Helgarpósturinn - 19.07.1984, Qupperneq 1
- j / V*/ 1 r
/ ■ fcvf**-'' i . I 'lí ;
AUSTURLAND-SUÐURLAND
I þessu blaði höldum við ferða-
laginu áfram frá þeim stað þar sem
við kvöddum í síðasta ferðablaði
HP. Byrjum á Austurlandi og höld-
um síðan suður um Suðurland.
Við heyrum á öllum ferða-
mannaslóðum um aukningu ferða-
mannastraumsins, bæði innlenda
og erlenda ferðamenn. Veðrið hef-
ur án efa gert mikið fyrir ferða-
mannabransann í sumar, enda
hlýtt og notalegt víða um landið
allt frá í vor.
í þessu blaði er reynt að gera
sem flestum stöðum skil, en á
þessu stóra svæði er urmull af
girnilegum stöðum til áningar og
dvalar. Og sem fyrr hvetjum við
fólk til að leggja ekki of mikið á
fararskjóta sinn, en njóta þeim
mun betur fárra og góðra staða.
Það er besta ferðamennskan, enda
lítt gaman fyrir ferðafólkið að vera
um of á íslenskum þjóðvegum,
eins og þeir eru nú flestir hverjir.
# |f
1 3
m m
Kaupfélögin eru sjálfstæð félög, lýðræðisleg og öllum opin.
Um 40 kaupfélög um land allt eru grundvöllur samvinnu-
hreyfingarinnar. Verslun, þjónusta og fjölþætt framleiðslu-
störf eru í verkahring þeirra, en félagsmenn á hverjum stað
ákveða sjálfir starfsvettvanginn. Saga kaupfélaganna í
rúma öld er nátengd baráttu þjóð.arinnar fyrir bættum lífs-
kjörum og hvers kyns framförum. Kaupfélögin skapa
atvinnu og bæta þannig lífskjör landsmanna.
,3»