Helgarpósturinn - 24.05.1984, Side 27
Hann talaði um fundarefnið
nokkra hríð og lýsti sínum skoðun-
um á málunum en klykkti út í lok
ræðunnar með því að segja að allir
í ASÍ ættu að hafa ábyrgð og hún
aetti ekki að liggja alfarið í höndum
Ásmundar Stefánssonar. Næst
kom Bjamfriður upp og sagði að
loksins væri hún sammála Sigfinni
Karlssyni; téður Ásmundur hefði
alltof lengi haft of mikla áybyrgð og
mikil völd. Þá sté Sigfinnur á nýjan
leik í pontu og sagði að Bjamfríður
hefði misskilið sig. Hann vildi ekki
gera lítið úr forystuhæfileikum og
mannaforráðum Ásmundar, held-
ur legði hann á það áherslu að
Ásmundur sæti ekki einn með
ábyrgðina, heldur þyrfti fleiri herð-
ar ASI-manna til að axla hana. Eng-
inn mætti skilja sig svo að hann
væri að ganga í eina sæng með
Bjarnfríði, það væri öllu líkara því
að hún væri að troða sér uppí til
hans...
stofanna í borginni hafa ekki ræst.
Rekstur þeirra hefur einfaldlega
gengið betur en nokkurn heilvita
mann óraði fyrir. Öll kvöld vikunn-
ar, og reyndar líka í hádeginu, em
þeir staðir, sem em teknir til starfa,
stútfullir af fólki fram að dyrum. Og
biðröð oftast þar fyrir utéui. Nú höf-
um við heyrt hver viðbrögð eins
bjórstofueigandans verða við
þessari ásókn manna í lögin. Gylfi
Guðmundsson á Pöbb-inum við
Hverfisgötu, er búinn að rýma
billjardstofuna, sem var lengi í
baksal kráarinnar. Þetta er all-
nokkm stærri salur en sjálfur
Pöbb-inn er að flatarmáli, en fram-
vegis flýtur þar væntanlega allt í öli
eins og gért hefur frammi við.
Það leyfa sér ekki aliir bísness-
menn að stækka um helming á
þessum síðustu og mestu niður-
skurðartímum, en svona vel selst
sem sagt ölið ...
s
C^tækkun ofannefndrar bjór-
stofu mun þó ekki þýða það að
Gylfi ætli að leggja billjardrekstur
á hilluna, að því er við best heyr-
um. Hér fer enda dyggur hvata-
maður að uppgangi knattborðs-
íþróttarinnar. Mega ballskákunn-
endur vænta þess að Gylfi opni
nýja stofu fyrir íþróttina innan
fárra mánaða, en þá í nýju hús-
næði...
c
amkeppm tryggingafélaga
er alltaf að aukast eins og auglýs-
ingar blaða og sjónvarps bera með
sér. Eitt sterkasta tryggingafélag
hérlendis, Sjóvá, hefur undirboðið
markaðinn sterkt að undanfömu
og heyrist nú gnístran tanna frá
stjórnendum annarra trygginga-
fyrirtækja sem erfitt eiga með að
mæta lágum tilboðum risans...
P
"áll Heiðar Jónsson, sá
íðkunni útvarpsmaður, hættir
eð Síðdegisvöku M'na 1. júní. Ný
ðdegisvaka er í bígerð hjá út-
irpsfólki, og er jafnvel vonast til
5 sá þáttur verði ögn lengri en sá
;m nú er, eða frá kl. i7:10 fram að
Ikynningalestri fyrir æðurfréttir.
msjónarmenn verða þrír en út-
irpsráð hefur enn ekki samþykkt
ið fólk sem sterklegast kemur til
•eina...
"að hefur vakið óskipta at-
hygli landsmíinna að Bjamfríður
Leósdóttir sagði sig úr varastjóm
ASÍ vegna þess að drukknir dónar
vaða uppi með klám og kvenfyrir-
litningu á fundum Alþýðusam-
bandsins, svo notuð séu hennar
eigin orð. í þessu sambandi nefnir
hún Sigfinn Karlsson, verkalýðs-
fulltrúa Austurlands, og hefur kært
hann til ASÍ vegna ærumeiðandi
ummæla. Það sem gerðist mun
hafa verið eftirfarandi: Á umrædd-
um fundi hélt Ásmundur Stef-
ánsson, forseti ASÍ, framsögu-
ræðu. Að henni lokinni sté Sigfinn-
ur Karlsson í pontu og mun hafa
verið búinn að fá sér „einn lítinn",
en var alls ekki áberandi ölvaður.
ATRÐ
SEM SETJA
NISSAN
CHERRY
Á TOPPINN
MEST SELDI JAPANSKI BfLL J í
• Útvarp • 6 ára ryðvarnarábyrgð
• Öryggisbelti fyrir fimm manns, hönnuð inn i • Hlíf yfir farangursrými sem má fjarlægja
vandaða innréttinguna með einu handtaki
* Upphituð framsæti • Litað gler
• Quartz klukka • Halogenljós
• Þriggja hraða þrælöflug miðstöð • Hliðarrúður að aftan i þriggja dyra Cherry
• Tviskipt aftursæti sem má leggja niður má opna með tökkum á milli framsætanna
annað eða bæði • Barnalæsingum i 5 dyra Cherry er stjórnað
• Framhjóladrif úr framsætum
• 5 gira kassi eða sjálfskipting • Sjálfstæð fjöðrun á hverju hjóli
• 83 hestafla vél, 1500 cc með yfirliggjandi knastás • Rúmgott hanskahólf
• Tveir útispeglar, stillanlegir innan frá • Ljós i farangursrými
• Sigarettukveikjari • Stillanleg stýrishæð
• Blástur á hliðarrúður • Spegill i sólhlif
* Þriggja hraða þurrkur með stillanlegum • Tvö handhæg geymsluhólf i farangursrými
biðtíma, 6—12 sekúndur fyrir smáhluti
• Rafmagnsupphituð afturrúða, með þurrku og • 2ja ára ábyrgð
rúðusprautu • Allir eldri bilar teknir upp i nýja
• Skuthurð og bensínlok eru opnanleg • Frábær kjör.
úr ökumannssæti
INGVAR HELGASON HF.
Sýmngarsalurinn/Rauðagerði, sími 33560.
HELGARPÓSl URINN 27