Helgarpósturinn - 19.07.1984, Blaðsíða 1

Helgarpósturinn - 19.07.1984, Blaðsíða 1
 - j / V*/ 1 r / ■ fcvf**-'' i . I 'lí ; AUSTURLAND-SUÐURLAND I þessu blaði höldum við ferða- laginu áfram frá þeim stað þar sem við kvöddum í síðasta ferðablaði HP. Byrjum á Austurlandi og höld- um síðan suður um Suðurland. Við heyrum á öllum ferða- mannaslóðum um aukningu ferða- mannastraumsins, bæði innlenda og erlenda ferðamenn. Veðrið hef- ur án efa gert mikið fyrir ferða- mannabransann í sumar, enda hlýtt og notalegt víða um landið allt frá í vor. í þessu blaði er reynt að gera sem flestum stöðum skil, en á þessu stóra svæði er urmull af girnilegum stöðum til áningar og dvalar. Og sem fyrr hvetjum við fólk til að leggja ekki of mikið á fararskjóta sinn, en njóta þeim mun betur fárra og góðra staða. Það er besta ferðamennskan, enda lítt gaman fyrir ferðafólkið að vera um of á íslenskum þjóðvegum, eins og þeir eru nú flestir hverjir. # |f 1 3 m m Kaupfélögin eru sjálfstæð félög, lýðræðisleg og öllum opin. Um 40 kaupfélög um land allt eru grundvöllur samvinnu- hreyfingarinnar. Verslun, þjónusta og fjölþætt framleiðslu- störf eru í verkahring þeirra, en félagsmenn á hverjum stað ákveða sjálfir starfsvettvanginn. Saga kaupfélaganna í rúma öld er nátengd baráttu þjóð.arinnar fyrir bættum lífs- kjörum og hvers kyns framförum. Kaupfélögin skapa atvinnu og bæta þannig lífskjör landsmanna. ,3»

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.