11015, á kvöldin 22434. Sækjum — Sendum — Aðeins að hringja — Nýir og sparneytnir bílar. Tegund og argerð daggj Kmgj. Lada 1500 station argerð 1984. 600 5,00 Opel Kadett (framdnf) argerð 1983. 700 6,00 Lada Sport jeppar argerð 1984 900 8,00 Allt verð er án soluskatts og bensins. ÞJÓÐLEIKHUSIfl GÆJAR OG PÍUR Fimmtudag kl. 20. Uppselt. Föstudag kl. 20. Uppselt. Laugardag kl. 20. Uppselt. Sunnudag kl. 20. Miðasalakl. 13.15-20. Sími 1.1200. Stúdentaleikhúsið Oxsmá sýnir: Oxtor í Svartholi í Tjarnarbíói, fimmtudag 24., föstudag 25,ogsunnu- dag 27. maí. Farmiðasala opnar kl. 20.00. Ferðin hefst kl. 21.00 stundvislega. Ath. Allra síðustu sýningar. Notum ljós í auknum mæli — í ryki, regni.þoku fw| AÐALFXJNDUR S.Í.F. Aðalfundur Sölusambands íslenskra fiskframleiðenda fyrir árið 1983 verður haldinn að Hótel Sögu 7. júní nk. og hefst kl. 10 f.h. Dagskrá samkvæmt félagslögum. STJÓRN SÖLUSAMBANDS ÍSLENSKRA FIS KFR AMLEIÐENDA Auglýsing um starfslaun til listamanns Reykjavíkurborg auglýsir eftir umsóknum um starfslaun til listamanns í allt aö 12 mánuði. Þeir einir listamenn koma til greina viö úthlutun starfslauna, sem búsettir eru í' Reykjavík. Það skilyröi er sett, aö listamaðurinn gegni ekki fastlaunuöu starfi meðan hann nýtur starfslauna. Listamenn úr öllum listgreinum geta sótt um starfslaunin. Fjárhæð starfslauna fylgir mánaðarlaunum skv. 4. þrepi 105. Ifl. í kjarasamningi Bandalags háskólamanna og fjármálaráðherra f.h. ríkis- sjóðs. Starfslaun eru greidd án orlofsgreiðslu eða annarra launatengdra greiðslna. Að loknu starfsári skal listamaðurinn gera grein fyrir starfi sínu með greinargerð til stjórnar Kjarvalsstaða, framlagningu, flutningi eða upp- lestri á verki í frumflutningi eða frumbirtingu, allt eftir nánara samkomulagi við stjórn Kjarvalsstaða hverju sinni og í tengslum við Listahátíð eða Reykjavíkurviku. Ekki er gert ráð fyrir sérstakri greiðslu skv. þessari grein, en listamaðurinn heldur höfundarrétti sínum óskertum. i umsókn skal gerð grein fyrir viðfangsefni því, sem umsækjandi hyggst vinna að, og veittar aðrar nauðsynlegar upplýsingar. Umsóknum skal komið til listaráðunauts Kjar- valsstaða fyrír 10. júní 1984. Stjórn Kjarvalsstaða SÝNINGAR Listasafn Alþýðusambands íslands Sunnudaginn 27. maí lýkur sýning- unni, Úr starfi í leik, í Listasafni ASÍ. Á sýningunni sýna félagar úr Málm- og skipasmiðasambandi Islands og Sam- bandi byggingamanna fristundaverk sín. Þátttakendur i sýningunni eru 23 og sýna beir 102 verk, olíumálverk, vatnslitamyndir, höggmyndir, tré- skurðarmyndir o.fl. Sýningin er opin laugardag og sunnu- dag kl. 14-22. Listasafn Árnessýslu, Selfossi Svava Sigríður Gestsdóttir hefur opnað sýningu í Listasatni Árnes- sýslu, Selfossi. Á sýningunni eru 34 verk, vatnslitamyndir og sumar unnar með bleki. Sýningin er opin kl. 14-21 um helgar og kl. 18 - 21 virka daga. Sýningunni lýkur 31. maí. Djúpið N.k. fimmtudagskvöld, 31. maí, lýkur sýningu á „talað’ekki umða/don’ttalk ’bout it“. Ljósmyndasýningu sem staðið hefur í Djúpi Hornsins við Hafn- arstræti síðan 9. maí. Sigríður Vala sýnir þar 27 Ijósmyndir auk þriggja málverka sem hún kallar „Panaeolus fer í ferð“. Sýningin er opin samfara opnunartima Hornsins. í Þrastalundi Ólafur Sveinsson myndlistarmaður opnar i dag, 25. mai, sina aðra mynd- listarsýningu. Ólatur nefnir sýninguna Ástina og vorið. Á sýningunni eru nær eingöngu vatnslitamyndir allar unnar á þessu ári. Sýningin stendur til 8. júní. í Gallerí Langbrók er sölusýning Lang- bróka: grafik, keramik, tauþrykk, mál- verk, vatnslitamyndir, teikningar, fatn- aður og glermyndir: Sýningin stendur fram að Listahátíðinni. Ásmundarsalur I Ásmundarsal er sýning Bjarna Ragn- ars Haraldssonar á málverkum. Sýn- ingin stendurtil 7. júní. Listmunahúsið Jóhanna Kristín Yngvadóttir opnaði málverkasýningu laugardaginn 5. mai sl. Opið virka daga kl. 10 - 18 og laug- ard. og sunnud. kl. 14 - 18. Lokað mánud. Vesturgata 17 Laugardaginn 5. maí opnaði Jóhannes Jóhannesson sýningu, þar sem hann sýnir olíumálverk. Sýningin verður opin til 27. maí. Gallerí Grjót í Gallerí Grjót er samsýning félaganna fram að Listahátíðinni Menningarmiðstöðin Gerðubergi Sigurður Jónsson sýnir alls konar myndir um helgina. Sýningin stendur eitthvað fram i næstu viku. Sigurður segist ekki vera listamaður. Hann er skiltamálari, og vinnur nú við sund- laugina i Breiðholti. 10% af söluágóða sýningarinnar rennur til stækkunar sundlaugarinnar. Efling hugar og handar nefnist sýning sem er í Gerðubergi þessa dagana. Sýningin er á vegum Þroskaskóla ríkisins á handavinnu nemenda. Síðasta sýningarhelgi. Ágóði af sýningunni rennur til efnis- kaupa fyrir nemendur. Kjarvalsstaðir Einar Hákonarson er með málverka- sýngingu og grafík i vestur-forsal. Sl. laugardag opnaði á Kjarvalsstöð- um skipulagssýning á vegum Reykja- víkurborgar. Mokka Nú stendur yfir Ijósmyndasýning Ein- ars Garibalda Eirikssonar á Mokka- kaffi og er hún opin fram i miðjan mai á venjulegurri opnunartíma kaffihúss- ins. BÍÓIN ★ ★ ★ ★ framsúrskarandi ★ ★ ★ ágæt ★ ★ góð * þolanleg O léleg Háskólabíó Footloose Leikstjóri: Herbert Ross. Aðalhlutverk: Kevin Bacon, Lori Singer, Diane Wiest og John Lithgow. Nýja bíó Striðsleikir - Wargarnes *** Bandarísk. Árgerð ’82. Handrit: Law- rence Lasker, Walter Parkes. Leik- stjóri: John Badham. Aðalhlutverk: Matthew Broderick, Dabney Coleman, Ally Sheedy, John Wood. "Striðsleikir et skólabókardæmi um farsæla lausn á togstreitu afþreyingar og alvarlegrar umfjöllunar. Einkum framan af er uppbygging handrits, per- sónusköpun, umhverfislýsing og sam- töl sérlega snöfurmannlega af hendi leyst, þar sem þjónaö er tvennum til- gangi - skemmtun og umhugsun," —ÁÞ. Austurbæjarbíó Breakdance Aðalleikarar: Lucinde Dickey, Shabba-Doo, Boogaloo Shrimp og margir fleiri. Atómstöðin *** Isl. Árg. ’84. Leikstjóri: Þorsteinn Jónsson. íslenska stórmyndin byggð á samnefndri skáldsögu Halldórs Lax- ness. Tónabíó Svarti folinn snýr aftur ** Bandarísk. Leikstjóri: Robert Dalva. Aðalhlutverk: Kelly Remo. „Þaó magnast upp eilítil spenna í þessari mynd á köflum, eink- anlega í kappreiðaatriðunum þar sem kvikmyndataka og klipping er og fag- leg. Inn á milli er hægt á atburðarás- inni, jafnvel einum of, því myndin vill þá verða helst til væmin. Annars er þessi framleiðsla Coppola snotur í heildina og uppfyllir öll skilyrði hins eðla barnaævintýris, þó svo að leik sé á stundum nokkuð ábótavant, sérstak- lega i fjölmörgum aukahlutverkum myndarinnar." -SER. Regnboginn Ofsoknaræði (Persecution) Ensk litmynd með Lana Turner, Ralph Bates og Trevor Howard. Leikstjóri: Don Chaffey. Augu næturinnar Bandarísk litmynd byggö á bókinni „rotturnar" eftir James Herbert með Sam Groom, Sara Botsford og Scat- man Crothers i aðalhlutverkum. Stríðsherrar Atlantis með Doug McClure, Peter Gilmore og Cyd Charisse í aðalhlutverkum. Avalanche Tortimið hraðlestinni. Bandarfsk litmynd byggð á sögu ettir Colin Forbes, meö Robert Shaw, Lee Marvin og Lindu Evans. Leikstjóri: Mark Robson. Gulskeggur Leikstjóri: Mel Danski (M.A.S.H.). Aðalhlutverk: Graham Chapman, Marty Feldman, Peter Boyle, Peter Cook, Peter Bull, Cheech og chong, James Mason og David Bowie. Staying Alive * Bandarísk. Árgerð 1983. Handrit: Sylvester Stallone, Norman Wexler. Leikstjóri: Sylvester Stallone. Aðal- hlutverk: John Travolta. ,,Ekki fæ ég skilið hversvegna jafn sæmilegur leikstjóri og Sylvester Stallone reynir við leikhæfileika John Travolta. Víst er þetta sætur dansari, en þegar útlimunum sleppir og hann þarf til dæmis orð að tala, missir myndin algjörlega marks. Ég hélt satt best að segja, aö menn væru fyrir margt löngu orönir uppgefnir á að reyna að láta John tjá sig með talfær- unum fyrir framan kvikmyndaauga. En hvað um það, Staying Alive er ansi snoturt föndur á ytra borðinu, en inn- takið harla fátæklegt." -SER. Frances • ** Bandarísk mynd. Árg. '82. Handrit: Christopher DeVore, Eric Bergen. Leikstjóri: Graeme Clifford. Aðalhlut- verk: Jessica Lange, Kim Stanley, Sam Shepard. Bíóhöllin Borð fyrirfimm (Table for Five) Aðalhlutverk: Jon Voight, Richard Crenna, Marie Barrault og Millie Perkins. Leikstjóri: Robert Lieber- man. James Bond myndin Þrumufleygur. Aðalhlutverk: Sean Connery, Adolf Celi, Claudine Auger og Luciana Paluzzi. Framleiðandi: Albert Broc- coli og Harry Saltzman. Byggð á sögu lans Fleming og Kevin Mc- Clory. Leikstjóri: Terence Young. Traust Bondmynd af gamla skólan- um. Silkwood. *** Bandarísk. Árgerð '83. Handrit: Nora Ephron og Alice Arlen. Tónlist: George Delerue. Framleiðandi: Mike Nichols og Michael Hausman. Leikstjórn: Mike Nichols. Aðalhlutverk: Meryl Streep, Kurt Russell, Cher, Craig T. Nelson og fl. „Kvikmyndin Silkwood segir frá dag- legu lífi Karen, allt frá því að hún sem hress verksmiðjustúlka í kjarnorkuveri lætur hverjum degi nægja sínar þján- ingu, þar til augu hennar opnast í fé- lagslegum og pólitískum skilningi. Silkwood er tveggja og hálfrar stundar lönq mynd, og mörgum finnst eflaust atburðarásin hæg og sneydd spennu. En það er einmitt þessi hæga, liðandi lýsing á lífi almúgafólks sem gefur Meryl Streep, í hlutverki Karen, tæki- færi til að sýna leik á hvita tjaldinu sem er sá eftirminnilegasti sem undirritað- ur man eftir í langan tíma." -IM. Heiðurskonsúliinn - The Honorary Consul *** Bresk-bandarísk. Árgerð 1983. Hand- rit: Christopher Hampton, eftir skáld- sögu Grahame Greene. Leikstjóri: John Mackenzie. Aðalhlutverk: Rich- ard Gere, Michael Caine, Elpida Car- illo, Bob Hoskins. Maraþonmaöurinn Bandarísk mynd. Leikstjóri: John Schlesinger. Aðalhlutverk: Dustin Hoffman, Laurence Olivier, Roy Scheider og Marthe Keller. Framleið- andi: Robert Evans. Endursýndurþrill- er um eltingaleik við gamlar eftirlegu- kindur nasismans. Vel leikin og all- spennandi. Stjörnubíó Educating Rita. Bresk. Árgerð 1983. Handrit ettir sam- nefndu leikriti Willy Russel. Leikstjóri: Lewis Gilbert. Tónlist: David Hents- chel. Kvikmyndun: Frank Watts. Aðal- leikarar: Michael Caine, Julie Walters. „Educating Rita fjallar um 26 ára hár- greiðslustúlku, sem er komin af al- þýðufólki. Hún hefur verið gift i sex ár en er enn barnlaus, þar eð hún „þráir að finna sjálfa sig", eins og hún orðar það. Hún ákveður að sækjakvöldskóla hjá drykkfelldum prófessor í bók- menntum. Eftirmálin segja af sam- skiptum þeirra og uppgötvunum beggja á hæfileikum Ritu á bókina, en jafnframt greinir hún býsn af hugtakinu menntun og þeim fjötrum sem það get- ur fært fólki á mismunandi vegu. Frá- bær samleikur Julie Walters og Michael Caine I meginrullunum veldur mestu um að þetta tekst. Sagan er ekkert nema tvíleikur þeirra frá upp- hafi til enda. Þeim er teflt fram sem andstæðum í upphafi, en undir lokin eygjum við hvað undir býr í öllum, sömu hæfileikana sem þó iðulega er mismunandi unnið úr á lífsleiðinni." -SER. Stripes I Want You Bráðfyndin bandarisk gamanmynd í litum. Laugarásbíó Private School. Aðalhlutverk: Phoebe Cates, Betsy Russel, Matthew Modine og Sylvia Kristel. Scarface. Bandarísk: Árgerð 1983. Handrit: Oliver Stone. Myndataka: John A. Alonzo. Tónlist: Giorgio Morodor. Framleiðandi: Martin Bregman/Uni- versal International. Leikstjóri: Brian DePalma. Aðalhlutverk: Al Pacino, Steven Bauer, Michelle Pfeiffer, Mary E. Mastantonio, Robert Loggia. „Hug- myndin að baki Scarface er góð og víst tekst DePalma að halda spennu i myndinni, einkum i byrjun, og reyndar dettur hún aldrei alveg niður, En herslumuninn vantar oq vankantar myndarinnar koma ekki sist fram i ein- földum ofleik Al Pacino sem reyndar segir ekki mikiö annað en „Fuck".“ —IM. TÓNLIST Háskólabíó Tónlistarskólinn i Reykjavík. Sinfóniuhljómsveit Islands. Stjórnandi Páll P. Pálsson. Einl.: Bryndís H. Gylfadóttir selló, Bryndís Pálsdóttir fiðla, Guðrún Þórarinsdóttirvíóla, Sól- veig A. Jónsdóttir píanó. kl. 20.30. Félagsstofnun stúdenta Jazz Combo Guömundar Ingólfssonar skemmtir i Skjálkaskjóli 2, fimmtudag- inn 24. maí kl. 9 - 11.30. 16 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.