Helgarpósturinn - 24.05.1984, Side 17
I
LISTAP
Svartur
og sykurlaus
draumur
efir Hallgrím Thorsteinsson myndir Jim Smart
\ I
„Það er þessi límmiði á Svörtu
og sykurlausu, sjáðu til, sem gef-
ur ekki cilveg réttar upplýsingar, og
hann er of fastur á okkur," segir
Edda Heiðrún Backman (ekkert
skyldar) og reiðir aðra löppina hátt
til lofts. Þetta er iétt bóillettstemn-
ing hjá henni meðan hún hellir upp
á kaffið. Svart og sykurlaust er að
hita sig upp í startið.
„Og á þessum límmiða," segir
Gíó, Guðjón Pedersen, ,rstendur að
svart og sykurlaust sé kamival-
leikhópur, að við séum þetta kjöt-
kveðjulið sem sprakk út í einn alls-
herjar jollý fíling á 17. júní í fyrra.“
„Málið er ekki svona einfalt,"
segir Kolbrún Halldórsdóttir.
„Við ætlum að halda kcimival-
stemningunni þar sem hún á við,
en við verðum ekki kjötkveðju-
götuleikhús dansandi sömbu alla
ævina,“ segir svo sá fjórði í hópn-
um, Kristján Franklín Magnús (ekk-
ert skyld).
Ellert A. Ingimundarson segir
mottóið vera að ekkert sé útilokað.
„Það verður enginn frumlegur á
því að segja: Ég ætla að vera fmm-
legur.“ Þau segjast ætla að ná sam-
bandi við fólk; ekki ganga fram af
því, heldur heilla það, fá það til að
finna þessa Scimeiginlegu mann-
legu hlið okkar cillra í leik, söng og í
dansi. Þetta gerist cdltof sjaldan í
leikhúsi, segja þau, þessi sam-
staða.
I /v
Svart og sykurlaust telur nú
20-30 manns. Kjamann skipa
framangreindir en auk þeirra Sig-
urþór Albert Heimisson og Guðný
Björk Richards. Þau hafa tekið á
leigu efstu hæðina í bakhúsi við
Laugaveg, sal á stærð við hálfan
I
vítateig á fótboltavelli þar sem þau
em komin með boltann í dauða-
færi við þjóðina.Þama er verið að
teikna og sauma búninga, hlæja
stjórnlaust heilu dcigana, semja
verkin sem á að flytja í sumar, ríf-
ast og mála, kaffibolla eftir kaffi-
bolla.
Þetta er erfitt form á leikhúsi,
segja þau, það er enginn einn
stjóri. .„Stundum springur allt hjá
okkur og állir ganga út. En ein-
hvern veginn helst þetta gangandi,
okkur tekst að halda utan um
apparatið, gemm mikið sjálf og
betlum fyrir kostnaði. Hugsaðu þér
- einu sinni vom allir leikarar á
prófessorslaunum!
Svcut og sykurlaust varð til í
mótþróa. Gíó og Kolla ætluðu að
stjórna sýningu til að mótmæla
/niðurrifi Hafnarbíós. Það varð
fkveikjan. Frcimanaf, sérstaklega á
17. júní í fyrra, kom Svcut og sykur-
laust frcim sem götuleikhús með
sambatakti. Helstu áhrifavaldar:
Els Comediants hinir spönsku og
Bread and Puppet leikhúsið frá
Bandaríkjunum.
„Þetta hefur verið að þróast út í
meiri myndlist hjá okkur," segir
Gíó. Þau tilfæra sem dæmi um
þetta tvær af þeim 13 sýningum
sem þau stóðu fyrir í fyira. „Við
færðum upp dag í lífi sólkonungs-
ins á túninu við geðdeild Land-
spítalans í fyrrasumar. Fólk á leið
til vinnu sá allt í einu einn morgun-
inn ríkulega skreytt langborð, þar
sem 20 manns sátu að villtu sukki
eins og hirð Lúðvíks 14.
Við sjáum tenginguna: það er
verið að fleyja tonnum af tómötum
á öskuhaugana á sumrin. Sjúkling-
arnir á geðdeildinni voru ánægðir
Sykurlaust frá
vinstri: Guðjón
Pedersen, Edda
Heiðrún Backman,\
Sigurþór Albert
Heimisson, Kolbrún
Halldórsdóttir,
Guðný Björk
Richards, Ellert A.
Ingimundarson,
Kristján Franklín
Magnús. Strákurinn)
er special effect.
!
\
með sýninguna, en yfirlæknirinn
varð vondur. En ctnnars vsir þessi
sýning hugsuð mest fyrir fólk í bíl-
um.“
Þau nefna iíka sýningu leikhúss-
ins með Oxsmá á Friðarhátíðinni
Við krefjumst frcimtíðcir í Laugar-
dalshöllinni í fyrrahaust, sem
mörgum er enn í fersku minni. Af-
rekaskráin er furðu aðdáunarverð
miðað við hvað fyrirbærið er ungt.
En þetta er leikhús sem er lífsmáti
um Ieið. Fátt annað kemst að þegar
sett hefur verið í gang.
Hafa þau þannig tekið virkan
þátt í baráttuni fyrir friði í heimin-
um? kynni einhver að spyrja. Og eru
þau pólitísk? Edda Heiðrún svcircir
þessu:,JVIér finnst við vera að við-
urkenna andstæðurnar í heimin-
um með því að mótmælastríði.Við
megum ekki fyllast ótta, því um
leið og fólk óttast einhvem hlut er
það að kalla hann yfir sig.“ Gíó
segir að annars staðar í Evrópu séu
allir að pissa á sig cif hræðslu við
kjarnorkustyrjöld, að þar sé fólk að
deyja úr hræðslu. Þau eru á einu
máli um að þau séu ekki síður póli-
tísk en önnur leikhús. „Það getur
verið pólitík í því að skemmta fólki.
Við erum þá ekki að sýna fólki
hörmungar stríðs heldur það sem
fólki er dýrmætast og ekki má týn-
ast,“ segir Kolbrún.
í næstu viku byrjar Svart og
sykurlaust að ferðast milli vinnu-
staða með fyrstu uppfærsluna í
sumar. Þetta er lítil ástarsaga, klass-
ísk að því leyti að elskendurnir ná
ekki saman. Sterk öfl koma í veg
fyrir það. Hópurinn vill ekki fara
mikið nánar út í efnið en rifjar þess
í stað upp gamlan texta eftir
Stephen Stills: „If you can’t be with
the one you love, honey, love the
one you’re with...“ og hlæja svo
eins og brjálæðingar. „Þetta er ekki
meðvituð vinnustaðasýning um
virkjuncirmöguleika í samstöðuaíli
verkalýðsstéttarinnar. Þetta er
bara skemmtileg saga, búin til í
spuna okkar á milli, í okkcir vinnu.”
Það er kjarninn í Svörtu og sykur-
lausu, sjö manns, seuTsér um
þessa sýningu.
Margt fleira er í bígerð en sam-
tals má það ekki kosta mikið meira
en 220.000 krónur. Það er sá pen-
ingur sem Svart og sykurlaust fær
frá Listahátíð í Reykjavík til að
setja upp vinnustaðasýninguna og
f jórar götusýningar á meðan hátið-
in stendur yfir. ,,8tundum er það
þannig með svona áhugcifólk eins
og okkur,” segir einn úr hópnum,
„að hóparnir vinna á fullu kaup-
laust til að sanna að vert sé að
styrkja þá. Svo er allur dampur úr
liðinu þegar styrkirnir loks koma.”
Þau sjá fram á eitt annað verkefni í
júní, það er að fiytja alla krakkana
úr miðbænum á dansleik í Laugar-
dalshöll að kvöldi 17. júni.
Svo er líka dreymt: „Það væri
voðalega gaman ef Gísli byði okkur
að setja upp í Þjóðleikhúsinu,” og
„við gætum gert strönd á Lækjar-
torgi með pálmum og pina colada.
Gert Seðlabankann að fjögurra
stjörnu hóteli,” eða „væri ekki til-
valið fyrir einhvem að bjóða okkur
út til Kýpur í heilt ár j>ar sem við
gætum æft upp nýtt verk?” Og Gíó
dreymir alltaf þeysireið um Rauða-
sand á Barðaströnd á mótorhjóli -
stelpan aftan á, kampavínsflaskan
með en hjálmurinn hvergi því þar
er engin lögga...
HELGARPÓSTURINN 17